Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.02.2005, Page 79

Tímarit Máls og menningar - 01.02.2005, Page 79
Glæpur, refsing, Abyrgð Þessar þrjár sögur fjalla um glæpi í samfélagslegu samhengi. Hver á sinn hátt gera þær tilkall til þess að vera innlegg í íslenska samfélagsum- ræðu. Hvergi er þetta þó jafn skýrt og í sögu Þráins sem fær einkunnar- orð sín frá Georg Orwell, „In a time of universal deceit, telling the truth becomes a revolutionary act.“ Sú gagnrýni hefur stundum heyrst á liðnum árum að íslenskir höfundar fjalli ekki lengur um samfélagið sem þeir búa í heldur séu þeir uppteknir af fortíðinni, hvort sem er í sögu- legum skáldsögum eða minningum úr eigin barnæsku. Ég held raunar að þessi gagnrýni byggi á býsna grunnum lestri á verkum margra okkar fremstu höfunda, þó má sjá í bókum haustsins tilhneigingu til þess að takast á við samtímann og samfélagsþróun hans á milliliðalausan hátt. Hugtök eins og boðskapur og erindi sem hafa verið feimnismál í íslenskum bókmenntum frá því í upphafi níunda áratugarins eru aftur á dagskrá. Þetta má sjá í tveimur nýjum skáldsögum sem fjalla um glæpi frá allt öðru sjónarhorni en sögur þeirra Stefáns Mána og Þráins. Þetta eru ann- ars vegar skáldsaga Braga Ólafssonar, Samkvœmisleikir, og hins vegar saga Kristínar Ómarsdóttur, Hér. Þessar sögur eiga það sameiginlegt að nálg- ast glæpi fremur út frá siðferðislegum og tilvistarlegum spurningum en samfélagslegum. Skáldsaga Braga Ólafssonar var nokkuð áberandi fyrir jólin sem sagan sem var ekki tilnefnd til íslensku bókmenntaverðlaunanna. Margir þeirra sem tjáðu sig um tilnefningarnar, ég sjálfur meðtalinn, lýstu furðu sinni á því að bókin var ekki í hópi hinna útvöldu. Afleiðingin var sú að hún fékk sennilega meiri athygli en þær bækur sem voru tilnefndar samanlagt - tilnefningar geta verið tvíeggjað sverð. Samkvæmisleikir er saga af þrítugum manni, prentnemanum Frið- bert, hún hefst í þrítugsafmælinu hans og síðan eru raktir atburðir sem gerast bæði fyrir þetta afmæli, í því og eftir það. Þetta eru örlagaríkir atburðir bæði fyrir Friðbert og fólkið í kringum hann. Yfirborð sögunnar er lygnt framanaf og andrúmsloftið minnir oft á fyrri sögur Braga þar sem spennuþrungið tíðindaleysi ríkir. En það er ekki allt sem sýnist og áður en varir fer sagan að snúast um glæpi og refsingar, hversdagsfólk reynist vera fórnarlömb og ofbeldismenn, og spurningar um ábyrgð og sekt verða áleitnar. Þetta er saga sem kemur manni á óvart næstum því á hverri síðu. Eins og áður í skáldsögum Braga þá getur maður hæglega lent í vandræðum með það hvenær maður á að hlæja og hvenær að gráta. Sögumanni tekst oft að plata lesandann, láta hann hlæja á vitlausum stöðum og skammast sín svo á eftir, persónur sem virðast vænstu skinn og maður fylgist með TMM 2005 • 1 77
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.