Ófeigur - 15.05.1956, Side 7
ÓFEIGUR
5
Það er merkileg tilviljun, að hinn kunni hugsjóna-
maður íslenzkrar leikmenntar, Indriði Einarsson, eign-
aðist fyrir tengdasyni tvo mestu leikara, sem þjóðin
hefur alið, Jens Waage og Ólaf Thors. Annar hreif
fólkið með leik sínum í Iðnó, en hinn með störfum á
þjóðarsenunni. Fyrir 30 ánun héldu sex þingmenn úr
núverandi stjómarflokkum 1500 Húnvetningum ánægð-
um, og allt að því hrifnum, á 12 tíma útifundi á Sveins-
stöðum. Voru þar að verki Jón Þorláksson, Magnús
Guðmundsson, Þórarinn Jónsson, Guðmundur Ólafsson,
Tryggvi Þórhallsson og Jónas Jónsson. I sumar sem
leið sendu sömu flokkar æfða og snjalla ræðumenn til
að tala við Húnvetninga. Þar voru við verkstjórn tveir
Mbl.-menn og tveir Tímamenn. Báðri flokkar sendu
4 leikara á fundina, til að skemmta með söng, eftir-
hermum og leiksýningum. Á tímabilinu frá 1925 till955
breyttist þjóðmálastarfið úr alvöru í gleðleik.
Þessi stökkbreytni er nýmæli í þingstjórnarlandi. Það
mundi vekja alheims eftirtekt, ef útvarpið tilkynnti
í ensku fréttunum, að Eden hefði hitt að máli
kjósendur sína, en ekki treyst á nægilegt fundarfylgi
og þess vegna haft með sér fjóra loddara, þar á meðal
leikara, sem hefði hermt ágætlega eftir Bevan. Næsta
dag hefðu Bevansmenn haldið hliðstæða skemmtun á
fundi í hans kjördæmi. Mikið þarf að breytast í Eng-
landi áður en þessi leikmennt blómgast þar.
Fjórar ættir hafa orðið voldugastar og valdamestar
um alllanga stund hér á landi. Sturlungar hófust til
mikilla áhrifa um 1200 með Hvamm-Sturlu, og gætti
ættarinnar mjög í þrjá aldarfjórðunga, þar til Sturla
Þórðarson andaðist. Veldi Stefánunga hófst með Ölafi
Stephensen síðar stiptamtmanni, þegar hann giftist,
laust eftir miðja 18. öld, hinni auðugu dóttur Magn-
úsar Gíslasonar amtmanns. Forystu Stefánunga lauk
með valdalokum Magnúsar Stephensen landshöfðingja
1904. Briemsættin hóf valdaferil sinn í byrjun 19. ald-
ar með listamanninum og lögfræðingnum Gunnlaugi
Briem á Grund í Eyjafirði, og er sú ætt enn fjölmenn
og umsvifamikil. Thorsættin gerðist valdafjölskylda. í
byrjun 20. aldar, þegar Thor Jensen varð stórútgerðar-
maður. Síðan hvarf ættin frá sjónum og býr um sig