Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.02.2006, Side 81

Tímarit Máls og menningar - 01.02.2006, Side 81
Menningarvettvangurinn yfirlestur. Eins og er sinna tímaritin, Skírnir, Saga, Andvari og TMM, fræðirit- um nokkuð, en miklu fleiri yrðu almenningi kunn gegnum útbreitt dagblað. Öðrum dagblöðum en Morgunblaðinu er að sjálfsögðu heimilt að nýta sér þessa hugmynd. Þröstur Helgason Lesbókarritstjóri harmaði það í málgagni sínu 21. jan. að á íslandi væri ekkert hreint bókmenntatímarit. Ég held að þetta sé óþarfi - að bókmenntaumfjöllun TMM, sem er þar í aðalhlutverki, græði á því að lítillega sé sinnt um aðrar listgreinar í og með, og jafnvel pólitík líka. Eða myndi Þröst- ur ekki kalla Times Literary Supplement bókmenntatímarit þó að þar séu greinar um leikhús og pólitík? Halldór Laxness - alltafí umræðunni Við höfum verið rækilega minnt á það undanfarið ár að 2005 var hálf öld frá því Halldór Laxness fékk Bókmenntaverðlaun Nóbels. Árið 1955 - eins og núna á 21. öldinni - var sænska akademían djörf í vali sínu. Hún gerir sér áreiðanlega grein fyrir því að þessi verðlaun deyja í vitund fólks ef þau verða of fyrirsjáanleg, og hvað gat verið djarfara en veita þau höfundi sem kom frá aggalitlu landi með örfáum íbúum en kaus samt að skrifa á móðurmáli sínu, eins og forfeður hans höfðu gert mun lengur en Svíar skrifuðu bókmenntir á sínu máli. Eins og ekki væri nóg að þessi rithöfundur kæmi frá landi sem fæst- ir jarðarbúar höfðu hugmynd um að væri til heldur var hann líka óþekkur - andófsmaður í hinum vestræna heimi, róttækur og opinskár um skoðanir sínar allt frá unga aldri. Eðlilega voru meðlimir akademíunnar ekki sammála um að veita Halldóri þessi virtustu verðlaun sem rithöfundi geta hlotnast, en þvert gegn íhaldsemi rótgróinnar stofnunar og þeirri hugsun að stórþjóðirnar séu merkastar afréðu þeir að veita honum þau. Og ástæðan var ekki neins konar málamiðlun eða smjaður heldur sú að þeir vissu að hann var einn magnaðasti rithöfundur sem þá var á dögum í veröldinni. Við þurfum ekki annað en opna skáldsögurnar hans, nánast hverja þeirra sem er, til að upplifa makalausa töfra hans einu sinni enn. Þess vegna er óskiljanleg sú umræða sem kom upp skömmu fyrir jól, eftir að lokabindi þríleiks Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar um ævi Halldórs kom út, að akademíunni hafi einhvern tíma þótt raunhæfur og álitlegur kostur að skipta verðlaununum á milli Halldórs og Gunnars Gunnarssonar - og að íslenskir menntamenn hafi getað spillt fyrir því og gert það með skeyti. Gunn- ar Gunnarsson er allrar virðingar verður í ljósi síns samtíma, en sem rithöf- undur hefur hann hvergi roð við Halldóri. Öll verk hans þurfa afsökun, for- mála, líka þau bestu - þau eru frá ákveðnum tíma og það ber að meta þau út frá honum; síðan getum við sest niður og notið þeirra. Mörg bestu verk Hall- dórs þurfa enga afsökun. Og það er ekki rétt sem var haldið fram í Lesbók að Nóbelsverðlaunin hafi sett glýju í augu íslendinga svo að þeir hafi þá fyrst farið að meta Halldór meira en alla aðra og Gunnar og Þórbergur fallið í skugga TMM 2006 • 1 79
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.