Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.02.2006, Page 105

Tímarit Máls og menningar - 01.02.2006, Page 105
Bókmenntir lesa landið og velja sér bústað út frá því þar sem best hentaði. í kjölfar iðnbylt- ingarinnar breyttist samfélagið nánast á einni nóttu. Menn misstu hæfileikann til að lesa landið og ofuráhersla var á að með bættri tækni gæti maðurinn sigr- að náttúruna. Því miður hafa orðið nokkur alvarleg slys þegar fólk byggir á landsvæðum sem ekki eru til þess fallin. í bók sinni vill Trausti benda lesend- um á nauðsyn þess að þekkja og kunna að lesa landið áður en það er brotið undir byggð. Bókinni er skipt í fimm hluta sem hver fjallar um tiltekið viðfangsefni. Náttúrufarslegum forsendum eru gerð skil í fyrsta hluta bókarinnar. ísland er jarðfræðilega ungt land og innri og ytri öfl vinna stöðugt að myndun þess. Því er brýnt að þekkja mótunaröflin sem hafa skapað landið til að skilja betur megineinkenni þess og landslagsins sem verið er að vinna með og að þau hafa áhrif á þróun byggðarinnar. Þekking á náttúrunni er ein af grunnforsendun- um við vinnslu á skipulagi á okkar tímum. Annar hluti bókarinnar snýr að byggðarmótun. í framhaldi af þeim ramma sem náttúrufarslegar forsendur skapa byggðarmynstrinu ræðir Trausti áhrif annarra þátta. Hér fjallar hann um ýmis mynstur og kerfi og veltir upp spurn- ingum um hvort og þá hvernig þau hafi haft áhrif á þróun byggðar á íslandi. Umfjöllun hans er víðtæk og hér skulu einungis nefnd nokkur af þeim atriðum sem hann fjallar um: verslunarmynstur, valdakerfi, trúarkerfi, samgöngu- mynstur, útgerðarmynstur, menntakerfi, og loks veltir hann fyrir sér erlendum áhrifum. Skipulag bæja og svæða er yfirskrift þriðja hlutans. í upphafi er fjallað um ólík búsetuform og upphaf þéttbýlismyndunar á íslandi. Skipulagsstigin eru kynnt til sögunnar. Þá kemur langur og greinargóður kafli um sögulega þróun Reykjavíkur. Upphafi borgarinnar, vexti, áhrifaþáttum og stöðunni í dag er lýst í máli og myndum, auk fjölda korta, skipulagsuppdrátta og skýringar- mynda. Þá eru einnig tekin dæmi af öðrum bæjum, til dæmis ísafirði. Þessum hluta lýkur á umfjöllun um svæðisskipulag og tekin eru dæmi víðsvegar að af landinu. Fjórði hluti bókarinnar fjallar um þróun kerfa á landsvísu. Ræddir eru þætt- ir sem þurfa að liggja fyrir við skipulagningu landsins og uppbyggingu sam- félagsins alls. Þá fjallar hann um atriði eins og nýtingu náttúruauðlinda, sjálf- bæra þróun og ferðamennsku sem oft tekur yfir stór svæði og liggur þvert á mörk sveitarfélaga. Loks veltir Trausti fyrir sér hvort ekki sé kominn grund- völlur til að vinna að sérstöku skipulagi fyrir þessi málefni hvert um sig. I síðasta hlutanum er fjallað um þróun á seinni tímum og í framtíðinni. Með tímanum breytist samfélagið, einnig lífsstíllinn og áherslurnar í skipulagsmál- um. Rætt er um helstu hugmyndahræringar við aldamót, nýjar áherslur og möguleika nýrrar þekkingar og tækniframfara. í bókinni er fjöldi uppdrátta og 1250 myndir, orðalisti og skipulagsmanntal. Eins og Trausti segir sjálfur í innganginum að bók sinni er þetta ekki sagn- fræðirit. En það er mikið þrekvirki að skrifa svona bók og ekki öllum gefið. Trausti er mjög hugmyndaríkur, og hann hefur hæfileika til að vekja fólk til TMM 2006 • 1 103
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.