Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.02.2005, Side 15

Tímarit Máls og menningar - 01.02.2005, Side 15
SÖGULJÖÐ BORGARINNAR Þegar Goodmann þarf að heimsækja Lundúnir verður vart við sömu hugsun; þ.e. hvernig einstaklingurinn verður að engu í slíku risamengi: „fslendingi hættir því öðrum fremur við því í Lundúnum að fínnast hann vera - ekki títuprjónn í sátu - heldur títuprjónn í heyhlöðu á höfuðbóli." (127) Líkingarnar eru sóttar í íslenskan veruleika, kolmó- rauð fljót eða heyhlöður á höfuðbólum. Borgarlýsingar eru yfirþyrmandi í Húsinu við Norðurá en sveitinni er lýst á annan hátt: „Það var eins og ekkert ilt myndi geta átt þarna heima og ekkert ilt gæti gerst þar.“ (13) En þrátt fyrir yfirborðið eru þarna framdir skelfilegir glæpir. Samfélagið í landslaginu reynist hreint ekki blíðlegt. Dregin er upp mynd af kyrrstæðu samfélagi þar sem ástamálin lúta ströngum reglum. Jón, faðir Guðrúnar og Goodmanns, vill giffa dóttur sína hinum viðbjóðslega Smith majór en hún ann Þorsteini vinnumanni hugástum og vill giftast honum. Jón telur að hann eigi að ráða, þess vegna bendir hann lögreglunni á Þorstein þegar majórinn finnst myrtur. Guðrún sendir þá bróður sínum bréf til New York. Bréfið vekur minn- ingar hjá Goodmann: En nú kom þetta bréf frá systur hans alveg eins og þjófur á nóttu og rifjaði upp alt þetta og byggði brú á milli Guðmundar Jónssonar frá Halastaðakoti og leyni- lögreglumannsins Goodmanns Johnsons. (129) Þannig er reist brú frá íslenska sveitasamfélaginu yfir í nýjan heim. Gamli heimurinn er tákngerður í Guðmundi Jónssyni frá Halastaðakoti sem bjó í sveitinni í gamla daga, en sá nýi í Goodmann Johnson sem býr í nýju landi og nýjum heimi - borginni. Hugmyndir manna um sveit og borg mótast iðulega af andstæðum, þar sem sveitin er tengd einfaldleika (einnig fáfræði), náttúru og fortíð. Borgin er þá tengd lærdómi og samskiptum (en einnig hávaða og metn- aði). Þessar andstæður eru grundvallaratriði í meðvitund oldcar um eigin reynslu og einnig þegar skýra þarf nútímasamfélag.14 Þær birtast kiárlega í samfélagsmynd Hússins við Norðurá. En nýi heimurinn sem þar er boð- aður er þó eJdci Reykjavík. Reykjavík er ennþá hluti íslenska sveitasamfélagsins þar sem færustu lögreglumennirnir fást við að leita uppi skóhlífaþjófa. Nýi heimurinn er Ameríka og New York; ný borg í nýju landi. Sveitin er kyrrstæð og reglu- bundin; þar fær fólk ekki að fylgja löngunum sínum og þrám. Borgin og nútíminn eru öðruvísi; þar er fólk „þjótandi sitt í hvora áttina, alt á harða spretti.“ (125) Til þess að smíða brúna þarna á milli beitir höfundur satír- ísku háði og tekur í þjónustu sína nýja bókmenntagrein; glæpasöguna. TMM 2005 • 1 13
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.