Tímarit Máls og menningar - 01.02.2005, Síða 41
Listin gerir okkur að betri manneskjum
blokkirnar sínar og blýantana á lofti, skuli síðan flakka á milli listahátíða
næstu ár á eftir, en þeir ótalmörgu sem eru líka góðir en komast ekki til
Edinborgar fá færri tækifæri. Það sem gerist því miður of oft er að örfáar
manneskjur fá að velja úr það sem kemst áfram í listaheiminum og hafa
gífurleg völd. Of margir apa eftir þeim. Ég reyndi að forðast heimsóknir
á aðrar listahátíðir og varð upptekin af því að finna efni sem var mjög
gott en ekki komið inn í þessa hringrás. En það er gríðarlega dýrt að vera
einn um að flytja listamenn langt að og margborgar sig að fá þó ekki sé
nema einn samstarfsaðila. Til dæmis greiddi japanska ríkið ferðakostnað
Sankai Juku-hópsins til Evrópu af því honum var boðið bæði til íslands
og Noregs. Það getur verið dýrt að vera sér á parti.“
Nauðsynlegt að taka áhættu
Hvað gerir „góða“ listahátíð?
„Að finna hið erfiða jafnvægi milli hins staðbundna, hins þjóðlega og
hins alþjóðlega,“ segir Bergljót eftir stutta þögn. „Að hlusta á sitt nánasta
umhverfi og taka tillit til þess en horfa um leið út fyrir það. Ef maður
missir tengslin við fólkið sem býr í bænum þá missir maður ansi mikið,
þá fer hátíðin að lifa sínu eigin sjálfmiðaða lífi. Og þannig var hátíðin
orðin að nokkru leyti áður en ég tók við henni. Svo er brýnt að geta með
einhverjum hætti náð að hafa fmgurinn á púlsinum, finna hvar spenn-
andi hlutir eru að gerast og þora að hlusta ekki bara á manninn á götunni
sem vill kannski bara Pavarotti heldur líka á skapandi listamenn og láta
þá gefa tóninn, rífa sig með sér. Þá þarf maður líka að þora að taka við
þeim hugmyndum, leyfa skapandi listamönnum að taka af sér ráðin og
gera það sem þeir vilja. Þora að segja já, taka áhættu, safna peningum í
eitthvað sem maður veit ekki hvernig verður. Út úr þessu getur komið
hörmung - eða eitthvað alveg frábært. Hvort tveggja hefur gerst. Ef við
sem vinnum fyrir listina þorum ekki að taka þessa áhættu þá deyjum við.
Ég var heppin. Af öllu því fjölmarga sem við settum af stað, ein eða í
samvinnu við aðrar stofnanir, var bara eitt sem mistókst alveg.“ Bella
grípur andann á lofti við endurminninguna. „Ég verð að hafa möguleika
til að gefa listamönnum tækifæri til að gera tilraunir og heimild til að
mistakast.“
En nú hefurðu fengið óteljandi tilboð sem þú hefur orðið að hafna -
veistu um eitthvað sem þú sérð eftir að hafa hafnað?
„Það er auðvelt að taka á móti tilboðum og segja þetta vil ég, þetta vil
ég ekki, og það gerði ég helst ekki. Ég las yfir tilboðin sem komu en lagði
TMM 2005 • 1
39