Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.02.2006, Síða 28

Tímarit Máls og menningar - 01.02.2006, Síða 28
Böðvar Guðmundsson Var um skeið kyrrt með honum og Karlottu Maríönnu en ekki unnust þau þó með ærslum. En svo brá nú við að Friðrik prins þóttist vart mega haug rjúfa að ekki bæri hann það fyrst undir Lofísu lipurtá. Þeirra vin- átta gerðist æ innilegri, og mjög var hann elskur að sveininum Berð- lingssyni og lék við hann löngum stundum. Hann fékk þeim Lofísu herbergi í höll þeirra hjóna og það líkaði Karlottu Maríönnu stórum miður. Hún var kona siðavönd og kurteis og ekki vön að ræða við slétt- an almúga og krafðist þess af manni sínum að hann rækti sig eina kvenna og héldi sig að þeim standi sem tign hans bar. Því ansaði Friðrik öngu og entust þeirra samfarir ekki nema fimm vetur áður sundur gekk hjónabandið. Kristján konungur VIII lagðist banalegu er liðnir voru frá holdgan Herrans átján hundruð fjörutíu og átta vetur. Á banasæng sinni kvaddi hann Friðrik son sinn til sín og bað hann ávallt hlíta ráðum viturra manna og fara að vilja þeirra. Svar Friðriks prins var lengi munað enda gjörði hann það að einkunnarorðum sínum og lét rita á skjöld sinn. „Herra,“ svaraði hann, „fái ég að fara að mínum vilja, þá skulu og allir aðrir fá að fara að sínum vilja.“ Síðan dó Kristján VIII, þó ekki með öllu kvíðalaus. Það er mál manna að hann hafi verið prúðastur konunga í Danmörku til orðs og æðis. En það er af Friðriki að segja að hann settist á sinn trón. Að viturra manna ráði lét hann strax setja landinu nýja stjórnskipan sem nam af einveldi konungsins, er staðið hafði síðan á dögum Friðriks III, og lét vald allt í hendur þjóðkjörnu þingi og ríkisstjórn. Það er til marks um hve mjög hann unni sveininum Berðlingssyni að þegar velja skyldi stað- festudag fyrir hin nýju lög um stjórn ríkisins þá bað hann að það yrði gjört á fæðingardegi hans, - „og skal hátíð halda þann dag æ síðan.“ Það var á Nobertusarmessu á sumar er liðnir voru frá holdgan Herrans átján hundruð fjörutíu og níu vetur og þann dag draga Danir æ síðan fána á stöng og halda snjallar ræður um konung og föðurland. Ást Friðriks á Lofísu lipurtá jókst enn við konungsdóm hans. Hún flutti brátt með allt sitt hafurtask í slotið og hét eftir það greifaynja Danner. Hann bauð öðrum að nefna hana svo en nefndi hana ávallt sjálfur sína lipurtá. Þau gengu í heilagt hjónaband er hann hafði verið konungur tvo vetur og var engu tignarfólki boðið að vera við þá athöfn. Hirðin öll var ærið viðmótsköld við frú Danner og neitaði henni að bera drottningarnafn sökum óæðri burðar. Þau Friðrik hlógu bæði að og héldu sínum fyrri hætti að bella glaumi við ættlaust fólk og slétt. Ekki má með öllu skilja svo við þau Friðrik VII og frú Danner að geta ekki nokkurra samskipta hans við íslendinga. Faðir hans, sálugur herra 26 TMM 2006 • 1
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.