Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.2019, Blaðsíða 68
Stóra jólablaðið 22. nóvember 2019KYNNINGARBLAÐ
KÚNÍGÚND:
10 flottar jólagjafahugmyndir
fyrir fagurkerann
Stálsvört (gunmetal) kaffikanna frá Rosendahl fyrir kaffiunnendur jafnt
sem fagurkera. Falleg kaffikanna
sem heldur vel heitu er nauðsynleg
eign fyrir jólaboðið, vöfflukaffið og
saumaklúbbinn. Og ekki skemmir
fyrir að hún kostar aðeins 9.990
krónur í Kúnígúnd.
Viðardýr frá Kay Bojesen. Einstök og vönduð viðardýr eru tilvalin í jólapakkann.
Apann ættu flestir að þekkja en
hann er fáanlegur í nokkrum litum
og stærðum. Þá eru söngfuglar
einnig sívinsælir og koma í mörgum
litum. Kay Bojesen dýrin fást í
Kúnígúnd.
Viskastykki frá Georg Jensen Damask. Línið frá Georg Jensen Damask er úr
100% egypskri bómull. Fáanlegt
frá þessu merki eru dúkar,
löberar, handklæði, viskastykki,
tauservíettur og fleira fallegt og
vandað lín. Viskastykkin henta
sérstaklega vel í gjafir en þeim má
raða saman í fallega pakka eftir
smekk hvers og eins auk þess sem
þau eru fáanleg í mörgum litum og
mynstrum.
Glerups ullarinniskór. Einstakir og vandaðir ullarinniskór í öllum regnbogans litum
og gerðum. Skórnir fást bæði með
kálfskinnssóla og gúmmísóla og
vönduð ullin temprar fæturna
þannig að þeir verða aldrei of heitir
eða of kaldir í skónum. Skórnir eru
bæði til fyrir börn og fullorðna og
kosta frá 8.995 krónum fyrir þá
eldri. Tilvalin jólagjöf fyrir kulsækna
eða þá sem kunna að hafa það
huggulegt í skammdeginu.
Henning Koppel Lanterne kertastjaki. Þessir einstöku kertastjakar frá Georg Jensen
eru fáanlegir í þremur stærðum og
kosta frá 9.990 krónum. Botninn
er úr ryðfríu stáli og toppurinn úr
hvítu gleri svo birtan verður fallega
mild þegar kveikt er á kertinu. Georg
Jensen vörurnar eru þekktar fyrir
hreinar línur og klassíska hönnun svo
Lanterne eru tilvalin gjöf fyrir þá sem
vilja nútímalega og skandinavíska
hönnun í kringum sig.
Jólavörurnar frá Holmegaard. Holmegaard jólavörurnar ættu flestir
að þekkja en á hverju ári kemur
ný jólalína frá þeim. Jólalínan
inniheldur meðal annars fallegt
aðventukerti, jólasmákökubox,
flösku og staupglös, skál og fleira
á jólaborðið. Allar Holmegaard
jólavörurnar 2019 fást í Kúnígúnd.
Frederik Bagger glös. Klassísk og vönduð glös frá danska snillingnum Frederik
Bagger. Glösin fást í mörgum
stærðum og gerðum fyrir hina
ýmsu drykki og kokteila. Frederik
Bagger glösin eru kjörin gjöf fyrir
safnarann, kokteilunnendur og
aðra fagurkera. Svo taka þau sig
ótrúlega vel út á veisluborðinu.
Glösin fást í Kúnígúnd, Kringlunni
og Glerártorgi.
Moomin brauðrist. Glæsilegt brauðrist skreytt Míu litlu úr Múmínálfunum.
Dásamlega stílhrein en
samt sérstök brauðrist fyrir
Múmínaðdáandann í þínu lífi.
Auk þess eru hraðsuðukatlar í stíl
væntanlegir í verslanir Kúnígúnd.
Moomin brauðristin kostar 19.995
krónur.
Snjóboltinn frá Kosta Boda. Sínvinsæli snjóboltinn er falleg gjöf sem gleður. Birtan
frá kertaljósinu verður yndislega
hlý og snjóboltinn er fáanlegur í
þremur stærðum. Verð frá 2.990
krónum.
Georg Jensen jólaóróinn 2019. Stílhrein og falleg gjöf handa safnaranum
í fjölskyldunni. Jólaóróinn frá
Georg Jensen kemur í nýrri mynd á
hverju ári og er því tilvalin gjöf sem
má endurtaka ár eftir ár. Georg
Jensen hefur einnig þann sið að
endurútgefa óróa á 30 ára afmæli
fyrirtækisins. Þannig má t.d. gefa
þeim sem fæddir eru árið 1989
óróann frá þeirra fæðingarári
þessi jólin.
Skoðaðu úrvalið í vefverslun Kúnígúndar, kunigund.is og í verslunum Kúnígúndar í Kringlunni og á Glerártorgi.