Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.2019, Side 69
Stóra jólablaðið22. nóvember 2019 KYNNINGARBLAÐ
JÓI KASSI OG RAMMÍSLENSKT JÓLADAGATAL:
„Þetta er mín Toy Story“
Í upphafi er söguhetjan lítið fræ uppi á hóli í miðjum skógi. Yfir fræinu vakir gamalt og virðulegt
eikartré sem heitir Eiríkur. Fræið
verður smám saman að trénu Jói.
Eins og vera ber í góðri barnasögu
persónugerast bæði tré og dýr, í
máli og myndum. Vinnuvélar herja
á skóginn, saga niður tré og breyta
í viðarplötur. Jói lifir áfram og
verður að viðarkassa, sem er til sölu
í húsgagnaverslun. Hann fer þaðan
inn á skrifstofu bankastjóra og
lendir í höndum ræningja sem ílát
undir stolin verðmæti. Viðburðarík
saga Jóa Kassa er hér rétt að
byrja,“ segir Konráð Sigurðsson
og lýsir þar með byrjuninni á
bókaflokknum um Jóa Kassa, sem
er sex bóka röð með skemmtilegum
ævintýrasögum og litskrúðugum
myndum eftir Þóri Karl Celin.
„Veistu hvað þú ert með í
höndunum, maður?“
„Þetta byrjaði allt með því að ég
fór að segja eins árs syni mínum
sögu. Hann átti erfitt með að sofna
og móðirin bað mig um að svæfa
hann því ég væri með svo róandi
rödd. Þá birtist í huga mínum tré
uppi á hól. Tréð var bara tré til að
byrja með, ekki karakter. Drengurinn
róaðist þó og sofnaði. Svo gerðist
það stuttu síðar í sunnudagsbíltúr
að drengurinn benti hrifinn út
um bílrúðuna á vinnuvél að ég
fékk hugljómum: Vél – tré! Svo hjó
vinnuvélin tréð niður. Ég sá fyrir
mér atburðarás, fór í vinnuna og
skrifaði niður beinagrind að sögu.
Þetta var 6. júní 2001. Ég setti blaðið
niður í skúffu og ekkert gerðist í
langan tíma. Árin liðu, drengurinn
hætti að þurfa að láta svæfa sig
og sagan gleymdist. Haustið 2004
dreymdi mig merkilegan draum,
hálfgerða vitrun sem sagði mér
að ég ætti til hugmynd sem myndi
koma mér til metorða. Hvað var ég
með? Hvað átti ég til? Þá dúkkaði
blaðið í skúffunni upp aftur. Ég
sýndi samstarfsmanni mínum
beinagrindina. Hann sagði: „Veistu
hvað þú ert með í höndunum,
maður?“ og tíminn var runninn upp
til að gera hugmyndina að veruleika.“
Ein löng saga verður að sex bókum
„Þessi áramót strengdi ég þess
heit að klára söguna og gerði það
á einu ári. Ég leitaði ráðgjafar frá
Karli Helgasyni hjá bókaútgáfu
Æskunnar. Hann ráðlagði mér að
skipta verkinu niður því það væri of
mikið að gerast í handritinu. Þannig
varð Jói Kassi að sex bóka seríu
þar sem myndir leika stórt hlutverk.
Árið 2007 komst ég í samband
við teiknarann Þóri Karl Celin sem
þá starfaði hjá Latabæ og sagði
honum að þetta væri mín Toy Story.
Ég var með grófar hugmyndir en
hafði aldrei fengið teikningarnar
mínar til að ganga upp en Þórir
Karl gerði þetta listavel.“ Innblástur
í sögurnar sækir Konráð til
mótunarára sinna í Svíþjóð. „Ég bjó
þar frá sex ára aldri fram til tvítugs.
Ýmislegt úr umhverfinu hefur ratað
í bækurnar, til dæmis skógarnir
og endurvinnslan.“ Bækurnar
hafa notið vinsælda síðan þær
komu fyrst út jólin 2010 og seljast
jafnt og þétt í bókaverslunum,
sérstaklega fyrir jólin. Á hverju
ári eignast Jói fjölmarga nýja
lesendur í aldurshópunum 3–8
ára, en bækurnar eru víðlesnar í
leikskólum. Einnig eru bækurnar
tilvaldar fyrir jólasveina að lauma í
skóinn hjá krökkunum.
Fjölmörg verk í smíðum
Konráð hefur einnig gefið út þrjár
jólabækur um Jóa Kassa sem eru
litabækur með sögu. Að auki er
hann með fjölmörg ritverk í smíðum.
„Ég er með um tíu handrit, ýmist
langt komin eða fullkláruð og bíða
útgáfu. Konráð hefur þá hafið ritun
nýs bókaflokks um Lepp, karakter úr
Jóa Kassa-seríunni sem er kominn
með eigin upprunasögu. Það verða
sex framhaldsbækur og þriðja bókin
í seríunni, Leppur og höfðingjarnir,
kemur út á næsta ári. Einnig er
væntanleg Vinalega fuglahræðan,
ný barnasaga. Það er ástríðublik í
augum Konráðs þegar hann ræðir
um ritverk sín og framtíðardrauma.
„Ég er að vinna í skáldsögu sem
er eins konar fullorðinsútgáfa af
Palli var einn í heiminum. Sú saga
er ljót og skuggaleg.“ Samhliða
ritstörfunum rekur Konráð fyrirtækið
Xprent-hönnun og merkingar ehf., í
Sundaborg 3 í Reykjavík. Xprent er
skiltagerð sem sinnir prentþjónustu
og alhliða merkingum.
Dagatalið Jói Kassi
Jólin 2017, eftir að hafa gengið
með hugmyndina í um 5 ár setti
Konráð á markað jóladagatal með
Jóa Kassa. „Mér fannst bráðvanta
íslenskt dagatal og fannst því
tilvalið að nota Jóa Kassa, enda
þekkja hann mörg börn. Ég hafði
samband við Freyju sælgætisgerð,
en allir mínir uppáhaldsmolar eru í
hátíðarpakkanum frá þeim. Freyja
tók vel í þetta og ég kaupi nammið
beint af þeim. Svo fann ég aðila sem
voru tilbúnir að framleiða kassann
og plastbakkann fyrir dagatalið á
skikkanlegu verði. Þarna er kominn
íslenskur karakter á jóladagatal í
jólastuði. Það er líka snjókarl utan
á og svo framvegis,“ segir Konráð,
en eins og sést á myndunum er
dagatalið bæði líflegt og fallegt.
Pökkunin fer fram á Íslandi og aftan
á eru úrklippufígúrur fyrir börnin til
að klippa út á aðfangadag, þegar
þau eru búin að opna síðasta
gluggann. Einnig er jólaleikur aftan á
dagatalinu sem börnin geta skemmt
sér við þar sem þau bíða þess
spennt að opna síðustu gluggana. „Í
leiknum er hægt að komast í pott og
vinna til ýmissa verðlauna.“
Bækurnar eru til sölu í völdum
Eymundsson-búðum og Jói Kassi
dagatalið er til sölu í flestum
Hagkaupsverslunum og í fríhöfninni
í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Það er
hægt að kynna sér þetta betur á
Facebooksíðu Jóa Kassa og heimasíðu
Jóa Kassa á: www.joikassi.is.
Myndir: Eyþór Árnason