Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.2019, Side 39
Stóra jólablaðið22. nóvember 2019 KYNNINGARBLAÐ
Kynlífstækjaverslunin Hermosa.is er ein hraðast vaxandi vefverslun með hjálpartæki
ástarlífsins á Íslandi í dag. Þessi
flotta vefverslun er nýorðin eins
árs og er ekki að ástæðulausu
að gengur svona vel. Ókeypis
heimsendingarþjónusta, lágt verð og
vel valdar vörur sem hafa sýnt sig og
sannað. Hermosa er besta vinkona
þeirra sem langar að kynna sér
unað kynlífstækjanna á þægilegan,
auðveldan og síðast en ekki síst,
skemmtilegan máta.
Zalo Hero er afar fjölhæfur titrari
sem virkar í grunninn eins og egg.
Hetjan inniheldur PulseWave™
tæknina sem gerir tungu hetjunnar
kleift að hreyfast allt að 75 sinnum á
sekúndu. Hetjan er til þess hönnuð að
veita ójarðneskan unað enda hreyfist
engin mennsk tunga svona hratt.
Spöruðu viðskiptavinum sínum yfir
1.000.000 kr.
Upphaflega byrjuðu
Vilhjálmur og Kristín að flytja
inn kynlífstækjadagatöl, en
ævintýrið hófst þegar þau upplifðu
verðósamræmið á þessum vörum
hér heima. „Verðálagning var hátt í
50% hjá íslenskum heildsölum ofan
á það sem varan kostar á Amazon
t.d. Þegar við tókum saman sölu
fyrstu 12 mánuðina og bárum verðin
saman við verð samkeppnisaðila,
sáum við að við höfðum sparað okkar
viðskiptavinum yfir eina milljón króna.
Upphæðin er gífurleg miðað við það
að við vorum ný á markaðnum og
seldum því ekkert rosalegt magn,“
segir Vilhjálmur Þór Gunnarsson,
annar stofnenda Hermosa.is.
Rocco Siffredi mælir með
Satisfyer men múffunni. „Múffa þessi
veitir óviðjafnanlega fullnægingu.
Hún er þröng og aðlagar sig að
stærð typpisins.“
Þokkafull heimasíða og gegnsæ verð
Frá upphafi var áherslan lögð á
að hafa lág verð og kaupferlið
sem einfaldast. „Hluti af því er
að enginn aukakostnaður bætist
við vöruna. Það er því enginn
sendingarkostnaður eða annar
kostnaður sem bætist við í
kaupferlinu. Verðin á síðunni eru
verðin sem þú færð vöruna á. Að
auki fannst okkur mikilvægt að
heimasíðan væri sem einföldust.
Í könnun á meðal viðskiptavina
skoruðu þessi þjú atriði hvað hæst,
þannig að markmiðið hefur náðst
hvað það varðar, en einnig hefur
þjónustan fengið frábær viðbrögð.“
Satisfyer Luxury er hannað með
þarfir konunnar í huga ásamt því að
vera fallegt og elegant, en það er gert
úr leðri, málmi og hágæða silíkoni.
Það nennir enginn að skoða 300
dildóa
„Við vildum gera fólki auðvelt að
versla sér kynlífstæki á netinu.
Reglan er því sú að bjóða helst ekki
upp á of margar tegundir í hverjum
vöruflokki fyrir sig. Það nennir
enginn að skoða 300 dildóa sem
gera mestmegnis nákvæmlega
það sama. Frekar leggjumst við í
rannsóknarvinnu við að finna góð
kynlífstæki sem eru vinsæl erlendis
og hafa gott orðspor. Til dæmis
vorum við ekki í neinum vandræðum
með að taka að okkur umboð fyrir
Zalo-vörurnar sem hafa tröllriðið
kynlífstækjasamfélaginu undanfarið.
Zalo er afar framarlega þegar
kemur að framleiðslu kynlífstækja
fyrir konur og var Zalo Queen t.d.
valið besta kynlífstækið fyrir konur
árið 2019, besta lúxuskynlífstækið
og besta pakkningin.
Drottning titraranna. Zalo Queen-
titrarinn er miklu meira en bara
titrari! Fjölbreyttasta kynlífstækið
sem við seljum.
Til þess að gera
kynlífstækjakaup enn
skemmtilegri munum við á
næstu dögum bæta
við myndböndum
inn á síðuna sem
fjalla um vörurnar.
Í sumum tilfellum
eru myndböndin
frá framleiðanda
og í öðrum
frá youtube-
notendum sem
starfa við það að
gera umsagnir
um vörur, þ.á.m.
kynlífstæki. Þetta er liður
í því að bæta þjónustuna enn frekar,
fólk vill horfa á myndbönd og það
þarf ekki lengur að leita á netinu
heldur getur séð vídeó og umsagnir
beint á síðunni okkar ef að það er til.“
Breiddu út boðskapinn!
Hermosa.is heldur úti sérstökum
Unaðsklúbbi sem veitir aukaafslátt
í samræmi við stigafjölda og
ýmis fríðindi. „Með því að halda
auglýsingakostnaði í lágmarki getum
við í staðinn boðið viðskiptavinum
okkar upp á betri verð. Ein leið til
þess er að bjóða viðskiptavinum
fríðindi og afslætti þegar þeir breiða
út boðskap Hermosa.“ Með því að
skrá sig í Unaðsklúbbinn fást 3.000
stig sem gilda sem inneign. Einnig
fást stig við hver kaup á vörum hjá
okkur. Að auki færðu stig fyrir að
líka við síðurnar okkar á Facebook
og Instagram, deila síðunni með
vinum og fleira. Með þessum stigum
vinnur fólk sér inn afslætti og fríar
vörur hjá versluninni. Einnig fær
fólk afslátt á afmælisdaginn sinn.
„Þetta hefur gengið vonum framar
enda versla viðskiptavinir við
okkur aftur og aftur. Þeir deila svo
góðri reynslu sinni með vinum og
vandamönnum og í kjölfarið spörum
við okkur kostnað sem hefði farið
í auglýsingar. Við skilum þessum
sparnaði beint til viðskiptavina okkar
í formi ódýrari vara.“
Kynna kynlífstæki í vinahópum
„Það er orðið miklu minna tabú
að ræða um kynferðismál og
kynlífstæki en áður fyrr og ég
held að það skili sér í fullnægðari
pörum og einstaklingum og
líka hamingjusamara fólki
almennt. Nýjasta hjá okkur er
heimakynningarnar. Við
vildum undirbúa
okkur vel áður en við
tækjum þetta skref
og höfum nú þegar
haldið nokkrar
kynningar. Þeir sem
hafa hitt á okkur eru
virkilega ánægðir
og þá sérstaklega
hvað tækin eru á
góðu verði hjá okkur.“
Fimm stjörnu þjónusta og
fullnægðir viðskiptavinir
Viðskiptavinir Hermosa.is hafa verið
fram úr hófi ánægðir með viðskipti
sín við fyrirtækið og fæstir gefið
færri en fimm stjörnur, af fimm
stjörnum mögulegum. „Umsagnir
fjalla oftar en ekki um þau markmið
sem við höfum sett okkur, þ.e. gott
verð, fría heimsendingu og þægilega
vefsíðu. Að auki er fólk himinlifandi
yfir þjónustunni, en við bjóðum til
dæmis upp á 30 daga skilafrest, í
stað hinna lögbundnu 14 daga. Við
leitum sífellt að nýjum leiðum til þess
að uppfylla þarfir viðskiptavina okkar
og veita þeim betri þjónustu.“
Það er ekkert skrítið að fólk sé
ánægt að versla við aðila sem
ber hag kúnnans fyrir brjósti.
„Við bjóðum upp á lægra verð en
samkeppnisaðilarnir á sömu vörum,
fría heimsendingu og betri skilafrest.
Svoleiðis viðskiptahættir geta ekki
klikkað,“ segir Vilhjálmur.
Kíktu við í hermosa.is og skoðaðu
úrvalið.
Facebook: Hermosa.is
Instagram: hermosaisland
HERMOSA.IS:
Viðskiptavinir Hermosa.is breiða út
boðskap um gleðileg kynlífstækjajól!