Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.02.2005, Page 8

Tímarit Máls og menningar - 01.02.2005, Page 8
Linda Vilhjálmsdóttir Linda Vilhjálmsdóttir hlaut Ljóðstaf Jóns úr Vör fyrir ljóðið „niður“ þann 21. janúar sl. og er hún fyrsta konan sem hlýtur þessi virðulegu ljóðaverðlaun. Hún hlaut einnig viðurkenningu fyrir seinna ljóðið hér að framan, „Sónata fyrir for- ynju og fylgirödd". Örsögusamkeppni MENOR og Tímarits Máls og menningar Menningarsamtök Norðlendinga, MENOR, efna til samkeppni um örsögur í vetur í samstarfi við Tímarit Máls og menning- ar. Örsögur eru nefndar örstuttar smásögur, oft með ljóðrænu ívafi. Þátttaka er heimil fólki á öllum aldri og alls staðar á land- inu. Skilafrestur er til 1. maí næstkomandi. Þriggja manna dóm- nefnd velur þá þrjár bestu sögurnar sem hljóta vegleg bókaverð- laun. Sögurnar á að senda undir dulnefni til: MENOR / Pósthólf 384 / 602 Akureyri merktar „Örsögukeppni MENOR og Tímarits Máls og menningar 2005“. í lokuðu umslagi með sögunni skal fylgja nafn höfundar, heimilisfang og símanúmer. Umslagið skal merkt með dulnefni höfundar. Aðeins verða opnuð umslög verð- launahöfunda. MENOR stóð í fyrsta skipti fyrir keppni á sviði ritaðs máls vet- urinn 1986-87 þegar félagið og RÚVAK efndu til samkeppni um ljóð og smásögur. Valin voru fimm ljóð og jafnmargar smásögur til flutnings í svæðisútvarpinu. 1989 hófst samstarf milli MENOR og dagblaðsins Dags á Akureyri um Ijóða- og smásagnasam- keppni, og hefur slík keppni verið árviss viðburður síðan. Úrval þessara ljóða og sagna var gefið út á bók á 20 ára afmæli MENOR árið 2002. MENOR hefur líka verið í samstarfi við DV og tímaritið Heima er best, og samkeppni um ritun einþáttunga fór fram árin 1998-2000 í samstarfi við Leikfélag Akureyrar. Voru verðlaunaþættirnir settir á svið á Akureyri árið 2003. 6 TMM 2005 • 1
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.