Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.02.2005, Síða 96

Tímarit Máls og menningar - 01.02.2005, Síða 96
Menningarvettvangurinn alla flokka þess og nefnir fjölmörg rit sem dæmi um þá. Þá fjallar hann um helstu heimildir þeirra sem skrifa sjálfsbókmenntir, enn með mörgum dæmum um ólíkar heimildir og meðferð þeirra. í kaflanum „Sögur í samtímanum“ fer Sigurður Gylfi ítarlega ofan í fyrsta bindið af ævisögu Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar um Halldór Laxness, viðbrögð við því með og á móti í töluðu og rituðu máli. Er óhætt að segja að Sig- urður Gylfi velti við hverjum einasta steini í þessu máli og gái vandlega undir hann. Skemmtilegast er ímyndað viðtal höfundar við Hannes (bls. 289-291) þar sem Sigurður sýnir mögulega málsvörn Hannesar. í viðauka við bókina er afar gagnleg skrá um útgefnar sjálfsævisögur, endurminningarit og samtalsbækur frá upphafi til 2004 sem Monika Magnúsdóttir tók saman. Róbert H. Haraldsson heimspekingur gaf út á ensku bók um leikritið Fjand- mann fólksins eftir Henrik Ibsen undir heitinu Plotting Against a Lie (Háskóla- útgáfan). Þar skyggnist Róbert ofan í textann og spyr einkum um afstöðu Ibsens til aðalpersónunnar, Stockmanns læknis. Er læknirinn málpípa höfundar síns? Vill Ibsen að við tökum hann alvarlega eða reynir hann að afhjúpa þversagnir í persónu sinni? Mikið hefur verið skrifað um þessa merkilegu persónu síðan hún var sköpuð fyrir meira en 120 árum og Róbert spyr óþægilegra spurninga um persónuleika læknisins og hugsanlega bresti hans. En þegar allt kemur heim og saman verður þetta traust varnarrit fyrir lækninn og höfund hans. Meðal ljóðabóka síðasta árs ber fyrst að nefna Fiskar hafa enga rödd eftir Vil- borgu Dagbjartsdóttur (JPV útgáfa). Þar má til dæmis finna ljóðin sem birtust í 1. heffi Tímaritsins 2004 sem löngu er ófáanlegt. Aftan við frumsömdu ljóðin eru þýðingar á þremur ljóðum eftir Sylviu Plath. Ekki láir við stein heitir þrettánda ljóðabók Baldurs Óskarssonar sem Orms- tunga gaf út, mikil bók með yfir hundrað frumsömdum og þýddum ljóðum sem aðdáendur hans fagna. Lesarkir landsins effir Sigurlaug Elíasson (Mál og menn- ing) munu líka gleðja aðdáendur hans. Heimsósómakvæði Sigfúsar Bjartmarssonar í bókinni Andrœði (Bjartur) vöktu mikla lukku meðal róttæklinga af öllu tagi enda snilldarlega gerð. Bókaútgáfan Salka kom sterkt inn sem ljóðabókaútgefandi; þaðan komu Mót- mceli með þátttöku, bítsaga eftir Kristian Guttesen, Augað í steininum eftir Þóru Ingimarsdóttur, Á leiðinni eftir Sigurð Skúlason og í Ijós eftir Hallgerði Gísla- dóttur. I hinni síðastnefndu er þessi góða staka undir heitinu „Gamlar konur eru umfram allt varasamar þegar þær þykjast vera veikar“: Eftir að hafa gamnað sér með úlfinum át amma Rauðhettu þambaði vínið og bruddi kökurnar Bláin heitir blá bók með úrvalsljóðum Steingerðar Guðmundsdóttur (1912- 1999, JPV útgáfa), Formála skrifar Halla Kjartansdóttir en Steingerður hafði sjálf gengið frá úrvalinu áður en hún lést. „Ljóð hennar bera vott um viðkvæma lund, 94 TMM 2005 ■ 1
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.