Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.2015, Page 138

Tímarit Máls og menningar - 01.11.2015, Page 138
D ó m a r u m b æ k u r 138 TMM 2015 · 4 Þannig er Úlfar, önnur aðalpersónan, í raun ekki hluti af þessum átökum, það bara vill svo til að hann er staddur í Steinvík þegar árásin er gerð og berst því með þeim. Sömuleiðis er fóstbróðir hans, Auðunn (sem ekki er allur þar sem hann er séður), ekkert endilega að berjast gegn neinu sérstöku, hann er frekar að berjast fyrir því að fá að vera í friði. Þegar á líður söguna flækjast þeir á milli fylkinga, en standa umfram allt gegn því að hin myrku öfl taki völdin. Í herbúðum þeirra sem ráðast gegn Steinvík eru skipstjórarnir dæmigerðir víkingar, sem hugsa aðeins um það að ræna og rupla og valda sem mestum usla, en þar er líka að finna öflugustu kvenpersónu sögunnar, Þóru – sem mögulega er þeirra grimmust. Önnur kona er kynnt til sögunnar í miðbók­ inni, bóndakonan Helga sem á í útistöð­ um við stórbónda sem girnist bæði hana og jörð hennar. Þar kemur Auðunn til hjálpar. Leiðir þeirra liggja svo aftur saman í þriðju bókinni, en þar kemur í ljós að Helga er engin venjuleg kona og ekki síður slyng í rúnagaldri en Egill Skallagrímsson. Vissulega eru karlarnir fyrirferðarmeiri – og fleiri – en kven­ persónurnar, en þessum tveimur ólíku konum eru þó gefin lykilhlutverk, auk þess sem nokkur áhersla er lögð á að fordæma meðferð víkinganna á konum. Nornin Skuld, fulltrúi framtíðarinn­ ar, er svo gott dæmi um hina kvenlegu fláráðu fegurð, en í ljós kemur að henn­ ar markmið eru heldur ekki öll sem þau sýnast – og virtist mér þar glitta í tilvís­ un í fantasíu Neils Gaiman, American Gods (2001), en þar koma norræn goð­ mögn einnig nokkuð við sögu. Reyndar er heilmikið um tilvísanir í bókmenntir og menningu af öllu tagi. Óðinn skiptir reglulega um gervi og fer um í félagi við tvo stóra hunda (sem standa fyrir úlfa­ bræðurna Gera og Freka) og fráneyga hrafna. Og líkt og í goðafræðinni er Óðinn heilmikill bragðarefur, rétt eins og Loki. Sjálfur er Loki græneygður og sléttrakaður og eftir því sem á líður eykst illska hans. Það er ljóst að ímyndir þeirra eins og þær birtast í bókunum sækja einnig nokkuð til bandarísku myndasagnanna (og kvikmyndanna) um Þór. Reyndar er það eitt af því sem gerir þríleikinn svo ánægjulegan, hvernig Snorri leikur sér með viðfangsefnið og nýtir sér jafnt sögu, goðsögu og nútíma­ útgáfur. Þannig er hinn sögulegi bak­ grunnur sem lýtur að trúboði Ólafs Tryggvasonar og herferð Sveins tjúgu­ skeggs Danakonungs í félagi við hinn unga Ólaf konung úr Svíþjóð og Eirík, son Hákonar hlaðajarls, byggður á heimildum. Norrænu goðin fylgja sömuleiðis sínum hlutverkum að mestu – Óðinn er eineygður og nefnir sig iðu­ lega Fjölni og Loki vill drífa í Ragnarök­ um, en þó með fyrrnefndum tilvísunum til nútímalegri útgáfa. Á sama hátt er stíllinn blanda af nútímalegum hryss­ ingi og fornlegu myndmáli sem sótt er í heim norðursins: trén standa í þéttum röðum sem minna á virkisvegg, skýin eru í laginu eins og úlfar og fara hratt yfir himininn (POG, 45). Sömuleiðis koma úlfar, birnir og hrafnar reglulega við sögu. Loks má ekki gleyma því að það vetrar hægt og rólega í gegnum þrí­ leikinn, með tilheyrandi snjókomu, kulda og myrkri. Bygging bókanna er með hefðbundn­ um hætti, en hvort sem það er áhrifum kvikmynda að kenna eða ekki (ég held að svo sé) þá virðast þær fantasíur sem mestra vinsælda njóta í dag þurfa að ganga að stórum parti út á langa loka­ orrustu. Þannig er fyrri hluti Swords of Good Men (lokaorrusta ætti svo sem ekki að koma á óvart með svona yfir­ skrift) í raun bara undirbygging fyrir
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.