Tímarit Máls og menningar - 01.02.2006, Síða 20
Böðvar Guðmundsson
ensee, sem reyndar hafði áður barnað Karólínu Matthildi drottningu.
Svo mjög elnaði ærusta Kristjáns VII að hann var að lokum byrgður
inni og lauk ævi sinni við harmkvæli. Það hefur verið sagt að vitsmunir
og manngæska hafi löngum verið fylgispakari þeim Danakonungum er
báru Friðriksnafnið, en ekki þori ég að fullyrða neitt um það.
Þrátt fyrir ærustuna gat Kristján VII son við Karólínu Matthildi, sá
var Friðrik VI og ekki var hann farsæll stjórnandi, hann missti Noreg í
hendur Svía og varð sjálfur gjaldþrota svo hirðin varð að lifa á bónbjörg-
um um skeið. Friðrik VI átti mörg börn bæði með drottningu sinni og
ýmsum frillum en allir synir hans dóu í frumbernsku.
Svo sem ljóst má vera af ofanskráðu þá hafði súrnað gróflega í smjör-
inu hvað varðaði vitsmuni og giftu þeirra konunga sem borið höfðu
konungsnafn yfir Danmörku og Noregi á umliðnum öldum og var það
margra rómur að mjög væri nú gengið á náttúrulegan vitsmunaforða
Aldinborgarættar. Þá var arfaprins í Danmörku Friðrik Friðriksson,
bróðir hins örvita konungs, Kristjáns VII. Kona hans var Soffía Friðrika
af Mikluborg, vinsæl kona af allri alþýðu en ekki smáfríð. Friðrik arfa-
prins sat löngum í Kristjánsborgarhöll, þar sem nú er þinghús Dana, og
þótti vitgrannur en þó ekki vitlaus sem bróðir hans. Hann líktist í sjón
frændum sínum, kjálkamikill og neflangur og uppmjótt höfuðið. Hann
missti snemma bæði hár og tennur. Honum var fenginn til ráðgjafar
Friðrik frá Blýkeri, sérdeilis fríður og lögfróður yngismaður af prúss-
neskum sveitaaðli. Þau sátu löngum á tali, Soffía Friðrika og Friðrik frá
Blýkeri og þótti báðum nokkuð gaman. Tveimur vetrum eftir að Friðrik
krónprins, síðar Friðrik VI, var tekinn fyrir gafl lagðist Soffía Friðrika
af Mikluborg á sæng og fæddi mikinn og fríðan svein. Hann var vatni
ausinn og nefndur Kristján Friðrik. Hann óx upp við gott atlæti og öðl-
aðist þegar á unga aldri mikinn lærdóm og þekkingu og var svo fríður
að þótti ganga kraftaverki næst af svo ófríðu foreldri. Þá sögðu margir
að ekki væri vit og fríðleikur með öllu á bak og burt úr Aldinborgarætt,
en þeir voru einnig nokkrir er tautuðu í barm sinn að fleiri væru Frið-
rikarnir í Kristjánsborgarhöll en Friðrik arfaprins. Kristján Friðrik varð
brátt rómaður fyrir víðsýni og gáfur og eftirsóttur í hóp háfleygustu
andans manna í Danmörku.
Er Kristján Friðrik Friðriksson hafði einn vetur um tvítugt dó Friðrik
arfaprins, faðir hans. Þá tók Kristján við herstjórnarvöldum í ríkinu.
Hugur hans dvaldi þó löngum við vísindi og fagrar íþróttir og honum
leiddist ákaflega hermennska. Það var honum þung raun að sitja í tvo
vetur á útmörkum ríkisins suður í Holsteini, fjarri viturlegum umræð-
um og vísdómsbókum. Það var honum því stór léttir er hann gat dregið
18
TMM 2006 • 1