Heimsmynd - 01.10.1987, Side 106

Heimsmynd - 01.10.1987, Side 106
Christlan Lacroix sló í gegn. Hverjum öftrum hefði dottið f hug að fóðra pelsa með pífum úr undirfatnaðl. Sviðið er upplýst og í laginu eins og T, þannig að sýningarstúlkur ganga innan um mannfjöldann. Þetta kvöld eru í saln- um Louis Féraud sjálfur, samstarfsfólk og nokkrir ljósmyndarar. Helga Björnsson er baksviðs þar sem sýningarstúlkur skipta um föt en æfingin er eins og hver önnur lokaæfing; allt á að ganga snuðru- laust fyrir sig. Féraud sem er á sjötugsaldri og grár fyrir hærum situr með hljóðnema í hendi sem hann notar óspart finnist hon- um eitthvað mætti öðruvísi fara á sviðinu. Sýningin er áhrifamikil. Undir dynjandi tónlist ganga þel- dökkar, hávaxnar sýningar- stúlkur fram á sviðið, tvær og þrjár í einu, í stórglæsilegum fatnaði — þar sem hönnun Helgu Björnsson sker sig alltaf úr. „Þessi kjóll sem er eins og jarðarber er eftir Helgu,“ hvíslar bandarísk stúlka sem starfar fyrir Féraud í New York. „Féraud væri ekkert án Helgu núorðið,“ segir sú hin sama. „Stutt, kraftmikil sýning," æpir Féraud inn í hljóðnemann þannig að fyrr- verandi eiginkona hans sem situr við hlið- ina á honum hrekkur við. „Fjarlægið þessa í rauða kjólnum, það er nóg að hafa bleika kjólinn á milli þessara tveggja svörtu," kallar hann. Rambaldi fjármálastjóri Féraud leikur á als oddi. Hann veit að nægir kaupendur verða að þessum módelfatnaði, þar sem aðeins er hannað eitt eintak af hverju. Fatnaðurinn lætur enga konu ósnortna þótt sérhver heilbrigð kona hljóti að fá svima yfir verðinu. Engir smáprísar það. Bróderaður silkikjóll er á góðu bílverði en tryggustu kaupendur Parísar-hátískunnar um þessar mundir eru Arabar. Það er farsa líkast að sjá heilt kvennabúr spíg- spora út úr tískuhúsunum, hópur þybb- inna, miðaldra, dökkleitra kvenna,sem stíga inn í Mercedes Benz með reyklituðu gleri, íklæddar fatnaði fyrir andvirði sem dygði til að greiða niður hallann á tap- rekstri íslensks ríkisfyrirtækis. En það er önnur saga. Grænt, fjólublátt, rautt og svart. Litir vetrartískunnar eru skærir og faldurinn er stuttur. Sumir segja: Alltof stuttur! Lita- samsetningar eru djarfar en svart er líka sígilt. En það er fleira fréttnæmt í sam- bandi við þessar hátískusýningar annað en faldurinn. Líkast til hafa margir hönn- uðanna sest niður fyrir þann vetur sem nú er að ganga í garð, klórað sér í höfðinu og hugsað: Hvernig komumst við í heims- fréttirnar. Sígild lína undanfarin ár hefur ekki beinlínis valdið straumhvörfum í tískunni. Þau tíðindi hafa hins vegar átt sér stað að fram á sjónarsviðið í París er komin ný stjarna. Hann heitir Christian Lacroix og sýndi nú í fyrsta sinn undir eigin merki en vakti athygli fyrir nokkrum árum sem að- alhönnuður hins dalandi húss Jean Patou. Lacroix komst í heimsfréttirnar nú. Hann náði því að vera á forsíðumynd á Interna- tional Herald Tribune daginn eftir sýning- una sína í París. Og aðrir, Saint Laurent og fleiri? Jú. Það var minnst á þá en aðal- lega vegna þeirrar angistar sem innganga þessa hæfileikamanns hefur valdið þeim. Samkeppnin leiðir af sér öfundsýki í há- borg hátískunnar sem annars staðar. Yves Saint Laurent er ekki lengur konungur hátískunnar sem hann hefur verið undan- farna áratugi. Hátískuhúsin í París eru nú orðin 24 tals- ins. Samkeppnin vex stöðugt og sum hafa helst úr lestinni, önnur ná sér á strik eftir áralanga lægð eins og hús Lanvin. Athyglisverður kvöldkjóll í sí- gildum vetrarlitum. Hvað er svona merkilegt við Christian Lacroix? Tísku- hönnuðir sem HEIMS- MYND ræðir við yppa öxl- um. „Jú, jú, sýningin hans var ágæt — alveg eins og af- bragðs skemmtun í leikhúsi en að mér hefði dottið í hug að kynna svona fatnað er af og frá,“ segir einn af þeim stærri. Engu að síður stældu þeir sumir hverjir Lacroix. Því er ekki að neita. Sýningar flestra voru mun íburðarmeiri en þær hafa verið um langt skeið að sögn kunnugra. Það er ekki lengur spurning um að Lacroix steli senunni heldur hvað hann og fleiri eru að gera fyrir hátískuna. Þeir eru að blása lífi í hana á ný — sem þýðir aukin áhrif Parísar á sviði allrar tísku, bæði há- tísku sem prét-á-porter eða lúxus-fjölda- framleiðslu. Önnur ástæða þess að Christian Lacroix slær svona hressilega í gegn er að hann blæs lífi í staðlaðan bisness. „Að maðurinn skuli þora þessu," sagði ljós- myndari HEIMSMYNDAR og flissaði, þegar Lacroix sýndi pels fóðraðan með nærfatablúndum. Iljósi þess að hátískuföt eru rándýr er ekki skrýtið að þessir svoköll- uðu kóngar hátískunnar í París hafi lagt út á mið miðaldra kvenna. Það gerir Saint Laurent og hlaut að þessu sinni lítið lof fyrir. „Sýningin er ekkert spennandi," sagði tískufrétta- ritari Herald Tribune. Nú dugir ekki leng- ur að kvikmyndastjarnan Catherine Den- euve, tryggasti aðdáandi Saint Laurent í áranna rás, mæti á sýningarnar. Þær verða að vekja almenna spennu og hrifningu. Hátískan er í stöðugri samkeppni við lúx- us-fjöldaframleiðsluna og verður að taka mið af því. Af þessum sökum hefur Karl Lagerfeld hjá Chanel lagt áherslu á nýj- ungar í hinni sígildu Chanel-línu. Pilsin við dragtirnar eru styttri og litasamsetn- ingar mun djarfari en áður. Saint Laurent er hins vegar enn við sama heygarðs- hornið og hann var fyrir tveimur áratug- um í mörgum tilfellum. Hann sýndi til dæmis svartar rúllukragapeysur og svört, stutt rússkinnspils sem hann innleiddi í tískuna fyrir mörgum árum og getur því ekki búist við dúndrandi lófataki heims- pressunnar. Það sem helst þótti tíðindum sæta hjá Saint Laurent núna voru stuttar leðurkápur bryddaðar með refaskinni og kvölddragtir úr þungum satínefnum í skærum litum. Bæði Saint Laurent, Fér- aud og fleiri nota mikið svart flauel í jakka og dragtir, oft með gylltum bryddingum eða mynstri. Og áberandi litir í vetrartísk- unni eru rautt, eiturgrænt, blágrænt, fjólublátt og gult saman eða heitur bleikur 106 HEIMSMYND
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140

x

Heimsmynd

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.