Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.2019, Síða 53

Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.2019, Síða 53
FÓKUS - VIÐTAL 5322. mars 2019 H enrý Steinn kom fyrst fram í sviðsljósið á Íslandi fyrir þremur árum. Þá átti hann von á barni sem hann bar sjálfur undir belti. Henrý Steinn er fyrsti transmaðurinn á Íslandi sem verður óléttur í miðju kynleið- réttingarferli. Margir fjölmiðlar, bæði íslenskir og erlendir, fjölluðu um Henrý og sögu hans á sín- um tíma. Síðastliðin þrjú ár hefur Henrý mestmegnis haldið sig frá sviðsljósinu og einbeitt sér að föð- urhlutverkinu. Blaðamaður DV hitti Henrý til að spjalla um lífið sem faðir og transmaður. Við ræddum um fæðinguna, brjóstagjöfina, fjöl- miðlafárið og fordómana. Fór á hinsegin fund Við hittum Henrý Stein á kaffihúsi í Grafarvogi. Hann býr á Dalvík með dóttur sinni, en kom til Reykjavík- ur vegna aðgerðar sem hann er að fara í daginn eftir viðtalið. Henrý er einlægur og brosmildur. Það er stutt í hláturinn og hann skellir oft upp úr meðan á viðtalinu stendur. Henrý Steinn fór í fyrsta sinn á hinsegin fund þegar hann var í níunda bekk. Hann fór með vin- konu sinni sem var að koma út sem lesbía og vantaði stuðning. „Við fórum á hvern einasta fund í nokkra mánuði. Með tíman- um áttaði ég mig á því að ég hafði ekki bara áhuga á karlmönnum og opnaði á þann möguleika að ég væri tvíkynhneigður,“ segir Henrý. Komst að því í sögutíma að hann væri trans Nokkrum árum síðar, eftir fyrstu önn sína í framhaldsskóla, kom Henrý út úr skápnum sem trans. Hann segir að samtökin Hinsegin Norðurland hafi hjálpað honum mikið á þessum tíma. Henrý segir söguna af því hvernig hann uppgötvaði að hann væri trans vera frekar fyndna. „Ég hafði lengi spáð í hvað trans væri og var orðinn frekar fróður um það allt saman. Svo einn morgun- inn í sögutíma í VMA, sem ég var augljóslega ekki mikið að fylgj- ast með, poppaði þetta allt í einu upp í hausnum á mér. Að ég væri sennilega bara ekki kvenkyns. Út frá því fór ég að láta fólk vita að ég ætlaði að prófa mig áfram og reyna að finna mig. Ég byrjaði að klæða mig frekar karlmannlega, hætti að reyna að passa í eitthvert norm og var bara ég,“ segir Henrý og held- ur áfram: „Það liðu ekki margar vik- ur af þessari tilraunastarfsemi þar til ég áttaði mig á að það gladdi mig vandræðalega mik- ið þegar fólk „ruglaðist“ og not- aði karlkyns fornöfn og karlkyns lýsingarorð yfir mig. Ég fór svo á mannanafnanefndarsíðuna og skrollaði þar þangað til ég fann nafn sem ég tengdi við.“ Kom út sem transmaður Tveimur til þremur mánuðum seinna ákvað Henrý að koma út úr skápnum sem transmaður. „Ég boðaði mömmu á kaffihús,“ segir Henrý og hlær. „Ég vildi ná henni í einrúmi. Mömmu grun- aði að ég ætlaði að segja henni eitthvað, maður boðar ekki aðra á kaffihús sí svona. Það fyrsta sem hún spurði eftir að ég kom út sem trans var: „Þarftu ekki að prófa að vera með stelpum fyrst?“ Ég svar- aði því neitandi og sagði henni að það virkaði ekki svoleiðis. Ég út- skýrði þetta betur fyrir henni, að kyn og kynhneigð séu ekki sam- tengd. Við erum og höfum alltaf verið rosalega góðir vinir. Ég er langyngstur af fimm systkinum og við vorum aðeins tvö í langan tíma.“ Pabbi lengur að samþykkja Faðir Henrýs Steins var lengi að taka hann í sátt eftir að hann kom út úr skápnum. „Ég held hann PIZZERIA DALVEGI 2, 201 KÓPAVOGI DALSHRAUNI 13, 220 HAFNARFIRÐI Það hafa verið fjölskylduerjur á milli fólks út af þessu Föðurhlutverkið, fjölmiðlafárið og fordómarnir Guðrún Ósk Guðjónsdóttir gudrunosk@dv.is Fyrsti transmaðurinn Henrý Steinn er fyrsti transmaðurinn á Íslandi til að vera óléttur í kynleiðréttingarferli. Mynd: Hanna/DV

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.