Tímarit Máls og menningar - 01.02.2005, Page 34
Listin gerir okkur
að betri manneskjum
Viðtal við Bergljótu Jónsdóttur
Hún heitir Bergljót Jónsdóttir en vinir hennar kalla hana Bellu. Hún er
þjóðþekkt kona í Noregi þó að hún hafi ekki búið þar nema tæpan ára-
tug, vinsæll fréttamatur og álitsgjafi, og við og við hefur hún líka verið í
fréttum hér heima á íslandi, einkum þegar frændum okkar Norð-
mönnum hefur blöskrað róttækni hennar og framkvæmdagleði.
Bella tók árið 1995 við gróinni listahátíð sem haldin er árlega í hinni
fornfrægu verslunarborg Bergen á vesturströnd landsins og olli tölu-
verðum usla þar þegar hún braut gamlar venjur sem flestir bæjarbúar
vildu ólmir halda í og sleppti hefðbundnum „þjóðsöng“ Bergenarbúa eitt
árið. Þegar TMM veiddi Bergljótu í viðtal í stuttri heimsókn hennar til
íslands um jólin var hún fyrst spurð að því hvernig það mál hefði eigin-
lega verið vaxið?
„Það merkilega var að fólk almennt fór ekki að taka eftir mér og því
sem ég var að gera íyrr en „málið með sönginn“ kom upp,“ byrjar hún
útskýringu sína. „Þetta gerðist á þriðju hátíðinni minni, árið 1998, á þeim
fyrri tveimur hafði Bergenarsöngurinn verið á sínum stað á opnuninni -
og reyndar alltaf síðan. En þetta ákveðna ár voru hundrað ár liðin frá því
að fyrsta listahátíðin, í þeirri mynd sem við þekkjum þær nú á dögum,
var haldin í Bergen. Þá hátíð hafði tónskáldið Edvard Grieg skipulagt og
hún varð mikil tónlistarhátíð - meðal annars var mikið spilað af nýrri
norskri tónlist, miklu meira en gerast mundi í dag. Þegar ég fór að skoða
prógrammið frá 1898 og lesa um baráttu Griegs á þessu tímabili þá ákvað
ég að reyna að endurvekja anda hans - hugsjónina á bak við hátíðina
hans: að fá úrvalsflytjendur til að leika nýja norska tónlist. En mig lang-
aði líka til að gefa smá innsýn inn í hljóðheiminn sem var skapaður þar
og þá. Það varð úr að ég ákvað að nota opnunarhátíðina til að tengja
okkur hundrað ár til baka en sjálfa hátíðina til að halda áfram inn í fram-
tíðina. Einföld og sjálfsögð hugmynd - í fyrstu!
Opnunarhátíðin er oftast haldin í Grieghallen og er aldrei lengri en
32
TMM 2005 • 1