Heimsmynd - 01.03.1988, Side 105

Heimsmynd - 01.03.1988, Side 105
MAÐUR MANAÐARINS JÓHANN HJARTARSON Hann átti ekki önnur áhugamál en skákina, fór að vísu í sund með hinum strákunum, en var aldrei í fótbolta eða öðrum álíka íþróttum. Allir vissu að þessi tuttugu og fimm ára gamli Reykvíkingur var efnilegur skákmaður og átti framtíð fyrir sér í grein- inni. Aðeins sautján ára gamall varð hann íslandsmeistari í skák og þótti vel að því kominn að verða efstur á milli- svæðamótinu í sumar. Fæstum kom þó til hugar, þegar hann fór utan til að tefla einvígisskákina við Victor Kortsnoj, að hann ætti eftir að leggja þennan mikla skákmann og fyrrum heimsmeistara að velli. Hvorki skákmeistararnir, eiginkon- an, foreldrar né skákskýrendur voguðu sér að vonast eftir slíkum árangri. En hver er hann þessi ungi, hógværi maður sem þjóðin hefur eignað sér? Jóhann Hjartarson er sonur Hjartar Magnússonar, lögskráningarstjóra í Reykjavík, og Sigurlaugar Jóhannsdótt- ur húsmóður. Hann er giftur Jónínu Ingvadóttur, og saman eiga þau einn son, Hjört Ingva sem er á fyrsta ári. Jóhann fór að sýna skákinni áhuga í kjölfar heimsmeistaraeinvígis þeirra Fischers og Spasskís 1972, og þá var það faðir hans sem kenndi honum mann- ganginn. Skömmu síðar gekk hann í Taflfélag Reykjavíkur. Jóhann er einka- barn foreldra sinna, „var alltaf mjög stilltur og yfirvegaður og gekk vel í skól- anum,“ segir móðir hans. Hann átti ekki önnur áhugamál en skákina, fór að vísu í sund með hinum strákunum, en var aldrei í fótbolta eða öðrum álíka íþrótt- um. Hins vegar var hann oft í sveit sem barn og naut sín vel á þeim slóðum. Hann hóf nám í lögfræði haustið 1984 við Háskóla íslands, og kynntist þá Jón- ínu konunni sinni. Þau voru skólasystkin en auk þess lágu leiðir þeirra saman þeg- ar íslandsmótið í skák var haldið á Hótel Hofi, sama ár. Jóhann er því kominn á fjórða ár í lögfræði, en varð að leggja námið til hliðar í vetur, vegna undirbún- ingsins fyrir einvígið. Hann hefur hins vegar hug á að taka upp þráðinn áður en langt um líður, en leiðir hugann ekki mikið að lagakrókum sem stendur. „Hann er vissulega svolítið utan við sig,“ svarar Jónína kona hans þegar hún er spurð hvort hann sé eins og snillingur í umgengni, „en hann er reglulega góður eiginmaður og kemur manni sífellt á óvart.“ Þótt Jóhann hefði þegar getið sér gott orð sem skákmaður áður en hann hélt utan til fundar við Kortsnoj, hafði hann engu að síður verið í mótbyr um skeið. Margir muna keppnina um Norður- landameistaratitilinn 1986, þegar Jóhann tapaði öllum skákunum. Það hefur löng- um verið haft á orði að í skákheiminum - ekki síður en öðrum íþróttum - skiptist á skin og skúrir, menn séu í öldudal af og til. Jóhann komst upp úr þessum öldudal, varð efstur á millisvæðamótinu í fyrra og hélt utan. En þegar hann lék af sér í fimmtu skákinni gegn Kortsnoj og tapaði, héldu menn að nú væri öllu lok- ið; maðurinn farinn á taugum. En það sýnir meðal annars skapstyrk- inn, að Jóhann náði sér upp eftir þessa skák, enda álitinn hafa mjög sterka og þar af leiðandi mjög góða skapgerð fyrir skákíþróttina. „Hann er rólyndur, hóg- vær og kurteis, en fastur fyrir og ákveð- inn. Gífurlega mikill baráttumaður," segir Guðmundur G. Þórarinsson, sem eins og aðrir átti ekki von á því að Jó- hann kæmi sem sigurvegari út úr þessu skákeinvígi. „Jóhann hefur að öllu jöfnu haft mjög heilbrigðan skákstíl," segir Jón L. Arna- son. „Hann hafði það fyrir sið að sneiða hjá flóknum stöðum og óljósum flækj- um, og lagði yfirleitt mjög skýrar línur í þeim skákum sem hann tefldi. Það kom því mjög á óvart að sjá hvernig hann tefldi við Kortsnoj; lagði fyrir hann hverja flækjuna á fætur annarri, vitandi að Kortsnoj er talinn mjög góður í flækj- um. Hann minnti áþreifanlega á Friðrik Ólafsson, og tók mun meira frumkvæði en hann hefur gert áður.“ Jón L. Árnason gerði sér heldur ekki vonir um sigur, þegar Jóhann hélt utan, vissi sem var að Kortsnoj yrði ákaflega erfiður, enda lífsreynt hörkutól. „Jóhann lék kannski ekki alltaf bestu leikina, en hann tefldi vel. „Hann er ótrúlega alhliða skákmað- ur,“ segir Guðmundur G. Þórarinsson, eins og hann hafi ekki fyllilega trúað því fyrr. „Hann sýnir styrk í öllum þáttum taflsins; byrjun, stöðubaráttu og flækju, virðist kunna best við sig í flóknu tafli og leikur sóknina og vörnina mjög vel. Hann hefur sýnt að hann býr yfir af- burða styrk.“ Hvað sem því líður, þá fékk Jóhann einstakt tækifæri þegar honum gafst kostur á að tefla við Kortsnoj, og komast þannig í hóp þeirra átta skákmanna sem keppa um að fá að skora á heimsmeistar- ann. Flest bendir til þess að í þeim slag hafni hann á móti Karpov, fyrrverandi heimsmeistara, svo þar gefst annað kær- komið tækifæri til að innbyrða þá lífs- reynslu sem fylgir því að tefla við einn snillinganna. „Það verður aldrei eins grimmur bar- dagi við Karpov og var við Kortsnoj, því Karpov er þekkt prúðmenni,“ segir Jón L. Arnason. En líkt og aðrir talar hann ekki um sigurlíkur í því sambandi, enda kannski til fullmikils ætlast. En það var heldur ekki talað um sigurlíkur fyrir ein- vígið við Kortsnoj, og eins og Jónína segir: „Jóhann er alltaf að koma mönn- um á óvart.“ □ HEIMSMYND 105
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Heimsmynd

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.