Tímarit Máls og menningar - 01.02.2006, Blaðsíða 87
Menningarvettvangurinn
Myndlist
Enn er hægt að skoða, horfa á og þefa af ísmeygilegu Feneyjaverki Gabríelu
Friðriksdóttur í Hafnarhúsi, sú sýning stendur til 26. febrúar. Þar er líka verið
að sýna ungan Erró til 23. apríl og sjálfsmyndir Johns Coplans ljósmyndara til
17. apríl.
Á Kjarvalsstöðum stendur Kjarvalssýningin Essens til 19. mars og ætti
enginn að láta hana fara framhjá sér. Þetta er eina tækifærið til að sjá ýmsar
myndir á þeirri sýningu - nema maður þekki eigendurna. Sýning á verkum til
minningar um H.C. Andersen og ævintýri hans verður opnuð 2. apríl og
stendur til 5. júní.
Listasafn íslands ætlar að sýna verk Snorra Arinbjarnar og Gunnlaugs
Blöndal frá 24. febrúar til 30. apríl. Verður fróðlegt og skemmtilegt að fá að
skoða úrval verka þessara öndvegismanna hvors um sig og geta líka borið þá
saman.
Eins og löngum fyrr vil ég hvetja áhugamenn um kvikmyndalist til að
kynna sér dagskrá Kvikmyndasafns íslands í Bæjarbíói í Hafnarfirði. Það hafa
verið sárgrætilega fáir á frábærum myndum þar í vetur, og er eiginlega óskilj-
anlegt að þessi mikla bíóþjóð skuli vanrækja svona sitt eina bíóthek. Sýningar
eru sem fyrr á þriðjudagskvöldum kl. 20 og laugardögum kl. 16.
Framundan í Bæjarbíó til vors eru mörg meistaraverk. í röðinni „dans og
söngvamyndir“ fáum við að sjá Gay Divorce (1934) með Fred Astaire og Ginger
Rogers 14. og 18. febrúar, og Footloose (1984), rokkmyndina sem kom Kevin
Bacon á kortið (21. og 25. febr.). I mars eru hrollvekjurnar The Fall ofthe House
ofUsher (1960) sem Roger Gorman gerði eftir sögu Edgars Allans Poe (28. febr.
og 4. mars), Húsið (1983) eftir Egil Eðvarðsson (7. og 11. mars) og ítalska mynd-
in Suspiria (1977) sem segir á einstaklega fagran og óhugnanlegan hátt frá
nornalátum í þýskum ballettskóla! Hún verður sýnd 14. og 18. mars.
Restina af mars sýnir Kvikmyndasafnið tvær Chaplin-myndir, Sirkus frá
1928 (21. og 25. mars) og Monsieur Verdoux frá 1947 (28. mars og 1. apríl). Einn
meistari tekur við af öðrum því í apríl verða sýndar tvær Bergman-myndir,
Sommarnattens leende (1955, 4. og 8. apríl) og Sommaren med Monika (1953,
11. og 15. apríl). Álskerinnan (1962) eftir Vilgot Sjöman, lærling Bergmans,
verður sýnd 18. og 22. apríl. Lestina reka svo nokkrar íslenskar náttúrulífs-
myndir eftir Magnús Magnússon, Þorfinn Guðnason og Pál Steingrímsson.
Ekki missa af þeim heldur.
TMM 2006 • 1
85