Heimsmynd - 01.03.1988, Blaðsíða 40

Heimsmynd - 01.03.1988, Blaðsíða 40
„í stjómmálum hér skortir bæði mannúð og myndugleika. Tími þessa flokkakerfís sem nú er við lýði er að renna sitt endaskeið.“ viðtal í blaðið Frjálsa þjóð eftir að Ómar lauk stúdentsprófi undir fyrirsögninni: Stúdentspróf, bíll og íbúð. Stelpur spiluðu enga rullu. Hvorki þá né síðar. Það var aðeins Helga konan hans sem hann kynntist rúmlega tvítugur og var trúlofaður mánuði síðar. Þrátt fyrir tvíræða klámbrandara í gegnum ár- in finnst honum enn skemmtilegra að dást að straumlínulöguðum línum bíla og flugvéla en síðast kvenna. „Auðvitað horfi ég á fallegt kvenfólk eins og allir karlmenn en ég hugsa að ég geri samt minna að því en flestir aðrir.“ „Þessar kynlífsvangaveltur" voru ekki fyrir hendi að hans sögn þegar þau Helga kynntust. Hann hefur hins vegar stflað upp á þann markað sem hálf- kveðnar klámvísur höfða til. „Maður er fljótur að finna andrúmsloftið í salnum og hvað fólki líkar. Það er eins og múg- sefjun eigi sér stað þótt sumir þykist mjög hneykslaðir eftir á, jafnvel þeir sem hlógu manna mest. Konur hafa ekkert síður gaman af hálfkveðnum vísum sem jaðra við klám. Mannfólkið hefur sínar innbyggðu hvatir alveg eins og dýrin.“ Þótt hann finni fljótt út hvað sé viðeig- andi miðað við áheyrendur hefur honum líka skjátlast. Eitt sinn með þeim afleið- ingum að hann „fór alveg í rusl og ákvað að hætta sem skemmtikraftur." Það var á Rotarysamkomu árið 1964. „Ég var al- vanur að koma fram á karlakvöldum og þóttist vita hvað við ætti. Ég áttaði mig hins vegar ekki á því að Rotarymenn voru svolítið öðruvísi. Þetta voru fínir menn í smóking. Ég steig á sviðið og hóf að segja svefnherbergisbrandara með flugfreyjuröddu en ég fann smátt og smátt að salinn setti hljóðan. Það var myrkur í salnum en ég skynjaði að and- rúmsloftið var orðið eins og í frystihúsi. Fólk fór að fussa og sveia. Loks sté grá- hærður maður upp á sviðið og spurði hvort ætlunin væri að láta mig halda áfram. Hvorki fyrr né síðar hefur mér liðið eins illa á sviði og þarna. Ég fór heim og var staðráðinn í að hætta en fyr- ir þrábreiðni undirleikara míns skemmti ég skátum viku seinna og síðan hefur ekki orðið lát á.“ Nú klappa Rotarymenn hann upp aftur og aftur. „Nú reyni ég að sveigja skemmti- dagskrána betur að áheyr- endum. Það þarf ekki miklar tilfærslur. Ég hendi ársgömlum dagskrám en hef úr það miklu að moða að ég lendi ekki í vandræðum." Hann talar um fágaðri dagskrá og á þá við kímni í formi þjóðfélagsádeilu, fer- skeytlur eða sópranaríur sem hann flaut- ar. Victor Borge er uppáhaldsgrínisti hans erlendur og það segir margt um hann að háðfuglinn Tom Lehrer er einn- ig í miklu uppáhaldi hjá honum. Ómar á sér nefnilega þann draum að vera tekinn mun alvarlegar. Alvöru lífsins kynntist hann einnig ungur en uppgötvaði fljótt að hláturinn var besta vopnið gegn vonbrigðum í lífs- ins ólgusjó. Að í landinu búi tvær þjóðir er honum umhugsunarefni. Hann dáir alþýðumenningu til sveita, hvort sem hún birtist í gervi bræðranna á Kvískerj- um, sem hann er nú að gera Stikluþátt um, eða í konunni sem hann var hjá í sveit sem barn. „Hún var fráskilin með tvö börn og bjó norður í Langadal. Tak- mark hennar var að eignast aftur jörðina sem hún hafði misst við skilnaðinn. Á heimili sínu hafði hún fjóra niðursetn- inga og með mikilli vinnu tókst henni að nurla saman peningum til að kaupa jörð- ina og láta syni sínum hana í té. Þessi kona innprentaði mér virðingu fyrir vinnunni.“ Hann er vinnuþjarkur og ætlar sér oft að gera meira á skemmri tíma en aðrir. Sumir samstarfsmanna hans lýsa honum sem bæði fífldjörfum og að hann tefli iðulega á tæpasta vað. Einn fréttamaúna sjónvarps lýsir því svo: „Ómar kemur úr förðun fimm mínútum fyrir beina frétta- útsendingu. Yfirleitt er hann að semja lesinn texta inn á fréttir þegar verið er að lesa fréttayfirlitið. Maður veit aldrei á hverju maður á von þegar maður situr við hlið hans fyrir framan myndavélarn- ar í fréttatímunum. Oft semur hann text- ann jafnóðum og myndböndin eru sett á skjáinn. Samt skeikar honum iðulega ekki um meira en tvær sekúndur. Enginn annar leikur þetta eftir - né reynir það.“ Eitt sinn fyrir kosningar kom Ómar með nöfn frambjóð- enda í einu kjördæmanna inn í miðjan fréttatíma á meðan fréttamynd var á skjánum. Svo illa vildi til að í fátinu við að skella miðanum á borðið fyrir framan fréttaþulinn hellti hann vatnsglasi yfir miðann þannig að letrið máðist út. Það kom fát á þulinn en Ómar skellti sér á bak við myndavélina og myndaði nöfn frambjóðenda með vörunum sem þulurinn las af. Ómar gleymdi atvikinu mínútu síðar en þulur- inn sennilega aldrei. „Það er aldrei eins mikið fjör á frétta- stofunni og mikil spenna og þegar Ómar er að vinna,“ segir einn fréttamannanna. Honum er lýst sem léttum, geðgóðum vinnufélaga sem tekst alltaf að bjarga hlutum fyrir horn. Mörgum finnst sem hann njóti þess hreinlega að ögra að- stæðum, eins og flug- og kappaksturs- sögur benda einnig til. „Ég hef oft orðið smeykur," segir hann sjálfur og bætir við: „Máltækið seg- ir að það séu aðeins til hræddir flugmenn og dauðir flugmenn. Auðvitað er ég oft hræddur að fljúga í vondum veðrum. Hins vegar hef ég aldrei orðið eins hræddur á ævi minni og fyrir mörgum árum þegar ég var að keyra yfir breiða brú með lágum handriðum við Grafar- holt. Ég hugðist fara fram úr bfl sem var á undan mér. Þá brá svo við að þessi bfll sveigði inn á miðja brúna. Ég átti um tvennt að velja; að keyra aftan á bflinn á fullri ferð og ógna lífi ökumannsins, eða keyra beint á handriðið og stefna eigin lífi í bráða hættu. Ég tók síðari kostinn. Það varð mér hins vegar til lífs að við brúarhandriðið var malarhrúga sem veg- hefill hafði skilið eftir. Bflinn endasentist upp á kant og ég fór á tveimur hjólum milli handriðsins og hins bflsins yfir brúna.“ Hann segist auðvitað reyna að taka sem sjaldnast áhættu sem stofni lífi sínu í voða, vegna ábyrgðar sinnar sem margra barna faðir. „Helga konan mín er ótrú- lega sterk. Hún er sjómannsdóttir sem missti föður sinn sjö ára. Hún hefur ver- ið mér traustur bakhjarl öll þessi ár og framhald á bls. 112 40 HEIMSMYND
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116

x

Heimsmynd

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.