Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.2019, Síða 56
Stóra jólablaðið 22. nóvember 2019KYNNINGARBLAÐ
Matarmenn tóku áhugamálið
á næsta skref sem skilaði þeim
ómetanlegum tækifærum
Instagram-reikningurinn @
Matarmenn hefur náð miklum
vinsældum á síðastliðnu ári.
Matarmenn skipa þeir Anton
Levchenko og Bjarki Þór
Valdimarsson og stofnuðu þeir
reikninginn í október 2018. Hvorugur
er lærður kokkur en ástríða þeirra
fyrir mat og brennandi áhugi á að
læra nýjar eldunaraðferðir leynir
sér ekki í Instagram-þáttunum. Þar
elda þeir dýrindis veislurétti allt frá
grunni og er virðing fyrir hráefnum
og eldamennsku höfð í fyrsta sæti.
Tóku áhugamálið á næsta þrep
„Við Anton elduðum báðir mikið á
okkar eigin samfélagsmiðlum og
í framhaldinu fór fólk að leita til
okkar með spurningar varðandi
mat og eldamennsku. Þá var í
rauninni lítið annað í stöðunni en
að opna sérstakan matarprófíl og
taka áhugamálið á næsta þrep.
Einnig erum við miklir aðdáendur
matreiðsluþátta yfirhöfuð en
fannst vanta vettvang þar sem
fólk gat horft á venjulegt, ófaglært
fólk elda mat,“ segir Bjarki.
Lærðu að elda jólamatinn á
Instagram
Að sjálfsögðu ætla þeir vinirnir
að elda girnilegan jólamat í
aðdraganda jólanna og er um
að gera að fylgjast með þeim á
Instagramsíðunni þeirra. „Við erum
á fullu að undirbúa jólaþættina
okkar. Næst á dagskrá er
þakkargjörðarkalkúnninn og síðan
förum við á fullt í jólauppskriftirnar.“
Ómetanleg tækifæri
„Í rauninni var hugmyndin
upphaflega bara að fíflast og hafa
gaman af þessu en þetta framtak
hefur skilað okkur fjölmörgum
ómetanlegum tækifærum. Þetta er
ekki orðið að alveg fullu starfi enn
sem komið er, en það er þó í nógu að
snúast og mikið búið að gerast upp
á síðkastið. Við höfum verið að taka
að okkur mjög fjölbreytt verkefni,
allt frá því að skrifa uppskriftir í
bækur og blöð, upp í að sinna minni
verkefnum fyrir einstaklinga. Við
höfum til dæmis tekið að okkur að
koma í heimahús og töfra þar fram
sannkallaða veislu fyrir fólk. Við erum
alltaf til í að skoða alla möguleika og
er engin hugmynd nógu galin til að
við skoðum hana ekki.“
Matarmenn eru með vefsíðuna matarmenn.is þar sem má meðal annars fjárfesta í hinum frábæru CorkPops-upptökurum. „Við kynntumst Cork Pops-upptakaranum fyrir rúmu ári þegar við keyptum eitt stykki í Bandaríkjunum. Það má segja að við höfum gjörsamlega fallið fyrir þessari snilld við fyrstu sýn og sama má segja um þá sem fylgjast með okkur. Upptakarinn hefur leikið stórt hlutverk í þáttunum
okkar á Instagram og í hvert skipti sem hann sést í mynd fáum við ógrynni af spurningum um hann. Það varð til þess að við hugsuðum með okkur
að þessi vara þyrfti hreinlega að komast á íslenskan markað og við tókum bara málin í okkar hendur.“
Korkað vín heyrir sögunni til
CorkPops er stórsniðugur upptakari og skemmtilegur ísbrjótur fyrir hvers kyns matarboð. „Með Cork Pops-upptakaranum er tappinn í
rauninni „poppaður“ upp úr flöskunni. Í upptakaranum er gashylki sem býr til þrýsting og áhrifin verða svipuð og þegar tappa er skotið úr
kampavínsflösku. Með Cork Pops heyrir korkað vín einnig sögunni til þar sem tappinn kemur heill upp úr flöskunni, tappann er því auðvelt að nota
aftur til að loka flöskunni. Á upptakaranum er síðan fólíuskeri þannig að það er allt til alls í einni græju.
Auk þess að fást á vefsíðunni okkar, matarmenn.is, þá höfum við verið að taka þátt í svokölluðum POP-mörkuðum netverslana. Næst
verðum með á jólamarkaði í Laugardalnum helgina 30.–1. desember. Það er síðan aldrei að vita nema upptakararnir verði aðgengilegir á fleiri
sölustöðum í náinni framtíð.“
MATARMENN.IS:
Jólagjöf sem gleður