Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.02.2005, Side 102

Tímarit Máls og menningar - 01.02.2005, Side 102
Bókmenntir Kristján Jóhann Jónsson Sá sterkasti og veikasti meðal mannanna Jón Viðar Jónssson: Kaktusblómið og nóttin. Um ævi og skáldskap Jóhanns Sigurjóns- sonar. Bókaútgáfan Hólar, Akureyri, 2004. Kaktusblómið og nóttin eftir Jón Viðar Jónsson er merk bók og mikilvæg. Hún er á engan hátt hefðbundin ævisaga. Þó að Jón Viðar reki ævi Jóhanns Sigurjóns- sonar (1880-1919) frá vöggu til grafar, er engin megináhersla lögð á rás atburð- anna heldur farið fljótt yfir upphaf og endi hinnar stuttu ævi Jóhanns. Sagt er frá samferðamönnum og áhrifavöldum í stuttum, nánast sjálfstæðum köflum og allt er skoðað út frá þeirri miðju sem líf og list Jóhanns er í þessari bók. Átaka- punktar verksins sjást glögglega í byggingu þess þar sem ævisögukaflar, tengdir og skýrðir með túlkun á ritverkum Jóhanns, skiptast á við túlkanir á verkum hans, tengdar og skýrðar af einstökum þáttum ævisögunnar. Þessi skipting er ekki hrein og reglubundin. Kaktusblómið og nóttin fylgir tíma Jóhanns og víkur að bókmenntum og ævisöguatriðum eftir því hvað er á döfinni í lífi hans. Það þýðir að hún er meira en ævisaga. Að drjúgum hluta til er hún bókmenntafræði- legt verk sem fæst við lestur á leikritum hans og ljóðum og skilgreiningu á tíma- bilinu. Bókmenntir Jóhanns eru þannig látnar útskýra sögu hans og saga hans notuð til þess að túlka bókmenntir hans. Jón Viðar Jónsson lýsir því í 33. kafla bókarinnar sem heitir „Kenning Peters Szondi og leikrit Jóhanns“ hvernig fagurfræðileg viðmið grísku leikritaskáldanna eru hætt að standast um aldamótin 1900. Þetta voru frjóir tímar í leikritun. Ibsen (1828-1906), Strindberg (1849-1912) og Tsjekhov (1860-1904) höfðu látið til sín taka í Evrópu. Skáldin voru milli viðmiða, í deiglu sem einkenndist af mikil- vægum breytingum, leit og sálkönnun. Öll verk Jóhanns spegla huglæga reynslu hans sjálfs, átök og baráttu sem jafnframt einkennir nýrómantíska tímabilið kringum aldamótin. Að breyttu breytanda mætti segja það sama um verk Jóns Viðars - allt sem þar er tekið til umræðu varpar einhvers konar ljósi á hinn marg- brotna og dramatíska snilling. Jón Viðar tekur sér stöðu með sínu skáldi, afstaðan til hans er nánast rómantísk á köflum og upphafin. Um þetta mætti nefna ýmis dæmi en skýrt kemur þetta viðhorf meðal annars fram í túlkun á umsögn Jóhanns í bréfi til bróður síns um framtíð fjölskyldunnar. Jóhann segir í bréfinu: Ég óttast þennan blinda leik sem heitir gæfa og ógæfa. Ég hefi einhverja ónota tilfinning af því að okkar ætt sé hamingjusnauð en ekki er vert að gera sér grýlu úr því. (Bls. 22) Jón Viðar spyr hvað í ósköpunum Jóhann geti hafa haft fyrir sér í þessu og hvort hann hafi séð teikn á himnum. Síðan svarar hann spurningu sinni og segir: „Auðvitað sá skáldið lengra en aðrir“. (22) 100 TMM 2005 • 1
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.