Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.2019, Síða 39

Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.2019, Síða 39
Stóra jólablaðið22. nóvember 2019 KYNNINGARBLAÐ Kynlífstækjaverslunin Hermosa.is er ein hraðast vaxandi vefverslun með hjálpartæki ástarlífsins á Íslandi í dag. Þessi flotta vefverslun er nýorðin eins árs og er ekki að ástæðulausu að gengur svona vel. Ókeypis heimsendingarþjónusta, lágt verð og vel valdar vörur sem hafa sýnt sig og sannað. Hermosa er besta vinkona þeirra sem langar að kynna sér unað kynlífstækjanna á þægilegan, auðveldan og síðast en ekki síst, skemmtilegan máta. Zalo Hero er afar fjölhæfur titrari sem virkar í grunninn eins og egg. Hetjan inniheldur PulseWave™ tæknina sem gerir tungu hetjunnar kleift að hreyfast allt að 75 sinnum á sekúndu. Hetjan er til þess hönnuð að veita ójarðneskan unað enda hreyfist engin mennsk tunga svona hratt. Spöruðu viðskiptavinum sínum yfir 1.000.000 kr. Upphaflega byrjuðu Vilhjálmur og Kristín að flytja inn kynlífstækjadagatöl, en ævintýrið hófst þegar þau upplifðu verðósamræmið á þessum vörum hér heima. „Verðálagning var hátt í 50% hjá íslenskum heildsölum ofan á það sem varan kostar á Amazon t.d. Þegar við tókum saman sölu fyrstu 12 mánuðina og bárum verðin saman við verð samkeppnisaðila, sáum við að við höfðum sparað okkar viðskiptavinum yfir eina milljón króna. Upphæðin er gífurleg miðað við það að við vorum ný á markaðnum og seldum því ekkert rosalegt magn,“ segir Vilhjálmur Þór Gunnarsson, annar stofnenda Hermosa.is. Rocco Siffredi mælir með Satisfyer men múffunni. „Múffa þessi veitir óviðjafnanlega fullnægingu. Hún er þröng og aðlagar sig að stærð typpisins.“ Þokkafull heimasíða og gegnsæ verð Frá upphafi var áherslan lögð á að hafa lág verð og kaupferlið sem einfaldast. „Hluti af því er að enginn aukakostnaður bætist við vöruna. Það er því enginn sendingarkostnaður eða annar kostnaður sem bætist við í kaupferlinu. Verðin á síðunni eru verðin sem þú færð vöruna á. Að auki fannst okkur mikilvægt að heimasíðan væri sem einföldust. Í könnun á meðal viðskiptavina skoruðu þessi þjú atriði hvað hæst, þannig að markmiðið hefur náðst hvað það varðar, en einnig hefur þjónustan fengið frábær viðbrögð.“ Satisfyer Luxury er hannað með þarfir konunnar í huga ásamt því að vera fallegt og elegant, en það er gert úr leðri, málmi og hágæða silíkoni. Það nennir enginn að skoða 300 dildóa „Við vildum gera fólki auðvelt að versla sér kynlífstæki á netinu. Reglan er því sú að bjóða helst ekki upp á of margar tegundir í hverjum vöruflokki fyrir sig. Það nennir enginn að skoða 300 dildóa sem gera mestmegnis nákvæmlega það sama. Frekar leggjumst við í rannsóknarvinnu við að finna góð kynlífstæki sem eru vinsæl erlendis og hafa gott orðspor. Til dæmis vorum við ekki í neinum vandræðum með að taka að okkur umboð fyrir Zalo-vörurnar sem hafa tröllriðið kynlífstækjasamfélaginu undanfarið. Zalo er afar framarlega þegar kemur að framleiðslu kynlífstækja fyrir konur og var Zalo Queen t.d. valið besta kynlífstækið fyrir konur árið 2019, besta lúxuskynlífstækið og besta pakkningin. Drottning titraranna. Zalo Queen- titrarinn er miklu meira en bara titrari! Fjölbreyttasta kynlífstækið sem við seljum. Til þess að gera kynlífstækjakaup enn skemmtilegri munum við á næstu dögum bæta við myndböndum inn á síðuna sem fjalla um vörurnar. Í sumum tilfellum eru myndböndin frá framleiðanda og í öðrum frá youtube- notendum sem starfa við það að gera umsagnir um vörur, þ.á.m. kynlífstæki. Þetta er liður í því að bæta þjónustuna enn frekar, fólk vill horfa á myndbönd og það þarf ekki lengur að leita á netinu heldur getur séð vídeó og umsagnir beint á síðunni okkar ef að það er til.“ Breiddu út boðskapinn! Hermosa.is heldur úti sérstökum Unaðsklúbbi sem veitir aukaafslátt í samræmi við stigafjölda og ýmis fríðindi. „Með því að halda auglýsingakostnaði í lágmarki getum við í staðinn boðið viðskiptavinum okkar upp á betri verð. Ein leið til þess er að bjóða viðskiptavinum fríðindi og afslætti þegar þeir breiða út boðskap Hermosa.“ Með því að skrá sig í Unaðsklúbbinn fást 3.000 stig sem gilda sem inneign. Einnig fást stig við hver kaup á vörum hjá okkur. Að auki færðu stig fyrir að líka við síðurnar okkar á Facebook og Instagram, deila síðunni með vinum og fleira. Með þessum stigum vinnur fólk sér inn afslætti og fríar vörur hjá versluninni. Einnig fær fólk afslátt á afmælisdaginn sinn. „Þetta hefur gengið vonum framar enda versla viðskiptavinir við okkur aftur og aftur. Þeir deila svo góðri reynslu sinni með vinum og vandamönnum og í kjölfarið spörum við okkur kostnað sem hefði farið í auglýsingar. Við skilum þessum sparnaði beint til viðskiptavina okkar í formi ódýrari vara.“ Kynna kynlífstæki í vinahópum „Það er orðið miklu minna tabú að ræða um kynferðismál og kynlífstæki en áður fyrr og ég held að það skili sér í fullnægðari pörum og einstaklingum og líka hamingjusamara fólki almennt. Nýjasta hjá okkur er heimakynningarnar. Við vildum undirbúa okkur vel áður en við tækjum þetta skref og höfum nú þegar haldið nokkrar kynningar. Þeir sem hafa hitt á okkur eru virkilega ánægðir og þá sérstaklega hvað tækin eru á góðu verði hjá okkur.“ Fimm stjörnu þjónusta og fullnægðir viðskiptavinir Viðskiptavinir Hermosa.is hafa verið fram úr hófi ánægðir með viðskipti sín við fyrirtækið og fæstir gefið færri en fimm stjörnur, af fimm stjörnum mögulegum. „Umsagnir fjalla oftar en ekki um þau markmið sem við höfum sett okkur, þ.e. gott verð, fría heimsendingu og þægilega vefsíðu. Að auki er fólk himinlifandi yfir þjónustunni, en við bjóðum til dæmis upp á 30 daga skilafrest, í stað hinna lögbundnu 14 daga. Við leitum sífellt að nýjum leiðum til þess að uppfylla þarfir viðskiptavina okkar og veita þeim betri þjónustu.“ Það er ekkert skrítið að fólk sé ánægt að versla við aðila sem ber hag kúnnans fyrir brjósti. „Við bjóðum upp á lægra verð en samkeppnisaðilarnir á sömu vörum, fría heimsendingu og betri skilafrest. Svoleiðis viðskiptahættir geta ekki klikkað,“ segir Vilhjálmur. Kíktu við í hermosa.is og skoðaðu úrvalið. Facebook: Hermosa.is Instagram: hermosaisland HERMOSA.IS: Viðskiptavinir Hermosa.is breiða út boðskap um gleðileg kynlífstækjajól!
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.