Heimsmynd - 01.03.1988, Page 52

Heimsmynd - 01.03.1988, Page 52
BRAGIJÓSEFSSON Guðmundur Vikar Einarsson ■ okkuð hefur verið rætt og á skurðstofunni H^kH ritað hér á landi um ófrjó- í Læknahúsinu við Síðumúla. H^H semi kvenna og möguleika I þeirra til að verða frjóar, en minna um karlana. Þó er áætlað að þegar orsök barnleysis hjóna finnst á annað borð, sé ófrjósemi karlmannsins ástæðan í um helmingi tilvika, á móti álfka fjölda dæma þar sem orsökin finnst hjá konunni. Stundum finnst engin skýr- ing eða vandamál finnast hjá báðum hjónanna. En hversu algengt er að hjón vilji eignast barn en geti það ekki? „Oft- ast hefur verið talið að um tíu af hundr- aði hjónabanda séu barnlaus, þrátt fyrir vilja hjónanna til að eignast barn. Senni- lega er þessi tala hærri og í Bandaríkjun- um er talið að allt að ein af hverjum sex hjónum á barneignaraldri séu barnlaus gegn vilja sínum.“ Það er Guðmundur Vikar Einarsson sem hefur orðið. Hann er þvagfæraskurðlæknir á handlækninga- deild Landspítalans og rekur auk þess eigin stofu með aðstöðu til skurðaðgerða í Læknahúsinu við Síðumúla. Guðmund- ur Vikar er einn af fáum læknum á ís- landi sem karlmönnum er vísað til, vilji þeir athuga hvort þeir eigi við ófrjósem- isvandamál að stríða. Kvensjúkdómalæknar eru á einu máli um að eiginkonurnar séu fyrri til að at- huga hvort þær séu ófrjóar. Stundum eru það þeir sem senda eiginmennina í rann- sókn hjá þvagfæraskurðlæknum. „Ég hef ekki tölu á því hversu oft það eru kon- urnar sem fara fyrst í rannsókn,“ segir Guðmundur Vikar, „en það er langal- gengast. Þó gæti verið að þetta sé eitt- hvað að breytast. Oftast fara hjón að at- huga málin eftir að hafa reynt án árang- urs að eignast barn í um það bil eitt ár. Þá leitar konan til kvensjúkdómalæknis, ef til vill vegna þess að hún þekkir hann, hefur fengið getnaðarvarnir hjá honum. Kvensjúkdómalæknirinn lætur eigin- manninn yfirleitt fara til þvagfæraskurð- læknis eða í sæðisrannsókn. Stundum er leitað til heimilislæknisins með þetta vandamál og þá er algengt að hann sendi bæði hjónin í rannsókn. Það er ástæðu- laust að láta konuna fara í gegnum heil- miklar rannsóknir án þess að karlmaður- inn sé athugaður líka.“ Hefur Guð- mundur Vikar orðið var við tregðu karlmanna til að fara í rannsókn? „Já, ekki get ég neitað því, en það hefur breyst með breyttum tíðaranda. Einn og einn sé ég alltaf sem hefur verið vísað miklu fyrr til mín, en ekki látið sjá sig.“ Hvað ætli valdi þessu? „Tilhugsunin um ófrjósemi virðist geta haft mikil áhrif á karlmann sem einstakling þannig að honum finnist hann vera minni karlmað- ur fyrir vikið. Þess misskilnings gætir í sambandi við ófrjósemi að menn rugla henni saman við getuleysi. Ofrjósemi er ekki getuleysi, þótt getuleysi geti verið vandamál barnlausra hjónabanda. Oftast er vandamálið þó allt annað." ÝMSAR SKÝRINGAR TIL Á ÓFRJÓSEMI Þegar karlmaður kemur í rann- sókn til mín vegna barnleysis í hjónabandi byrja ég á að fá sjúkrasögu mannsins og skoða hann,“ heldur Guðmundur Vikar áfram. „Ég sendi hann þegar í stað í sæðispróf því það gefur oft til kynna hvort eitthvað er að hjá honum. Skýringanna getur ver- ið að leita í sjúkrasögu mannsins. Hettu- sótt, lyf, meðferð vegna efnaskipta- eða hormónasj úkdóma, vöðvauppbyggj andi lyf (anabólar) og alvarlegar sýkingar á borð við kynsjúkdóma sem geta stíflað sæðisganga geta verið orsök ófrjósemi hjá karlmönnum. Menn gera sér ekki grein fyrir hve mikla áhættu þeir taka þegar þeir eru að byggja upp vöðvana með lyfjum. Anabólar hafa mjög slæm áhrif á eistu manna. Kynsjúkdómar eru annar alvarlegur áhættuþáttur og leiða oft til ófrjósemi. Það er aldrei of gæti- lega farið o^ það reyni ég að brýna fyrir mönnum. Eg leita einnig eftir öðrum hugsanlegum skýringum í sögu manns- ins, eins og til dæmis hvernig honum gengur að hafa samfarir." TUTTUGU MILLJÓNIR Á MILLILÍTRA Telur Guðmundur Vikar að menn hafi mikið gagn af skoð- un af þessu tagi? „Við skoðun geta komið fram þekktar orsakir ófrjósemi. Ég at- 52 HFIMSMYND
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Heimsmynd

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.