Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.2019, Síða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.2019, Síða 4
4 22. nóvember 2019FRÉTTIR Græni tryllingurinn S varthöfði er það sem kalla má „afneitunarpési“ þegar kemur að loftslags- málum. Hann trúir ekki öllu sem hann heyrir, enda engin ástæða til þess. Fólk er nú einu sinni mjög gjarnt á að ljúga. Upp í opið geðið á manni. En umræðan um loftslagsmál á Íslandi er svo skrýtin. Það eiga allir að marsera í einum takti, ekki efast, ekki dirfast að viðra aðra skoðanir en þær „réttu“. Þessi svokölluðu „vísindi“ eiga víst að búa yfir öllum svörunum. Og Svarthöfði á bara að fylgja vís- indunum í blindni eins og ekk- ert sé sjálfsagðara. Svarthöfði á að óttast um tilveru sína ef hann flokkar ekki, minnkar neyslu, minnkar sóun, flýgur minna, leggur bensínháknum og verður í stuttu máli betri manneskja. Þvílík endemis vitleysa. Hvernig getur einn maður eins og Svarthöfði, þótt afar kröftugur og vel gerður maður sé, haft ein- hver áhrif? Ef Svarthöfði flokk- ar plastið frá bananahýðinu, bjargar hann þá barni í Afríku? Ef Svarthöfði hitar upp afgang- ana frá því í gær og pínir gamlan mat ofan í sig, þýðir það þá að ástandið lagist í regnskógunum? Svarthöfða finnst einfaldlega of miklar kröfur á sig gerðar. Má hann ekki bara lifa sínu lífi eins og hann vill? Þessi svokölluðu vísindi eru á villigötum. Vinna bara fyrir einhverja hagsmunaseggi sem græða á tá og fingri á öllum um- hverfisvænu lausnunum, öllum maíspokunum sem brotna nið- ur í náttúrunni, öllu sjálfbæra draslinu sem enginn veit hvað er. Vísindin segja að þau tali fyrir framtíð heimsins. Hvað hafa vís- indin gert fyrir Svarthöfða? Ekk- ert. Hvað hefur Svarthöfði gert fyrir vísindin? Allt. n Svarthöfði Það er staðreynd að… Ninjastjörnur eru ólöglegar á Íslandi. Heimilt er þó að víkja frá banni ef stjarnan hefur söfnunargildi eða sér- stakar ástæður mæla með kaupunum. Kakkalakkar geta lifað í níu daga án höfuðs. Winston Churchill fæddist á dansleik, á kvennaklósettinu. Blóð okkar manna ferðast tæplega 20.000 kílómetra um líkamann okkar á hverjum degi. Flestir korktappar eru framleiddir á Spáni. Hver er hann n Hann er fæddur í Reykjavík þann 15. desember árið 1953. n Hann varð fyrst þekktur á Íslandi þegar honum bauðst staða aðal- söngvara í hljómsveit snemma á áttunda áratugnum. n Hann kom fyrst fram með skólahljómsveitinni Raflost í Laugalækjarskóla. n Hann byrjaði sólóferill sinn árið 1985. n Árið 2018 vann hann að plötu með föður sínum. SVAR: HERBERT GUÐMUNDSSON n Grikkur gegn fyrrverandi kærustunni endaði með ósköpum n Valdi nafn sem þýðir „Vopn goðanna“ M aður að nafni Asgeir Ulfr var dæmdur í fyrrasumar fyrir hrottalegt morð á fyrrver- andi herbergisfélaga sínum, Christinu Scarr, í Flórídafylki. Sam- kvæmt skýrslu lögreglunnar var Ulfr í gríðarlegu uppnámi vegna þess að Scarr neitaði honum um stefnumót og átti kærasta fyrir. Upprunalegt nafn árásarmannsins er Michael Paul Lobianco en hann breytti því í Asgeir Ulfr, sem er einfaldlega bor- ið fram „Ásgeir Úlfur,“ en hann er ætt- aður frá Bandaríkjunum. Kemur fram í skýrslu lögreglu að hann hafi skipt um nafn til að losa sig við tengsl við föður sinn, sem hann var sagður hata, og vegna áhuga hans á norrænni goða- fræði. Fornafnið merkir einfaldlega „Vopn goðanna.“ Ulfr játaði að lokum sök í mál- inu og sagði að dauði konunnar hefði verið slys og hefði hann aðeins ætl- að að hræða hana. Áform hans byggð- ust á því að sviðsetja innbrot á heimili Scarr í dulargervi og hann myndi sjálf- ur hringja á neyðarlínuna þegar að því kæmi. Því faldi hann sig í skáp og beið þess að hún kæmi heim. Það gerði hún og með henni í för var nýr kærasti henn- ar og greip Ulfr til þess ráðs að fela sig í skápnum alla nóttina. Næsta dag, þegar kærasti Scarr yfirgaf heimilið, stökk Ulfr úr skápnum og réðst á Scarr. Í tilkynningu kemur fram að Ulfr hafi barið Scarr ítrekað, kyrkt hana til dauða og bundið hana upp. Þegar upp komst um sviðsetningu innrásarinnar fór rík- issaksóknari fram á dauðarefsingu. Til að mynda náðist Ulfr á upptöku í Wal- -Mart verslun þar sem hann keypti lím- band og ýmsa fjötra sem fundust síðar á vettvangi. Fyrirtaka í máli Ásgeirs fer fram nú í desember. Farið fram á dauða- refsingu „Ásgeirs“
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.