Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.02.2005, Side 51

Tímarit Máls og menningar - 01.02.2005, Side 51
Líf og önd Jón og konan höfðu byrjað að vera saman í grunnskóla. Enn þann dag í dag var samband hennar við hann lengra en samband hennar við manninn. Hún hafði upplifað allt í fyrsta skiptið með Jóni. Hún hafði orðið eitt með Jóni og afraksturinn svaf á milli hennar og mannsins í hjónarúminu. En maðurinn hafði alltaf getað huggað sig við það að þó hann væri númer tvö, þá stæði hann númer eitt framar að öllu leyti. Væri, ef svo mætti segja, númer eitt í gæðaröðinni. En núna, dag- ana áður en númer eitt var jarðaður, fann hann það svo átakanlega að hann var númer tvö. Þegar hann lá einn í hjónarúminu og konan var læst inni á baðherbergi - þá var hann númer tvö. Jón hafði aldrei búið með annarri konu. Að minnsta kosti ekki svo að maðurinn vissi til. Hann var ekki einn af þeim sem kom með nýja og nýja kærustu á pabbahelgarnar. Raunar kom hann ekki einu sinni alltaf sjálfur á pabbahelgarnar. En þegar hann kom horfði hann á fyrrum konu sína með svo ódulinni aðdáun og eff- irsjá að maðurinn fylltist stolti yfir því að eiga hana - og lagði sig fram um að nýta tímann án barnsins sem best. Hann hafði aldrei þorað að orða það, ekki einu sinni innra með sér, en honum fannst það góð tilfinning að hafa eitthvað á sínu valdi sem einhver annar þráði svona heitt. Það var eitthvað frum- mennskt í honum sem naut þess að hafa haft betur í viðureigninni við annað karldýr. Þar skipti engu að konan hafði sagt skilið við Jón áður en hún tók saman við manninn. Hann hafði borið sigur- orð í þeirri baráttu og það var allnokkurs virði. * Hann var bjargarlaus þegar hann sat við hlið hennar á fremsta kirkjubekknum. Þau voru dökkklædd og hún grét hljóðum tárum alla athöfnina meðan hönd hennar lá máttvana í hans. Hún var ekkjan sem sá látni skildi ekki eftir sig. Hann var maðurinn sem hafði dregið ekkjuna á tálar. Maðurinn var hunsaður í erfisdrykkjunni. Gamlir drykkju- bræður hins látna kiöppuðu drengnum á kollinn orðalítið. Konan sat grátbólgin með móður Jóns og foreldrum sínum, sem virtust alsæl að hitta fýrrum tengdafjölskyldu dótturinnar á ný. Maðurinn varpaði öndinni léttar þegar þau komu heim. Nú var TMM 2005 • 1 49
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.