Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.02.2006, Page 27

Tímarit Máls og menningar - 01.02.2006, Page 27
Þáttur af Friðriki VII Svo frábitið sem göfugmennið Kristján Friðriksson, faðir hans, var konungdómi þá hlaut hann samt að taka við sprota og krúnu þegar Frið- rik VI dó sonalaus 25 vetrum eftir að Svíar hrifsuðu til sín Noreg. Krist- ján var hinn áttundi konungur í Danmörku með því nafni. Á stjórnarár- um hans komu fleiri brestir í hið forna ríki frú Margrétar í Kalmar og Kristjáns Þiðrikssonar og var þó ekki honum um að kenna. í hertoga- dæmunum Slésvík og Holsteini hófust nú þær raddir sem afneituðu öllu sem danskt var og gerðu kröfur um aukið sjálfræði og réru þýskir undir, og norðan úr Dumbshafi barst mjó rödd er sagði íslendingum best að standa á eigin fótum. Friðrik Kristjánsson hafði lengi setið í Friðriksíuborg er faðir hans tók við konungdómi. Er Kristján VIII hafði verið konungur í þrjá vetur lét hann kalla Friðrik til sín. En það var ekki oft að fundum þeirra feðga bar saman. „Frændi,“ mælti konungur þá, „lengi hefur verið fátt í vorri ræðu og er mál að linni. Vita megið þér að eftir vorn dag takið þér við sprota og krúnu í Danmörku, og þó að annar starfi kynni að vera yður hentugri, þá verður svo að vera. Megið þér og vita að ekki fýsti oss í konungdóm í Danmörku, en enginn má sköpum renna og síst konungar. Það er því vort heilræði að þér kynnið yður undir vorri handleiðslu allt sem að konungdómi víkur og hvað má gagnast vorum þegnum. Viljum vér fyrst fá yður gagnlegt kvonfang, því ekki má konungur landi stýra án drottn- ingar. Er það nú vort boð að þér gangið að eiga Karlottu Maríönnu af Mikluborg." Við þessa ræðu konungsins setti mikinn hroll að Friðriki prinsi og mátti hann engin andsvör veita. í öngum sínum skundaði hann á fund vinar síns Karls berðlings. Þá hagaði svo til að ein þeirra kvenna, er Karli berðlingi unnu og hét Lofísa Rasmussen, hafði þá nýverið fætt svein- barn og kennt honum. Ekki vildi Karl berðlingur ganga að eiga Lofísu en gekkst við faðerni drengsins. Lofísa var ættlaus, hún var barn þjón- ustupíku er ekki vissi gjörla hvert væri faðerni stúlkunnar. Lofísa hafði snemma sýnt dansfimi umfram aðrar meyjar, hún var kölluð Lofísa lip- urtá og ráðin til að dansa í hinni konunglegu kómedíu. Sem nú Friðrik Kristjánsson bar að garði Karls berðlings þá sat þar Lofísa lipurtá í sal. Angist Friðriks rénaði allverulega í návist þeirra beggja og fór sérdeilis vel á með honum og Lofísu, enda þau bæði hjarta- góð og hispurslaus. Þau ráð réðu þau lipurtáin og berðlingurinn Friðriki prinsi að hann færi að boðum föður síns en skyldi ávallt bera undir þau öll vandræði hjónabandsins. Það var Friðriki til mikillar hughreystingar og því fór hann að orðum föður síns og var nú enn efnt til brúðkaups. TMM 2006 • 1 25
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.