Heimsmynd - 01.03.1988, Blaðsíða 98
Marta Bjarnadóttir á heimili sínu
viö Öldugötu. „Heima fyrir kýs ég
aö ganga í gallafötum, striga-
skóm og sem þægilegustum
fatnaði." Hún segir aö þaö vanti
karakter í stíl íslenskra kvenna.
minni í fatasmekk og vali. Svarti liturinn
heillar mig sem grunnur, enda er hann
mjög hentugur í fatnaði sem lífga má
upp á með einhverjum fylgihlut eða trefli
í öðrum lit. Svo er ég alltaf með rauðan
varalit þótt ég noti ekki annan andlits-
farða.“
Marta Bjarnadóttir segist hafa sveigj-
anlegan fatasmekk. Pað komi af sjálfu
sér að hún kaupi mikið af fötum í starfi
sínu. „En ég fer vel með föt og blanda
oft gömlum og nýjum fatnaði saman. Ég
er ekki íhaldssöm í fatavali og er hrifin
af nýstárlegum útfærslum í fatnaði. En
ég þekki mín takmörk. Ég geng ennþá í
minipilsum þótt ég sé 43 ára af því að ég
get gert það og vil gera það meðan tími
er til. Það verður nægur tími síðar til að
fara í frúarlegri föt. Varðandi snið þá
fylgi ég línum tískunnar en nú er áhersla
á aðskorin föt og stutt pils. Ég geng
einnig mikið í buxnadrögtum og vel fatn-
aðinn með tilliti til umgjörðar búðanna
minna. Heima fyrir er ég þó helst í galla-
buxum og strigaskóm."
Svava Johansen, sem einnig
rekur tískuverslun, segist vilja
sígildan klæðnað með rock’n
roll ívafi. Hún er 24 ára gömul
og heillast mest af leðri og rússkinni. Ég
hef dýran smekk en vel helst að vera það
sem ég kalla millifín. Þá er ég í gallabux-
um og kúrekastígvélum við fínni skyrtur
og jakka. Aðalatriðið er þó að klæða sig
eftir veðri. Mér finnst hræðilegt að sjá
stelpur í minipilsum þegar það er napurt
úti. Það má segja að föt séu mitt aðal-
áhugamál, ekki síst skór, og ég á yfir
fjörutíu pör,“ segir hún hlæjandi. Hún
segir að það þurfi ekki að vera svo dýrt
að vera vel klæddur nema sóst sé eftir
mikilli fjölbreytni. „Aðalatriðið er að
velja saman rétt efni og rétta liti. Sjálf
held ég mest upp á svart, brúnt, drappað
og dökkblátt. Til að lífga upp á heildar-
myndina nota ég svo kannski einn skær-
an tískulit með. Þá vel ég til dæmis bláar
gallabuxur við brún stígvél og brúnan
98 HEIMSMYND