Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.2019, Side 74
Stóra jólablaðið 22. nóvember 2019KYNNINGARBLAÐ
ISR MATRIX:
Gefðu ástvinum þínum styrk
og öryggi í jólagjöf
Jón Viðar stofnaði upphaflega íþróttafélagið Mjölni en rekur nú ISR Matrix. „ISR
stendur fyrir Inngrip (Intercept),
Stöðva (Stabilize) og Ráða úr
(Resolve). ISR er alhliða sjálfsvörn
sem byggir á einföldum grunni úr
bardagaíþróttum sem auðvelt er að
ná tökum á. ISR má leggja stund á
og æfa eins og íþróttirnar sem ISR
byggir á, en áherslan er lögð á að
verjast ofbeldi eins og það gerist í
raunveruleikanum,“ segir Jón.
Í ISR er lögð áhersla á að
verjast, koma sér undan og verjast
átökum. Við göngum aldrei lengra
en nauðsynlegt er til að vinna
bug á óréttlætinu sem við, og/
eða þriðji aðili, verðum fyrir. Hjá
ISR kennum við ekki ofbeldi, við
kennum vörn gegn því.
Gjafabréf að öryggi
Hjá ISR Matrix fást gjafabréf með
upphæð að eigin vali. „Fyrir andvirði
gjafabréfsins getur handhafi valið
sér námskeið að eigin vali sem
hentar hverjum og einum. Við
bjóðum upp á tvö grunnnámskeið,
í öryggistökum og sjálfsvörn (ISR
101), sjálfsvörn f. Konur (CAT 101).
Bæði námskeiðin auk framhaldstíma
er hægt að sækja hjá ISR Matrix í
Sporthúsinu. Þetta eru frábærar
gjafir, sýna hugulsemi gefandans
og veita þeim sem hljóta þær styrk
og hugrekki til þess að verjast gegn
ofbeldi og öðlast aukið öryggi.“
Upplýsingar um hvenær næstu
námskeið byrja má finna á vefsíðu
ISR Matrix, isrmatrix.is.
Konur verja sig: „Flestir karlmenn
yrðu smeykir við að mæta þeim í
átökum“
Jón hefur haldið
sjálfsvarnarnámskeið fyrir konur
af og til allt frá árinu 2011 við
frábærar undirtektir. Hildur María
Sævarsdóttir, 32 ára, einhleyp,
tveggja barna móðir, hefur
frábæra hluti að segja um ISR CAT
sjálfsvarnarnámskeiðið. „Mig langaði
alltaf að læra sjálfsvörn en fann
bara helgarnámskeið sem er ekki
nóg. Maður þarf meiri þjálfun. Ég
var að takast á við einstakling sem
sendi mér óhugnanleg skilaboð sem
mér leið illa með. Þetta var mikið
og óþægilegt áreiti. Á þessum
tíma sá ég auglýsingu frá Jóni
Viðari á Facebook. Á námskeiði hjá
ISR Matrix lærði ég að spyrna við
fótum og gera þessum einstaklingi
ljóst að ég vildi þetta ekki. Sem
betur fer hætti hann þessu, en
hvað ef ég hefði ekki verið svo
heppin eins og margar konur sem
verða fyrir áreiti en svo gengur
einstaklingurinn lengra?“
„Ég þekki enga konu sem ekki
hefur haft ástæðu til að óttast um
öryggi sitt. Okkur er kennt að vera
stilltar og prúðar sem börn og svo
þegar við eru orðnar fullorðnar
heyrum við að það sé hættulegt að
fara niður í miðbæ. En við heyrum
aldrei um mikilvægi þess að konur
læri að verja sig. Úti á götu er enginn
að fara að spila eftir einhverjum
reglum. Veruleikinn getur verið
grimmur og villtur og við þurfum
að vera undirbúnar fyrir það,“
segir Hildur. Hildur segir að sumar
konurnar á námskeiðunum séu
komnar með yfir 80 þjálfunartíma
og séu orðnar ótrúlega færar. „Ég
held flestir karlmenn yrðu smeykir
við að mæta þeim í átökum,“
segir hún. ISR Matrix býður upp á
grunnnámskeið sem allar konurnar
þurfa að fara í gegnum fyrst, en það
tekur 8 klukkutíma. Síðan tekur við
framhaldsþjálfun fyrir konur sem er
mjög vinsæl.
Flutt í glæsilegt húsnæði
Sporthússins
ISR Matrix flutti þann 1. september
í Sporthúsið, Dalsmára 9–11, 200
Kópavogi, þar sem er sérstakur
æfingarsalur fyrir starfsemina. Því
fylgir frábær aðstaða og þjónusta
við iðkendur og fyrirtæki í þjálfun
hjá stöðinni. Fullur aðgangur að
lyftinga- og tækjasal fylgir nú áskrift
að ISR og að sjálfsögðu afnot
af búninga- og sturtuaðstöðu,
heitapott og gufu.
Skoðaðu möguleikana á isrmatrix.is
Sími: 862-0808
Netpóstur: isrmatrix@isrmatrix.is
Facebook: ISR Matrix Iceland
Ljósmynd: Sigurjón Magnússon.
Ljósmynd: Sigurjón Magnússon.