Ófeigur - 15.05.1956, Page 38
36
ÓFEIGUR
röng, ef hún er móðgandi fyrir þann, sem gagnrýndur
er, því að sá seki vinnur málið.
#
Á óheillastund fyrir sig afréð Hermann að leita sér
bjargar á „flotholti syndarans“, en hann tók ekki bein-
ustu leiðina, að stefna sjálfur fyrir ummæli sem hann
taidi móðgandi, heldur að biðja Bjama Benediktsson
að hefja mál gegn mér, honum til varnar. Þetta var
fávísleg leið, enda næstum aldrei notuð. Aðstaða Her-
manns í Búnaðarbankanum var auk þess mjög veik.
Hann hafði búið til bankaráðsstöðu fyrir sig eingöngu
sem bitling. Hann hefur um 80 þús. kr. kaup og hlunn-
indi í bankanum, en enga vinnu, eins og kom í Ijós
við meðferð kæru hans. Vitað var, að dómsmálaráð-
herra var tregur til að hefja slík verndarmál. Yfir-
menn landhelgismálanna höfðu eitt sinn óskað eftir
verndarmáli gegn Gunnari Ólafssyni í Vestmannaeyj-
um. Hafði hann í vörn fyrir brotlegan bát haft hin
verstu og ómaklegustu orð um starfsmenn landsins við
embættisstörf. Ráðherra eyddi því máli og kvað Gunn-
ar helzt til aldraðan tii að standa í málaferlum.
*
Nokkuð hafði verið sótt fast að dómsmálaráðherra
með fyrirspurnum og glettum um hvort honum þætti
ekki ástæða til að rannsaka okurmál. En hann kvað
engar kærur komnar til sín eða lögreglustjóra um það
efni, og meðan enginn yrði var við svo ákveðnar mis-
fellur, að hann vildi biðja um rannsókn, væri stjórnin
úr leik. En þegar krafa kom frá Hermanni með ósk
um að hreinsa hann með dómi af allri samsekt í okur-
málum, virðist hafa verið komið það tækifæri, sem
dómsmálaráðherra hafði beðið eftir. Þakkaði hann
Hermanni í þingræðu fyrir að hafa vakið málið og
fyrirskipaði síðan að hefja sakamál gegn mér út af
ummælum, sem kynnu að vera meiðandi fyrir formann
bankaráðs Búnaðarbankans.
Hermann kom fyrir rétt hjá sakadómara og lét
lítið yfir starfsemi sinni í Búnaðarbankanum. Var
því líkast, að hann kæmi hvergi nærri stjórn bankans.
Ekki gerði hann tilraun til að sanna, að hann legði
þar á sig gagnlega vinnu fyrir stofnunina og ekki ósk-
aði hann að fá rannsakaða þá hlið málsins, hvort hann