Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.2019, Page 16

Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.2019, Page 16
16 22. nóvember 2019FRÉTTIR SANDBLÁSTURSFILMUR Sundaborg 3 104 Reykjavík 777 2700 xprent@xprent.is Ráðgjöf Tilboð Hönnun Uppsetning „VIÐ EIGUM EKKI AÐ ÞURFA JARÐA BÖRNIN OKKAR“ n Halla fæddi andvana barn n „Eitt af því leiðinlegasta sem ég heyri er spurningin hvort ég sé ekki komin yfir þetta“ H alla Árdísardóttur gekk í gegnum þá erfiðu reynslu að fæða andvana barn og segir útilokað að hægt sé að yfirstíga sársaukann sem fylgir því að sjá barnið sitt dáið. Hún segir samfélagið staðnað hvað viðhorf gagnvart þessu málefni varðar enda fái hún þá spurningu furðulega oft hvort hún sé ekki búin að jafna sig. „Eitt af því leiðinlegasta sem ég heyri er spurningin hvort ég sé ekki komin yfir þetta. Svarið mitt er alltaf það sama og mun aldrei breytast. Nei, því það að hafa þurft að horfa á litla kistu með barninu mínu fara ofan í jörðina er eitthvað sem ég mun aldrei komast yfir. Það er eitthvað sem á ekki að gerast, við eigum ekki að þurfa að jarða börnin okkar, heldur eiga þau að lifa lengur en við.“ Halla, sem er tuttugu og tveggja ára, er í sambandi með Alla Unnarssyni og var litla stúlkan þeirra fyrsta barn. „Í dag eru liðin fimm ár síðan mér var sagt að dóttir mín gæti ekki lifað nema í stuttan tíma utan móðurkviðar og að sá stutti tími yrði afskaplega sársaukafullur fyrir svona lítinn líkama.“ Hún ítrekar að það sé ekkert í heiminum verra en að missa barn og aldrei neitt eðlilegt við það. „Það er ekkert sem maður kemst yfir heldur lærir maður bara að lifa með þessu,“ segir Halla alvarleg og heldur áfram. „Ég hef ekki lært það sjálf, en ég skil satt best að segja ekki þegar fólk þykist tengja við þessa reynslu án þess að hafa gengið í gegnum það sjálft. Auðvitað óska ég þess innilega að enginn þurfi að ganga í gegnum neitt þessu líkt, ekki einu sinni mínum versta óvini. Hvort sem barnið er enn í móðurkviði, deyr í fæðingu eða tuttugu árum síðar er það alltaf jafn sárt.“ Mæður sem missa börnin sín líklegri til að deyja fyrir fimmtugt Rannsókn var birt í nýjasta hefti vísindatímaritsins eLife sem byggir á samanburði á dánartíðni tæplega 48 þúsund foreldra sem misst höfðu barn. Niðurstöðurnar sýndu að þær mæður sem ganga í gegnum þann harmleik að missa barn eru í aukinni hættu á að verða fyrir ótímabæru andláti. Rannsóknin spannaði tveggja alda tímabil en þar mátti sjá nokkrar breytingar eftir þeim tíma er um ræddi. Ótímabær andlát mæðra sem fæddar voru á bilinu 1800– 1930 voru um 35% eftir barnsmissi en 64% meðal þeirra mæðra sem fæddar voru eftir 1930. Í Morgunútvarpi rásar tvö ræddu þau Unnur Anna Valdimarsdóttir, prófessor við læknadeild Háskóla Íslands, og Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, niðurstöður rannsóknarinnar. Þar staðfestir Kári að harmur kvenna hafi töluverð áhrif á lífslengd þeirra. „Ef við skoðum ástandið í íslensku samfélagi upp úr miðri síðustu öld þá er ungbarnadauði hér algengari en nokkurs staðar annars staðar í heiminum. Það er mesti ungbarnadauði sem skráður hefur verið.“ Félagsfræðingar hafi sett fram þá kenningu að konur hafi brugðist við ungbarnadauðanum með því að brynja sig, með því að minnka tilfinningaleg tengsl við börnin sín. „En staðreyndin er sú að það er bara vitleysa. Konur á þessum tíma urðu fyrir jafn miklum áföllum þegar börnin þeirra dóu, það hafði jafn mikil áhrif á lífslengd þeirra, eins og það hefur í dag, sem bendir til þess að þessi sterku tilfinningatengsl mæðra við börnin sín séu meðfædd,“ segir Kári. Konan geti ekki komið í veg fyrir áhrifin með að brynja sig, líkt og haldið hafi verið fram. Unnur segir að lýsingar á dauðsföllum innan fjölskyldna úr dagbókarfærslum á 19. öld séu oft frekar hversdagslegar. Þá hafi jafnframt ríflega helmingur foreldra upplifað það að missa barn sitt. „Það hefur skapað deilur á milli ólíkra sagnfræðinga sem rýna í þessar færslur og sumir telja að það sé merki um það að fólk hafi ekki þjáðst – en þessar niðurstöður benda til þess að það hafi verið þjáning á þessum tíma.“ Mikilvæg umræða Barnsmissir er eitthvað sem margir ganga í gegnum en minna er talað um. n „Hvort sem það barnið er enn í móðurkviði, deyr í fæðingu eða tuttugu árum síðar er það alltaf jafn sárt.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.