Heimsmynd - 01.03.1988, Blaðsíða 74

Heimsmynd - 01.03.1988, Blaðsíða 74
Ég svona hálf bjóst við að fá Hamletinn um leið og ég kæmi út úr Leiklistarskólanum. En A-samningurinn er ekki sjáanlegur enn. Róbert Arnfinns, Rúrik, Kristbjörgu og Helgu Bachman: „Borðaðu grautinn þinn Guðmundur, ég skal gá að kindunum á meðan!“ Þetta héldum við að væri leiðin til að finna hið eina rétta. Síðan þá hef ég farið í gegnum nokkur skeið með hin- um mismunandi gúrúum. Alltaf hef ég haldið að ég væri á réttri leið að sann- leikanum. Nú held ég bara að leitin taki engan enda. Við erum öll að fást við svipaða hluti.“ Hann segir þann möguleika þó oft hafa komið upp í huga sinn að hætta öllu saman; leitinni og listinni. „Það gerist iðulega rétt fyrir frumsýningar. Um dag- inn datt mér til dæmis í hug að best væri að vinna í kiljunum í Eymundsson; lesa glæpasögur alla daga. En ég kemst ekk- ert út úr þessu úr því sem komið er. Verð reyndar að viðurkenna að ég svona hálf bjóst við að fá Hamletinn um leið og ég kæmi út úr Leiklistarskólanum. En það ætlar að láta bíða eftir sér. A-samn- ingurinn er ekki sjáanlegur enn.“ Ertu þá að bíða eftir að komast á Benz? „Já, ég hefði svo sem ekkert á móti því að aka um á Benz, eftir nokkur ár. En ég skil spurninguna. Hvenær er mað- ur farinn að vinna svo mikið að maður er hættur að gera hluti sem eru manni mik- ilvægir? Það er ekki stórt vandamál fyrir mig núna. Á Hótel íslandi geri ég bara hluti sem eru skemmtilegir. Ég nýt þess að gera búninginn kláran, hlaupa fram á sviðið og dansa. Það er líf í tuskunum og Haukur Morthens kannski að syngja! Einhver sagði um daginn að það væri möguleiki á því að framfleyta fjölskyldu sinni af þessari atvinnu. Það væri æðis- legt! En það má líka spyrja sig hvort ekki sé hægt að fara inn í kerfið til að breyta því innan frá. Þetta segjum við mjög oft, gömlu flippararnir, þegar við þrömmum inn í kerfið - ég er bara á egó- flippi, finnst gaman að fá borgað fyrir það. Svo er sá möguleiki alltaf fyrir hendi að bylta eftir að inn í kerfið er komið. Annars var ég til dæmis að vinna með þeim Rúrik og Baldvin Halldórssyni í kvikmyndinni um Nonna og Manna. Þar komst ég að því að þessir karlar eru að pæla í sömu hlutum og ég. Bæði kerfið og ég sjálfur koma mér á óvart. Yndis- legt! Það sem er hættulegt er að leikar- inn fái ekki að njóta sín; að honum leið- ist og öðrum leiðist hann. Ég hef mi'na aðferð til að komast hjá því.“ MMeð skilvirkari sölutækni, markaðsfræði og flæðandi almannatengslum leikhús- anna ættu aðsóknarmetin að falla hvert um annað þvert. Hvers vegna láta þau á sér standa? Er leikhúsið gelt? „Ef fólk, eins og til dæmis það sem undanfarið hefur verið saman á nám- skeiðinu með Úrúgvæmanninum Maríó, fengi að vinna á kaupi við að gera það sem því finnst spennandi, léti nýsköpun- in ekki á sér standa. Nú er staðan þann- ig, að leikarinn getur varla sagt nei við tilboðum um hlutverk. Til þess að vinna fyrir fjölskyldu þarf leikarinn að vinna geðveikislega mikið. Miklu meira en iðnaðarmaðurinn til dæmis. Enginn hef- ur efni á því að vera með stæla, nei- stimpillinn er of hættulegur sem framtíð- arnesti." Samkvæmt þessu liggur beinast við að álykta að leikarar séu tilneyddir að taka þátt í sölumennskunni. Árni Pétur tekur undir það, en þó ekki alfarið. „Tímarnir hafa breyst. Nú er staðan þannig að framúrstefnu-leikhúsið, sem framhald á bls. 109 74 HEIMSMYND
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116

x

Heimsmynd

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.