Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.2019, Síða 58
Stóra jólablaðið 22. nóvember 2019KYNNINGARBLAÐ
SJÁVARGRILLIÐ:
Hátíðlegur jólaseðill með
jólatvisti og íslenskum áhrifum
Sjávargrillið hefur heldur betur fest sig í sessi í íslenskri matarmenningu með
ljúffengum mat og skemmtilegum
jólamatseðlum. „Í ár höfum við
ákveðið að fara aðeins breytta
leið í jólamatseðlunum okkar og
bjóðum upp á nokkuð léttari mat,
með jólaívafi og undir íslenskum
áhrifum. Í fyrra var áherslan
lögð á hefðbundinn íslenskan
jólamat, en í ár verður meira af
fiski, léttreykt lambakjöt og fleira
sem minnir á jólin, án þess að vera
jólamaturinn sem við borðum svo
aftur yfir hátíðarnar. Við byrjuðum
að bjóða upp á jólaseðlana þann
14. nóvember og fólk hefur verið
virkilega ánægt með breytingarnar,“
segir Bjarni Viðar Þorsteinsson,
matreiðslumaður hjá Sjávargrillinu.
Jólamatseðillinn slær í gegn
Jólaseðillinn fæst í hádeginu og
á kvöldin fram að Þorláksmessu,
en þá verður hið sívinsæla
hádegisskötuhlaðborð. „Jólaseðillinn
er aðeins ólíkur í hádeginu og á
kvöldin. Hádegisseðillinn er þriggja
rétta. Þá er val á milli jólasúpu með
gæs, sveppum og heslihnetum í
forrétt eða grafins lax. Graflaxinn
er í hefðbundnara lagi en við leikum
okkur með meðlætið, sem mun
koma gestum skemmtilega á óvart.
Í aðalrétt er val á milli léttreykts
lambs með rauðrófu, kartöflum,
ostrusveppum og greni eða
rauðsprettu með öllu tilheyrandi.
Eftirrétturinn í hádeginu og á kvöldin
er svo að sjálfsögðu risalamande.
Á kvöldseðlinum eru tveir
forréttir, annars vegar graflaxinn
og svo rammíslenskur þorskur með
humri, jarðskokkum, perlulauk og
sólselju. Með jólakvöldseðlinum er
hægt að velja dýrindis vínpörun,
en vínsérfræðingurinn okkar hefur
nostursamlega sérvalið vín sem
passa skemmtilega með hverjum
rétti fyrir sig.“
Meðfram jólaseðlinum á kvöldin
og í hádeginu verður einnig hægt að
panta af hefðbundnum maðseðli.
Þá verður afar hátíðleg steikt
andarbringa með hægelduðu
andarlæri og andarlifur, steiktu
rósakáli og appelsínusoðgljáa á
matseðlinum fram til jóla.
Jólatvist í jólagrillpartí
„Á kvöldin fram að jólum erum
við einnig með stórskemmtilegt
jólagrillpartí, sem borið er á borð
fyrir hópinn til að deila. Það eru
átta réttir, hverj öðrum ljúffengari.
Margir hverjir eru nokkrir af okkar
vinsælustu réttum en langflestir
eru þó með einhverju skemmtilegu
jólatvisti. Þetta er svona brot af því
besta með dass af jólabragði. Þá
verður einnig hægt að fá vínpörun
með jólagrillpartíinu.“
Sívinsælt skötuhlaðborð
Þann 23. desember verður hið
frábæra skötuhlaðborð í hádeginu.
„Fólk er að panta í hlaðborðið með
allt að árs fyrirvara. Þetta er einn
skemmtilegasti tími ársins enda eru
þá jólin á morgun, allir í feiknagóðu
skapi og eftirvæntingin mikil. Við
höfum líka fengið fáeina ferðamenn
hingað í skötu en þeir elska að
upplifa eitthvað svona séríslenskt, og
flestum finnst skatan okkar meira að
segja bara furðugóð.“
Fullkomin gjöf í jólapakkann
„Gjafabréf út að borða er hin
fullkomna jólagjöf fyrir þann sem
á allt og gjafabréfin okkar eru á
20% afslætti fram að jólum. Það er
líka virkilega skemmtilegt að gefa
matarupplifun og gera handhafa
þannig færi á að njóta lífsins.“
Skoðaðu jólamatseðlana á
sjavargrillid.is
Sjávargrillið er staðsett að
Skólavörðustíg 14, 101 Reykjavík
Borðapantanir í síma: 571-1100
Myndir: Eyþór Árnason