Tímarit Máls og menningar - 01.02.2005, Side 43
Listin gerir okkur að betri manneskjum
Hvernig klœddirðu þig?
„Eins og vanalega - í svart!“
Náðirðu tökum á norskunni strax?
„Nei, það tók ár. Fyrsta árið talaði ég ensku meðan ég var að ná norsk-
unni, eftir það talaði ég norsku. Mér fannst erfitt að tjá mig svo vel væri,
mér leið eins og fimm ára krakka, en ég gafst ekki upp.
Þegar ég var að leita að peningum í Tónverkamiðstöðina hérna heima
áður en ég fór utan varð ég ánægð ef ég fékk fímmtíu þúsund kall, en
þarna úti fór ég ekki af stað sjálf ef um var að ræða minna en milljón
íslenskra króna. Annað sáu aðrir starfsmenn um. Líkurnar urðu að vera
góðar á háum fjárhæðum til að ég færi sjálf af stað. Fyrstu árin lagði ég
áherslu á að endurvinna traust hjá gömlum styrktaraðilum, jafnframt því
sem ég leitaði á ný mið. Þessi þáttur starfsins fannst mér afskaplega erf-
iður, allan tímann.“
Varstu þá búin að fá nóg þegar þú hættir?
„Já og nei. Þó svo að ég hafi verið komin með ótímabundinn samning,
ætlaði ég mér aldrei að verða ellidauð í Bergen!
Afhverju hœttirðu?
„Við þeirri spurningu er ekki til neitt einfalt svar,“ segir Bella og stynur
létt.
„Fáeinir óánægðir starfsmenn gerðu nafnlausa árás á mig úr launsátri.
Þeir fengu í lið með sér blaðamann og dagblað í Bergen, sem tilbúið var
til að íjalla um þetta mál án þess nokkurntímann að geta heimilda. Fjöl-
margir aðrir fjölmiðlar í Noregi voru ekki vandari að virðingu sinni en
svo að þeir endurtóku „fréttirnar" án þess að sannreyna heimildir.
Þó að árásin beindist fyrst og fremst að mér og formanni stjórnar-
innar, hafði hún veruleg áhrif á allan starfshópinn. Þeir sem eitthvað vita
um hópfyrirbæri geta ímyndað sér hvaða áhrif árás fáeinna ónafn-
greindra starfsfélaga og óprúttinna blaðamanna getur haft á hópinn sem
heild. Við þetta bættist svo að þeim sem var falið að leysa vandamál hóps-
ins brást bogalistin og þeirra starf gerði illt verra. Málin þróuðust með
þeim hætti að ég sá mér einskis annars úrkosti en að segja upp stöðu
minni.“
Vissirðu ekki hver hafði staðið fyrir árásinni?
„Jú ég fór nærri um það
Hvað voruð þið mörg?
„Það voru í kringum tíu fastráðnir allt árið, en á álagstíma bættust á
annað hundrað manns við. Ég hef ekki trú á að þetta hefði gerst á íslandi,
jafnvei ekki í Osló. Bergen er sérstök.
Tímabilið frá því að þetta byrjaði og þar til ég tók ákvörðun um að
TMM 2005 • 1
41