Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.02.2005, Page 38

Tímarit Máls og menningar - 01.02.2005, Page 38
Bergljót Jónsdóttir Hátíðin stendur aðeins í tólf daga í maí og það þarf að koma fyrir mörgum atburðum á dag. Undirbúningsvinnan er mikil en fáir verða varir við hana, svo kemur hátíðin eiginlega eins og gos - sem vonandi skilur eftir sig eitthvað betra en brunasár! Þegar ég kom að hátíðinni fannst mér hún of lokuð,“ heldur Bergljót áfram. „Hún hafði orð á sér fyrir að vera aðeins fyrir hina fáu útvöldu, þá sem voru svo heppnir að geta útvegað sér miða eða var boðið. Þetta voru að vísu bara sögusagnir, oftast voru laus sæti á viðburðunum, en þær sýndu samt að þröskuldurinn inn á hátíðina var orðinn of hár. Hátíðin rekur samfellda sögu sína aftur til ársins 1953 og í upphafi var hún „eign“ bæjarbúa. í einu af dagblöðunum það ár er fólk hvatt til að þvo glugga og hreinsa í görðunum sínum áður en hátíðin byrji í fyrsta sinn - og þannig var það lengi vel. Á götum úti iðaði allt af lífi, og fólk- inu í bænum fannst, að ég held, að það ætti stærri hlut í henni þá en það átti 1995. Ég ákvað að reyna að færa hátíðina aftur í fyrra horf að þessu leyti, en sem betur fer var ekki nægilegt fjármagn fyrsta árið mitt, 1996, til að kosta stóra útidagskrá. Hefði ég gert þann draum að veruleika hefði öllu rignt beint niður í rennusteininn og listamenn lifað við mikla vos- búð! En síðan hef ég alltaf haft prógramm úti á götu ókeypis og það varð viðameira með hverju ári. Mér finnst nauðsynlegt að koma fólki á óvart í sínu daglega lífi, fá það til að stoppa, líta upp ffá amstri dagsins og brosa. Þetta hefur breytt viðhorfi fólks til hátíðarinnar heilmikið. Eitt árið rigndi allt til helvítis eins og auðvitað hlaut að gerast einhvern tíma í Bergen! Hún er fræg fyrir votviðri og ég passaði alltaf að geta flutt atriðin inn ef nauðsyn krefði. Toppurinn var 2002 þegar ég hélt alla opn- unarhátíðina úti fyrir um tuttugu þúsund manns. Þúsund börn tóku þátt í að undirbúa viðburðinn, Sinfóníuhljómsveitin í Bergen lék og það var frumflutt tónverk sem hundrað barnaskólabörn, bara venjuleg börn, ekki sérstakir tónlistarnemar, höfðu tekið þátt í að semja. Önnur skreyttu allt torgið eða sömdu kammerverk sem frumflutt voru út um allan bæ. 100 tónverk voru frumflutt þann daginn. í opnunarverkinu komu þau hjól- andi inn á torgið og dreifðu sér út um allt, og svo var tónverkið spilað á reiðhjól, blöðrur og slöngur og sinfónísk hljóðfæri líka. Það var alveg frá- bært. Bergenarsöngurinn það árið kom af himnum ofan úr loftbelg! Þennan dag var 25 stiga hiti og sólskin í bænum. Hefði getað verið 5 stiga hiti og rigning. Þetta var einn af hápunktunum í starfinu, en þeir voru margir.“ 36 TMM 2005 • 1
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.