Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.2019, Síða 45

Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.2019, Síða 45
Brot af því besta 22. mars 2019 KYNNINGARBLAÐ Allt Fasteignir er framsækin hágæðafasteignasala sem leggur áherslu á ánægjuvog bæði kaupenda og seljenda. Einnig leggur fasteignasalan mikið upp úr heiðarleika, öryggi og nákvæmni í öllum vinnubrögðum. „Það er þess vegna sem fólk leitar til okkar þegar það vill selja eða kaupa. Það treystir okkur því við veitum einfaldlega góða þjónustu,“ segir Kristinn Sigurbjörns- son, eða Kiddi eins og hann er alltaf kallaður, löggiltur fasteignasali hjá Allt Fasteignum. Þrátt fyrir ungan aldur er Kiddi reynslubolti enda er hann einnig lög- giltur húsasmíðameistari, byggingar- stjóri, hefur leyfi til eignaskiptasamn- inga og er í námi í byggingafræði í Háskólanum í Reykjavík. „Frá ung- lingsaldri hef ég unnið við byggingar og tekið að mér bæði smá og stór verkefni. Ég hef tekið að mér ástandsskoðun fasteigna og er á skrá dómstóla yfir dómskvadda matsmenn í fasteignageiranum. Reynsla mín hefur verið mér og við- skiptavinum mínum ómetanleg við fasteignasölu og í öllu því sem henni fylgir,“ segir Kiddi. Starfstöðvar víða „Við erum aðallega með fasteignir til sölu en tökum þó að okkur leigu- húsnæði víða um land. Okkar starf- stöðvar á Íslandi eru í Reykjavík, Reykjanesbæ, Grindavík og Vest- mannaeyjum. Hjá fasteignasölunni starfa sex löggiltir fasteignasalar sem allir sjá um sína starfsstöð, og Elínborg Ósk Jensdóttir sem starfar sem lögfræðingur hjá okkur. Arn- dís María Kjartansdóttir sér þá um starfsstöðina í Vestmannaeyjum, Páll Þorbjörnsson, löggiltur fasteignasali, fiskeldisfræðingur og með réttindi til eignaskiptayfirlýsinga, er í Grindavík og Þorbjörn Pálsson, faðir Páls, er í Reykjanesbæ ásamt Gunnari Ólafs- syni. Einnig sér Þorbjörn um erlendu eignirnar okkar, ásamt Páli, í gegn- um Sólareignir sem rekið er af Allt Fasteignum. Að auki eru fjórir aðrir starfsmenn hjá okkur og þar af ein sem aðstoðar á skrifstofu og við auglýsingamál. Svo eru þrír nemar en tveir af þeim útskrifast á næstu mánuðum sem löggiltir fasteignasalar. Í sumar verða því alls átta löggiltir fasteignasalar starfandi hjá fasteignasölunni. Á Spáni eru Sólareignir með skrifstofu í miðbæ Torrevieja ásamt því að vera með sölusamninga í Portúgal, á Tenerife á Spáni og í Orlando og mikilvægt er að vera með löggiltan fasteignasala í því ferli.“ Leggja metnað í framsetningu eigna „Ég útskrifaðist í fyrra sem löggiltur fasteignasali en byrjaði að vinna hjá Allt Fasteignum fyrir tveimur árum. Sjálfur er ég nú yfir starfsstöðinni í Reykjavík og erum við með tölu- vert af fallegum og góðum eignum á skrá hjá okkur þar. Við erum með fasteignir í öllum stærðum, gerð- um og verðflokkum, hvort sem um er að ræða heimili, sumarbústaði, skrifstofur eða atvinnuhúsnæði. Við leggjum einnig mikinn metnað í framsetningu og kynningu á eignum sem eru til sölu eða leigu hjá okkur. Það er hagur okkar og viðskipta- vina okkar að eignir séu settar fram á faglegan og lýsandi máta,“ segir Kiddi að lokum. Nánari upplýsingar má finna á alltfasteignir.is Sími: 560-5500 Kiddi, beinn sími: 612-3524 og netfang: kristinn@alltfasteignir.is Páll, beinn sími: 426-555 og 698-6655 og netfang: pall@alltfasteignir.is Netpóstur: alltfasteignir@alltfasteignir.is ALLT FASTEIGNIR: Traust, heiðarleiki og metnaður í framsetningu Kristinn Sigurbjörnsson, Kiddi.Páll Þorbjörnsson, Palli.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.