Heimsmynd - 01.03.1988, Blaðsíða 84

Heimsmynd - 01.03.1988, Blaðsíða 84
F JjHnkenni listar Lelands eru sterkir litir, fólk, ákveðnir fletir og línur. Hann vill helst ekki flokka list, segir einfald- lega: „Það eru engir ismar til, bara góð og vond list.“ Leland fékk fljótt á sig orð fyrir að vera málgefni eiginmaðurinn sem átti þöglu konuna, Louisu, sem helst má ekki einu sinni tala í viðtölum við sjálfa sig. Og þannig vill fólk hafa það. Leland skellihlær að þessu og segir: „Auðvitað kann hún að tala, en það er eins og sum- ir vilji endilega halda í ímyndina um að Louisa segi aldrei neitt.“ Og þótt Leland eigi létt með að koma fyrir sig orði eru samræður við hann engin látlaus síbylja af talanda. Hann er ekkert að tala nema hann hafi eitthvað að segja. Hitt er svo annað mál, að Leland liggur ýmislegt á hjarta. En hann minnist þess einnig að hafa setið þögull hjá. „Mikið vildi ég að ég hefði getað talað við Svavar Guðnason, Porvald Skúlason og Scheving,“ segir Leland svolítið raunalega. „En þegar ég kom hingað til íslands fyrst, seint á fimmta áratugnum, töluðu fáir ensku hérna. Ég varð að láta mér lynda að sitja hjá. En það var gam- an að koma hingað, sitja með listamönn- unum sem áttu lengst af athvarf í Unu- húsi eða hlusta á djass heima hjá Birgi Möller, þar sem bóhemarnir áttu sama- stað. Og segja svo sæll eða sæl og horfa í kringum mig. Ég held að Nína Tryggva- dóttir hafi verið lang hæfileikaríkust þeirra listamanna sem störfuðu á Islandi um þessar mundir, og þá undanskil ég ekki Septem-hópinn sem var alls ráðandi á næstu árum. Fyrir suma var arfur Sept- em-sýninganna einungis þung byrði að bera.“ Leland segist hafa ákveðna ein- staklinga í huga en brosir skálkslega og segir að þetta verði hver að meta fyrir sig. Leland og Louisa skutu ekki rótum á íslandi, þótt þau hafi heimsótt landið reglubundið síðan þau flugu þangað fyrst saman í herflugvél árið 1946. Það var margra klukkustunda ferð. Nú komast þau yfir hafið á nokkrum klukkustund- um. En heimili sitt eiga þau í New York. Heimili sem þau eru nú óvænt að byggja upp í annað sinn. Eins og menn rekur minni til brann heimili þeirra síðastliðið haust. I brunanum missti Leland stóran hluta verka sem voru á leið á sýningu. Alls eyðilögðust um áttatíu verk. En það er eins og hann dvelji ekki lengi við þá hugsun, hann fór fljótt að hugsa um upp- byggingu. Manni dettur í hug Ólöf ríka sem sagði: Eigi skal gráta Björn bónda heldur safna liði. í þessu tilviki er liðið iðnaðarmenn. „Ó, það er svo erfitt að fá iðnaðarmenn í New York,“ segir Lel- and. „Maður þarf að bíða í tvær vikur eftir pípara þegar ekki er hægt að bíða eftir pípara. Þetta er hrikalegt!!! 150 ára gamalt gifsloft féll niður að hálfu. Að- koman var ægileg. Meðan allt er í ólestri er ekkert hægt að vinna. Ég brenn í skinninu eftir að fara að vinna aftur.“ En hvers vegna New York? „Ég er spilltur af eftirlæti," segir Le- land. „Það er svo margt að gerast í New York; ég vil geta stillt á eftirlætis djass- rásina mína í útvarpinu, séð allar sýning- ar sem ég hef áhuga á og kennt í skólan- um þar sem ég kenni,“ bætir hann við. Hann kennir framhaldsnemendum við Parson‘s School of Design í New York til meistaragráðu (Master of Fine Art). Hann bindur einmitt miklar vonir við einn nemanda sinn, íslendinginn Sigur- björn Jónsson, sem nýlega lauk MFA námi frá Parson's. „Sibbi er mjög hæfileikaríkur, en ég geri ráð fyrir að hann muni eiga erfitt með að fá viður- kenningu. Hann tilheyrir engum lista- klíkum á íslandi. En hann er einfaldlega of góður til að hægt sé að hunsa hann.“ Leland Bell verður heitt í hamsi þegar hann talar um klíkuskap í listum. „Mér finnst út í hött þegar ein stefna yfirtekur alla hugsun manna. Með hugmynda- stefnunni átti málverkið að vera dautt og allir voru að skrifa eða upplifa og fremja gjörninga. Þetta gerðist hér og þetta gerðist í New York. Nú eru aðrar bylgjur en mér finnst gæta alltof mikillar per- sónudýrkunar í myndlist. Rokkstjörnu- metnaður í myndlist er alveg ótækur. Myndlist er alltaf underground og góður málari hugsar bara um að mála. Ýmis- legt í myndlist er ekki hægt að læra, það þarf að byggja upp ryþma eins og í djass- inum. Og þar með var Leland Bell farinn að hugsa sér til hreyfings. Ætlaði í bíó með Louisu. „Er ekki verið að sýna The Un- touchables enn?“ spyr hann. Jú, ætli það ekki, myndin hefur gengið býsna lengi. „Fínt,“ segir Leland. Hann langar að sjá son vinar síns og listbróður á hvíta tjald- inu. Strák sem hann passaði stundum þegar pabbi hans var úti að djamma í Greenwich Village í New York. Strákinn Robert DeNiro. „Pabbi hans var hús- vörður í nútímalistasafni sem nú er Guggenheimsafnið. Robert eldri lítur al- veg eins út og strákurinn hans þegar hann lék í Taxi Driver. Hann útvegaði mér vinnu þar, sagði mér að klippa mig og segja bara alls ekki frá því að ég væri málari. Þar vann Jackson Pollock líka við að gylla ramma. Við Pollock rifumst um myndlist og svo var hann ekki nógu góður í drykkjunni. Átti það til að vera ansi illskeyttur. En Pollock kom fram á réttum tíma og fyllti upp í ákveðið tóma- rúm. Tvær af hverjum tíu myndum Pol- locks eru virkilega góðar, en af því hann sló í gegn hanga auðvitað allar myndim- ar uppi. Gallinn við listastefnur er að það sem er í tísku hverju sinni, hvort sem það eru myndverk eða gjömingar, tekur allt rými á söfnum, í miðlum, og sogar til sín allt fjármagn. Annað kemst ekki að. Og þetta styðja forráðamenn flestra helstu safnanna. Á meðan er varla von að fólk fái tækifæri til að njóta allrar góðrar listar." □ 84 HEIMSMYND
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116

x

Heimsmynd

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.