Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.2019, Qupperneq 2

Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.2019, Qupperneq 2
2 22. nóvember 2019FRÉTTIR hlutir sem þú vissir ekki um Katrínu Jakobs Forsætisráð- herra vor stígur nú ölduna í ólgusjó Sam- herjamálsins, en hér eru fimm skemmti- legar stað- reyndir sem þið vissuð kannski um Katrínu Jakobsdóttur. Æskuástin Katrín elskaði leikarann Kevin Bacon í upp- vextinum en bar nafn hans ávallt fram Kevin Ba-coon. Síðar tók leikarinn Keanu Reeves við sem átrúnaðargoð. „Hann er líka fallegasti maður í heimi og er góður bardagamaður og stór- leikari. Svo er hann líka alltaf svo flott klæddur,“ sagði Katrín í viðtali við Fréttablaðið. Dúxaði ekki í leikfimi Katrín útskrifaðist úr MS árið 1996 með 9,7 í aðaleinkunn og dúxaði það árið. Lægsta einkunn hennar var í leikfimi, 8. „Ég skil nú bara ekkert í þessu, því mér fannst mjög gaman í leikfiminni, mætti alltaf, kennarinn var frábær og ég fékk 9 í kennaraeinkunn,“ sagði hún við útskrift. Gafst upp á Davíð Katrín og Davíð Þór Jóns- son voru í sambandi í um sjö ár ár og bjuggu saman um tíma. Ástin kviknaði í sjónvarpsþættinum Gettu betur en þar var Davíð Þór spyrill en Katrín stiga- vörður. Davíð Þór hefur sjálfur látið hafa eftir sér að Katrín hafi gefist upp á honum vegna þeirrar staðreyndar að hann var fársjúkur alkóhólisti á þessum árum. Umdeild ráðning Katrín var ráðin ritstjóri Stúdentablaðsins árið 2000 og þótti ráðn- ingin umdeild vegna pólitískrar tengingar hennar við Röskvu. Meðal undirmanna hennar á Stúdentablaðinu voru sjónvarpsstjarnan og framleiðandinn Inga Lind Karlsdóttir og Þorbjörg Gunnlaugsdóttir, lög- fræðingur og flokkskona Viðreisnar. Fjölbreytt fram- tíðarplön Katrín var kosin varafor- maður Vinstri grænna árið 2003 og var í kjölfarið tek- in í viðtal í Morgunblaðinu. Í viðtalinu kom í ljós að hún ætlaði alls ekkert að verða stjórnmálamaður þegar hún var yngri. „Ég ætlaði að verða popp- stjarna eða skurðlæknir. En svo langaði mig líka dálítið að verða geimfari.“ Á þessum degi, 22. nóvember 1617 – Akmeð 1. Tyrkjasoldán lést 1907 – Í Reykjavík fengu giftar konur kosningarétt og kjörgengi til sveitar- stjórnar. 1968 – Hvíta albúmið eða The Beatles kom út í Bretlandi. 1994 – Leikjatölvan Sega Saturn kom út í Japan. 2005 – Angela Merkel var kjörin kanslari Þýskalands af þýska sam- bandsþinginu og varð fyrsta konan til að gegna því embætti. Fleyg orð „Ég er fæddur til að gera mistök, ekki til að eltast við fullkomnun.“ – Drake VARÐ ÓVÆNT STJARNA VIKUNNAR n Gunnhildur vakti athygli í borgaraþætti um loftslagsmál n Æltar ekki að láta aktífismann heltaka sig É g hef alltaf verið haldin framkvæmdagleði. Ég tók þátt í Morfís og lærði þar kappræður. Ég fékk ráð frá þjálfurum mínum um hvernig ég gæti komið sem best út í sjón- varpinu og hvernig ætti að herja á. Ég vil gefa Morfís mest kredit fyrir ræðumennskuna og að ég hafi staðið í lappirnar þarna,“ seg- ir Gunnhildur Fríða Hallgríms- dóttir, sautján ára nemi og að- gerðarsinni. Sterk réttlætiskennd Gunnhildur vakti mikla athygli á borgarafundi um loftslags- mál sem sýndur var á RÚV í vik- unni. Var það mál manna að hún hafi staðið uppi í hárinu á ráða- mönnum og verið rökföst í sín- um málflutningi. Gunnhildur er fyrrverandi formaður Sambands íslenskra framhaldsskólanema og einn af stofnendum hópsins Loftslagsverkföll, sem hefur stað- ið fyrir loftslagsverkföllum síðan í febrúar á þessu ári. Gunnhildur útskrifast úr Tækniskólanum í desember og hefur lagt stund á tækni-, vísinda- og frum- kvöðlafræði. Hún er býr í Hvera- gerði og tekur strætó á hverjum degi í skólann. Það voru tengslin við náttúruna sem urðu til þess að hún byrjaði að berjast fyrir um- hverfinu. „Ég bý nánast úti í sveit og er mjög annt um náttúruna. Við það að horfa á heimildamynd- ir og tala við mömmu, sem er heimspekikennari, um lofts- lagsmál áttaði ég mig á því- líkt ranglæti þetta er. Þessi vá mun bitna fyrst á fólki sem býr í þróunarlöndum, ekki Vestur- landabúum sem halda áfram að neyta og sóa. Það er sterk rétt- lætiskennd í mér og ég varð svo pirruð að ég ákvað að gera eitt- hvað í þessu,“ segir hún. Tók þetta alla leið Eins og áður segir vakti Gunn- hildur athygli á borgarafundin- um í vikunni, en upphaflega átti hún aðeins að bera upp spurn- ingu úr sal. „Ég spurði hvort ég gæti ekki tekið þátt í kappræðunum, því ég vissi að unga fólkið myndi kvarta ef það hefði engan málsvara. Það var samþykkt,“ segir Gunnhild- ur. „Ég elska kappræður en ég var rosalega stressuð fyrst, sér- staklega þegar var verið að kynna alla inn. Mér fannst verið að gera mjög spennuþrungið sjónvarps- efni úr þessu. Þegar ég byrjaði að tala þá róaðist ég og ég hafði alltaf í huga að ég myndi sjá meira eft- ir því að segja ekki eitthvað rót- tækt heldur en að segja eitthvað sem væri aðeins of mikið. Þannig að ég tók þetta alla leið,“ segir Gunnhildur og bætir við að hún hefði viljað tala meira um lausn- ir í þættinum. „Það er alveg póli- tískt. Það á ekki að vera pólitískt að loftslagsváin er til. Það eru vísindi. Það er hins vegar póli- tískt hvernig við bregðumst við henni.“ Gagnrýnd fyrir að ferðast Gunnhildur segist hafa fengið mikið lof fyrir frammistöðu sína í þættinum. Hins vegar hafi bor- ið á gagnrýnisröddum líka og einhverjir hafa fett fingur út í að Gunnhildur hafi ferðast í sumar og flogið til útlanda. Gunnhildur reynir að taka ekki mark á slíkri gagnrýni. „Ég er alls ekki fullkomin. Við þurfum ekki öll að vera fullkom- in. Ef við minnkum neyslu um 20% erum við strax á góðum stað. Ef við segjum öllum að þeir verða að vera fullkomnir þá veld- ur það loftslagskvíða. Það er ekki heilbrigt,“ segir hún. „Ef maður er að reyna að vera aktífisti þá fer fólk fljótt að skjóta á mann sjálfan. Ég held að það sé leið til að vera ósammála málstaðn- um að byrja að skjóta á flytjand- ann. Ég tek þessu ekki persónu- lega. Ég hugsa að ég hafi staðið mig ágætlega ef fólk er það sárt að það talar um það á samfélags- miðlum að ég hafi verið að ferð- ast.“ Gunnhildur, í félagi við aðra í loftslagsverkfallshópnum, hefur sett þrýsting á stjórnvöld og reynt að sannfæra þau um ýmsar lausnir. „Það er ekki mikið hlust- að,“ segir Gunnhildur. Hún trúir því að Ísland gæti verið leiðandi ríki í róttækum aðgerðum í lofts- lagsmálum, ríki sem aðrar þjóðir geta litið upp til. Hún segir aktífis- mann samt sem áður ekki heltaka allt hennar líf. „Ég spila á píanó, mér finnst gaman að fara út með hundinn minn og ég rek fyrirtæki með vinum mínum sem heitir Robox. Ég vil ekki að umhverfismál heltaki líf mitt. Ég vil frekar virkja fleiri í baráttunni. Ég vil ekki að fólk haldi að ég ætli að taka bar- áttuna fyrir það. Við erum öll í þessari baráttu. Þetta á ekki bara að vera ég.“ n Lilja Katrín Gunnarsdóttir lilja@dv.is „Við erum öll í þessari baráttu. Þetta á ekki bara að vera ég.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.