Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.2019, Síða 54

Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.2019, Síða 54
54 FÓKUS - VIÐTAL 22. mars 2019 sé búinn að átta sig á því að það er annaðhvort að samþykkja mig eða það slitni upp úr sambandi okk- ar. Nú er ég kominn með barn svo það er aðeins meira í húfi, og ég er einkabarnið hans. Pabbi er að reyna og hann hefur bætt sig hell- ing,“ segir Henrý. Þeir feðgar búa saman og seg- ir Henrý það hjálpa. „Með því að búa hjá honum er ég að bjóða honum upp á að kynnast mér og þessu betur. Þá þarf hann að um- gangast mig á hverjum degi, frekar en til dæmis að hringja einu sinni í viku.“ Sjálfstraustið jókst Eftir að Henrý kom út úr skápnum sem trans fór hann að nota karl- kyns fornöfn. Aðspurður hvort það hafi verið erfitt fyrir fólk í kring- um hann að nota rétt fornöfn fyrir hann svarar Henrý játandi. „Já, það var erfitt fyrir mig líka,“ segir Henrý og brosir. „Þetta voru viðbrigði fyrst. Það var tímabil þar sem ég hreinlega forðaðist að nota fornöfn. Mér fannst það eitt- hvað skrýtið. En svo fór þetta að passa. Ég áttaði mig líka á því að þegar aðrir notuðu rétt fornöfn jókst sjálfstraustið heilmikið. Þess vegna fattaði ég að þetta passaði vel. Mest svekkjandi var þegar ein- hver notaði rétt fornafn og leiðrétti sig svo og notaði þá rangt fornafn,“ segir Henrý og hlær. Óléttur transmaður Henrý Steinn er fyrsti transmaður- inn sem verður óléttur í kynleið- réttingarferli. Hann var tiltölulega nýbyrjaður í kynleiðréttingarferl- inu þegar í ljós kom að hann gekk með barn undir belti. „Ég var svolítið smeykur við það að láta transteymið vita að ég væri óléttur. En það gekk vel. Ég tók pásu frá viðtölum hjá tran- steyminu á meðan ég var óléttur og meðan dóttir mín var á brjósti. Þegar ég hætti með hana á brjósti fór ferlið aftur í gang,“ segir Henrý. Henrý var með dóttur sína á brjósti í mánuð. „Ég held að það hafi verið stressið í kringum nafna- veisluna sem gerði það að verkum að ég hætti með hana á brjósti. Ég var að hugsa hvernig ég ætti að fara að þessu á almannafæri. Mér fannst það ekki þægileg tilhugsun. Mér fannst líka brjóstagjöf ekki vera þessi dans á rósum sem allir tala um. Þetta var erfitt fyrir mig, andlega og líkamlega. Meira stress en gleði. Það eru til vísindamenn sem sérhæfa sig í að búa til full- komna næringu fyrir ungbörn. Af hverju ekki að nýta sér það?“ segir Henrý og bætir hlæjandi við: „Ekki allir geta sagt að pabbi sinn hafi verið með sig á brjósti.“ Fæðingardeildin Henrý átti dóttur sína, Védísi, þann 13. apríl 2016. Til að búa sig undir fæðinguna gekk Henrý í Facebook-hóp fyrir transmenn sem eru, hafa verið eða vilja verða barnshafandi. „Frá meðlimum hópsins fékk ég þá hugmynd að skrifa efst í fæðingarskýrsluna mína: „Ég heiti Henrý Steinn og nota karl- kyns fornöfn. Ég vil biðja ykkur að virða það.“ Ég gerði það og svo var mamma mín viðstödd fæðinguna. Hún sagðist ætla að passa upp á þetta og að ég ætti ekki að hafa áhyggjur af neinu nema að fæða,“ segir Henrý og hlær. „Mamma hefur verið stoð mín og stytta. En fyrir utan fæðinguna sjálfa þá var þetta allt mjög auð- velt.“ Henrý Steinn og barnsfað- ir hans hættu saman stuttu eftir fæðingu dóttur þeirra. Þeir ákváðu að búa saman fyrstu mánuðina í lífi Védísar svo að þeir gætu notið þess dýrmæta tíma með henni. Hann segir það ekki hafa ver- ið skrýtið að búa saman eftir sam- bandsslitin. „Við höfum alltaf ver- ið góðir vinir.“ Sviðsljósið Þegar Henrý Steinn var óléttur kom hann fram í mörgum viðtöl- um á Íslandi, meðal annars við DV og Gay Iceland. Gay Iceland er al- þjóðlegur fjölmiðill um hinsegin menningu á Íslandi. Viðtalið birt- ist því á ensku og fljótlega fóru er- lendir miðlar að veita Henrý og sögu hans áhuga. Í kjölfarið fór Henrý að sjá fréttir um sig á mörg- um erlendum fjölmiðlum, eins og Daily Mail. www.gilbert.is VELDU ÚR MEÐ SÁL 101 ART DECO „Það eru ótrúlegustu hlutir sem manni hefði ekki dottið í hug að myndu gleðja mann Óléttur Henrý Steinn á síðustu metrum meðgöngunnar. Mynd úr einkasafni. Stoltur pabbi Mynd úr einkasafni. Henrý Steinn og Védís

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.