Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.2019, Síða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.2019, Síða 25
Allt fyrir dýrin 22. mars 2019 KYNNINGARBLAÐ Framkvæmdu í fyrsta skipti hjartaaðgerð á hundi Dýraspítalinn í Víðidal hef-ur starfað frá árinu 2001. Í dag eru átta dýralæknar við spítalann og sá níundi bætist í hópinn von bráðar, auk tveggja dýra hjúkrunarfræðinga og fjölda góðs starfsfólks. „Við sjáum um alla almenna dýralæknaþjónustu, læknisskoðanir, bólusetningar og ormahreinsanir, sjúkdómsgreiningar, meðferðir og sérhæfðar aðgerðir. Við tökum á móti öllum gæludýrum, hundum, köttum, fuglum og nag- dýrum. Hér er fullbúinn hestaspítali og þjónusta fyrir önnur húsdýr eins sauðfé, nautgripi, svín og fleira. Vegna aukinna umsvifa bjóðum við nú upp á tímapantanir í síma 540- 9900 eða í gegnum tímatorg á netinu,“ segir Halldóra Hrund Guð- mundsdóttir, dýralæknir hjá Dýraspít- alanum í Víðidal. Þaulreyndir dýralæknar sem bjóða upp á sérhæfða þjónustu Dýralæknar Dýraspítalans í Víð- idal eru eins og áður sagði átta talsins og hafa allir sitt áhugasvið. „Við sjáum öll um almennar dýra- lækningar á stofunni, en við höfum lagt okkar metnað í að sækja fram- haldsmenntun á ákveðnum svið- um dýralæknisfræðinnar. Þannig höfum við Katrín Harðardóttir sótt endurmenntun í skurðlækningum. Ólöf Loftsdóttir er fagdýralæknir í sjúkdómum hunda og katta og hefur sótt framhaldsmenntun í hjarta- sjúkdómum. Lísa Bjarnadóttir, einnig fagdýralæknir í sjúkdómum hunda og katta, er sérmenntuð í augn- sjúkdómum. Á staðnum er sérútbúin tannlæknastofa fyrir dýrin, sem er sviðið hennar Hrundar Ýrar Óladóttur. Helgi Sigurðsson er sérfræðingur í hestasjúkdómum og sér um hesta- spítalann ásamt Jóhönnu Helgu Þorkelsdóttur,“ segir Halldóra. Framkvæmdu í fyrsta skipti hjarta- aðgerð á hundi Þann 27. febrúar síðastliðinn fram- kvæmdu dýralæknarnir í Víðidal hjartaaðgerð á hundi í fyrsta skipti. Um var að ræða ungan hund með opna fósturæð (PDA), sem er með- fæddur hjartagalli, en slíkur hjarta- galli er sá eini sem hægt er að laga. Blessunarlega gekk aðgerðin vel og vaknaði hundurinn án aukahljóðs frá hjarta. Hundurinn er nú mun orkumeiri og á möguleika á lengra og betra lífi, þökk sé dýralæknateyminu í Víðidal og faglegum vinnubrögðum. Nýjar víddir í sjúkdómsgreiningu „Tove Nielsen, sérfræðingur í mynd- greiningu tók til starfa hjá okkur í október síðasta haust og hefur opnað fyrir okkur nýjar víddir í sjúkdóms- greiningu dýra.“ Aðspurð segir Halldóra að hægt sé að mynda öll dýr, bæði stór og smá. Góð tæki eru á staðnum og er hægt að setja naggrísi og fugla, jafnt sem stærri dýr, í röntgen myndatöku og ómskoðun og til að auðvelda sjúkdómsgreiningu. „Yfirleitt förum við ekki heim til fólks í vitjanir nema um sé að ræða heilt got í hvolpa- eða kettlingaskoðun eða heimaaflífun. Þegar kemur að því að framkvæma læknisskoðun á dýrunum, bólusetja þau og sjúkdómsgreina þá er að sjálfsögðu best að koma með þau hingað á spítalann þar sem við höfum öll lyf, tæki og tól til þess að bjóða upp á eins góða þjónustu og völ er á.“ Dýraspítalinn Víðidal er staðsettur að Vatnsveituvegi 4, Reykjavík. Sími: 540-9900 Facebook: Dýraspítalinn í Víðidal. Bókaðu tíma á timatorg.is MERKISDAGUR Á DÝRASPÍTALANUM Í VÍÐIDAL

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.