Tímarit Máls og menningar - 01.02.2006, Blaðsíða 58
Hugrún R. Hjaltadóttir
aða eiginleika og útúrsnúningurinn sem Butler sér í dragdrottningum
og geti skapað augnablik þar sem hið eðlilega er dregið í efa.
Ég hef mestan áhuga á þessum litlu augnablikum. Ekki vegna þess að
þau snúi meira út úr eða séu mikilvægari en stærri atburðir, heldur
vegna þess að þau eru líklegri til þess að ná til venjulegs fólks. Þau birtast
og hverfa jafn fljótt en skilja vonandi eftir sig einhver spor og geta þann-
ig, smátt og smátt, leitt til breytinga.
Það er ekki erfitt að fá staðfestingu á því að ástarsagan sé rosalega
gagnkynhneigt fyrirbæri. Hún er einn af þeim stöðum þar sem hin
gagnkynhneigðu gildi (heteronorm) endurskapa sig og staðfesta. Það
þýðir þó ekki að útúrsnúningur geti ekki átt sér stað innan ramma
ástarsögunnar. Það að afhjúpa og gera grín að gagnkynhneigðum gild-
um á sama stað og þau eru staðfest hlýtur að hafa einhver áhrif. Dagbók
Bridget Jones er uppfull af slíkum kaldhæðnum augnablikum sem fengu
mig til þess að flissa. En það sem mér finnst fyndið finnst öðrum
kannski ekkert merkilegt og það er erfitt að skilgreina hvað er fyndið.
Það breytir því samt ekki að þegar ég las Dagbók Bridget Jones með hlið-
sjón af kenningu Butlers og skilgreiningu Hutcheons á kaldhæðni, fór
ég að sjá bókina sem gagnrýni á ríkjandi kvenímyndir og sterka stöðu
gagnkynhneigðra gilda í menningu okkar.
Dagbók Bridget Jones
Fyrir ykkur örfáu sem ekki hafið lesið bókina (eða séð myndina) er rétt
að rekja efnið í stuttu máli. Sagan er skrifuð í dagbókarformi og hefst
frásögnin fyrsta janúar þar sem Bridget er stödd í nýársboði hjá foreldr-
um sínum. Þar er hún kynnt fyrir Mark Darcy, vel stæðum einhleypum
lögfræðingi, sem mamma hennar er æst að koma henni saman við. En
Bridget hefur engan áhuga og hann virðist ekki hafa það heldur. Hún
heldur svo heim til Lundúna og byrjar með yfirmanni sínum Daniel
Cleaver. Þegar þau eru búin að vera saman í smá tíma verður augljóst að
þau eiga ekki mikið sameiginlegt; hún kemst svo að því að hann hefur
haldið fram hjá og leggst í mikla ástarsorg.
Bridget hittir Mark Darcy af og til og gerir sér smátt og smátt grein
fyrir því að hún er hrifin af honum. Þá kemst hún að því að mamma
hennar hefur stungið af með nýja kærastanum og miklum ránsfeng, þar
á meðal peningum frá foreldrum Darcys, og heldur að hann hafi engan
áhuga á sér vegna glæpa móður sinnar. Darcy hefur hins vegar elt móð-
urina uppi og eltingarleikurinn endar á stofugólfinu heima hjá foreldr-
um Bridgetar á aðfangadagskvöld. Mark Darcy bjargar deginum og
56
TMM 2006 • 1