Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.2019, Page 6

Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.2019, Page 6
6 FÓKUS 22. mars 2019 Varahlutaverslun og þjónusta TANGARHÖFÐA 4 110 REYKJAVÍK SÍMI 515 7200 www.osal.is osal@osal.is FAX 515 720 ÓSAL VARAHLUTAVERSLUN UMHVERFISVÆNI RUSLAPOKINN www.igf.is SEGÐ U NE I VIÐ P LAST I Áhugavert á Instagram: Í sland hefur ávallt verið kærkominn áfangastaður erlendra ferðamanna og þekktra einstaklinga, þrátt fyrir að létt sé í buddu þeirra þegar þeir yfirgefa landið. Julianna Vezza, matar- og ferðabloggari, sem er með heima- síðuna Bon Vivants er nýlega búin að vera á Íslandi og á Instagram má sjá nokkrar myndir frá dvölinni. Vezza skellti sér að sjálfsögðu í Bláa lónið eins og flestir sem hingað koma, hún gisti í Tower Suites á Höfðatorgi, fór í Brauð og Co og á Austurlandið. Að hennar sögn eru kanelsnúðarnir á Brauð og Co þeir bestu sem hún hefur bragðað. Við mælum með því að fylgja Vezza og skoða gullfallegar myndir frá ferðum hennar, sem innihalda mat, fallega staði og áhugaverð lönd. Julianne segir kanelsnúða Brauð og Co þá bestu í heimi María Sigrún og Pétur Árni skilin M aría Sigrún Hilmars- dóttir fréttakona á RÚV og Pétur Árni Jónsson, framkvæmdastjóri Heildar fasteignafélags eru skil- in. Pétur Árni var áður útgef- andi Viðskiptablaðsins og Fiski- frétta. Hann á eftir sem áður 67 prósenta hlut í útgáfufélagi blaðanna. Pétur Árni starfar nú sem framkvæmda stjóri Heildar fasteigna félags, sem rekið er af Gamma. Parið hefur verið saman í nokkur ár og eiga saman þrjú börn, auk íbúðar í gullfallegu húsi á Ægisíðu. Þau giftu sig árið 2011 í Dómkirkjunni og gaf Karl Sigurbjörnsson biskup þau saman, veislan fór fram á Kjar- valsstöðum. B ergvin Oddsson, oft kallaður Beggi blindi, og eiginkona hans Fanný Rósa Bjarnadóttir hafa fest kaup á 900 Grillhúsi í Vestmanna eyjum. Í samtali við DV segir Bergvin: „Ég sjálfur er úr Eyjum og við höfum búið hér síðan 2016. Við höfum verið í ferða þjónustunni og rekum Aska hostel í dag. Það eru samlegðaráhrif í því að kaupa veitingastaðinn. Það eru spennandi tímar framundan í Eyjum.“ Verða gerðar breytingar á staðnum? „Engar stórvægilegar breytingar. Við mun bæta eitthvað við matseðilinn og auka opnunartímann.“ Beggi blindi kaupir grillhús

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.