Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.2019, Síða 35

Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.2019, Síða 35
Brot af því besta 22. mars 2019 KYNNINGARBLAÐ Hlý gólf til frambúðar Gólfkuldi er hvimleiður og það er notalegt að ganga á hlýjum gólfum í híbýlum sínum, ekki síst þegar kalt er í veðri. Sífellt fleiri fá sér gólfhitakerfi en fyrir utan þægindin þá eykur slík aðgerð verðmæti fasteigna og gerir þær mun eftirsóttari. Svona færðu gólfhita í eldra húsnæði Í langflestum nýbyggingum í dag er gert ráð fyrir gólfhita en við byggingu flestra eldri húsa hefur eingöngu verið gert ráð fyrir gamaldags ofnakerfi. Fyrirtækið Gólfhitalausnir hefur tekið í notkun vél sem fræsir fyrir hitalögnum með áhrifa ríkum hætti og nánast ryklausum. Áður fyrr þurfti að fræsa gólf með tvíblöðungi og múrbrjót til að koma að gólfhitalögnum og gat það verk tekið marga daga, sem hafði í för með sér mikið rask. Kúnnahópurinn á þeim tíma var eingöngu efna- meira fólk. En með þessari nýju aðferð hafa miklu fleiri ráð á að koma sér upp gólfhita. Gólfhiti þýðir aukin lífsgæði á heimilinu Þegar hiti hefur verið lagður í gólf er tryggt að íbúar verða aldrei aftur varir við gólfkulda. Þetta er notaleg kynding sem heldur iljunum hlýjum. Það er miklu notalegra að ganga á hlýju gólfi en köldu, það eykur ánægju og lífsgæði á heimilinu. Ofnar eru ljótir og taka pláss Ofnar eru lítið augnayndi og taka sitt pláss. Margir við- skiptavinir finna mikinn mun á plássi og nýtískulegheitum við að losna við ofnana. Ofnar dreifa hitanum ekki nærri því eins vel og gólfhitinn. Lægri kyndingarkostnaður Það að kynda með gólfhita er einnig ódýrara en að hita með ofnum. Munurinn í kostnaði getur verið á bilinu 20-30%. Sjá nánar á vefsíðunni golf- hitalausnir.is og Facebook- -síðunni: Gólfhitalausnir.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.