Tímarit Máls og menningar - 01.02.2006, Blaðsíða 4
Frá ritstjóra
Gleðilegt ár, kæru lesendur, og kærar þakkir fyrir það gamla. Allra fyrst vil ég taka
fram að grein Guðmundar Andra Thorssonar í fjórða hefti 2005, „Skáld“, var
samin og birt í tilefni áttræðisafmælis Thors Vilhjálmssonar, eins og glöggir les-
endur hafa eflaust áttað sig á.
Síðasta hefti fór vel í lesendur. Munaði þar mikið um skemmtilega grein Unu
Margrétar Jónsdóttur um dónalegar vísur sem krakkar kyrja þegar fullorðnir
heyra ekki til, viðtal Jóns Yngva við Sjón í tilefni af Bókmenntaverðlaunum Norður-
landa, smásögu Braga Ólafssonar sem gladdi hans fjölmörgu aðdáendur og öll
ljóðin. Til dæmis sagði Heimir Pálsson í bréfi: „Og þó ekki væri annað en þessi eina
síða eftir Hauk Ingvarsson væri ég sæll.“ Umsagnir um bækur voru margar og
reynast afskaplega þakklátt efni. Að vísu sagðist Eiríkur Örn Norðdahl hafa fengið
bágt fyrir sinn ritdóm um Rigningu í nóvember eftir Auði Ólafsdóttur - hann fékk
að heyra að maður mætti ekki líkja skáldsögu við brjóst - en mun fleiri höfðu orð
á að þetta væri frumleg og í þessu tilviki vel viðeigandi samlíking.
Guðbergur Bergsson átti líka umsögn í síðasta hefti, um Múrinn hans Huldars
Breiðfjörð. Þegar hann var búinn að renna yfir heftið skrifaði hann ritstjóra
elskulegt bréf þar sem sagði m.a.: „Efnið er stundum í ætt við heima er best hvað
andann áhrærir. Það er að segja, í því er lítil löngun til að fara langt út fyrir girð-
inguna. Það er vegna þess að flestum finnst að þótt hún sé úr gaddavír - og
kannski einmitt af þeirri mjúksáru ástæðu - munu örugglega hanga á henni
hagalagðar sem hægt verði að nota í prjónles sem veldur ekki stjórnlausum kláða
heldur mátulegum og gerir okkur lambtrygg fyrir bragðið, að þjóð með stóra
drauma um reyfið mikla sem stenst örugglega samanburð við hæstu heimsins
ský.“
Sigrún Davíðsdóttir skrifaði langa umsögn um heftið sem birt er í heild á
heimasíðu TMM (www.tmm.is). Þar sagði hún m.a.: „Auðvitað naut ég þess í botn
að lesa hálmstráavangaveltur Ingibjargar Haraldsdóttur [...] hún fléttar svo
skemmtilega saman eigin upplifun og hugleiðingum annarra. [...] Áhugavert að
sjáhvað Mikines hefur skrifað um íslenska málara [...]. Fékk mig til að hugsa aftur
um þessa málara og hugleiða þá útfrá því sem hann segir. Ég hef aldrei verið hrifin
af Scheving en ætla að endurskoða þá afstöðu mína [...] fannst ég alltaf merjast
niður í ekki neitt í öllu öldurótinu og verða að engu frammi fyrir þessum ofur-
hetjum hafsins. Nú þegar ég hvíli tryggilega í faðmi fjarlægðarinnar (umorðað úr
grein Ingibjargar) þá hef ég meiri burði til að njóta Schevings, og hlakka mikið til
að heimsækja hann á Listasafni íslands eftir jól.“
. TMM þakkar íslandsbanka innilega fyrir að auglýsa í öllum heftum síðasta árs
og stuðla að útgáfunni þar með, og býður Landsbankann velkominn inn á aðra
kápusíðu!
Silja Aðalsteinsdóttir
2
TMM 2006 • 1