Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.2019, Page 84
84 MATUR 22. nóvember 2019
Ketó - með eða á móti?
Vinsældir ketó-lífsstílsins hafa vart farið framhjá fólki en sitt sýnist
hverjum um ágæti fæðunnar. Við fengum tvo álitsgjafa til að varpa
ljósi á ólík viðhorf sín þegar kemur að þessu eldheita málefni.
Íris Hauksdóttir
iris@dv.is
Tónlistarmaðurinn og veitingahúseig
andinn Daniel Oliver hóf sinn ketó
lífsstíl fyrir rúmum fjórtán mánuðum.
Hann segir fyrstu dagana hafa tekið að
eins á en síðan hafi kílóin farið hrynja
af og líðanin öll breyst til betri vegar.
„Það var svoldið erfitt fyrstu dagana
þegar líkaminn var að klára kolvetna
birgðirnar og hreinsa sig af öllum sykri,
en þegar maður kemst í „ketósu“ þá
skiptir líkaminn út glúkósa, það er að
segja kolvetnum, sem orkugjafa fyrir
fitu sem þá verður aðalorkugjafi líkam
ans. Ég hef aldrei fundið neitt mataræði
sem hentar mér svona vel fyrr en núna.
Mataræði mitt samanstendur að mestu
leyti af grænmeti, fisk, stundum kjöti,
hollri fitu eins og ólífuolíu, avókadó,
smjöri og rjóma og svo osti! endalaus
ostur – slef!
Ég elska lasanja og heimagerðar kjöt
bollur í sósu. Ég er líka rosalegur pítsu
kall. Til dæmis þegar ég geri lasanja
nota ég oft góðan og harðan ost í stað
inn fyrir plöturnar. Eða ég nota kúrbít
eða bý til mitt eigið pasta úr möndlu
mjöli eða öðru mjöli. Það er auðvelt að
finna leiðir til að gera hvaða mat sem
er,“ segir matgæðingurinn. „Ég er mjög
duglegur að elda skemmtilegan mat á
ketó. Ég nota möndlumjöl, sesammjöl,
kókosmjöl og alls konar.
Ég get alveg viðurkennt að þetta
hentar ekki öllum, en margir vina
minna og fjölskyldumeðlima hafa próf
að og margir eru ennþá á þessu og líður
vel, en margir hættu. Ég hef tekið pásur
af og til og það hefur gengið ágætlega
að byrja aftur. Ég verð sjaldan svangur
á ketó og sykurþörfin er löngu dauð svo
það er ekki erfitt að lifa á þessu matar
æði.
Fyrstu máltíð dagsins borða ég í
kringum klukkan þrjú og svo þá næstu
um átta. Eftir það fasta ég og finnst það
ekkert mál. Líkaminn gerir ekki greinar
mun á fitunni sem þú ert að borða og
fitunni á líkamanum og er ekki að biðja
um neitt fyrr en þig vantar eitthvað í
kroppinn. Ég finn ekki til hungurs og
skipulegg hvenær og hvernig ég borða.
Það leiðinlegasta er nú líklega að
skipuleggja máltíðirnar og að reyna að
halda mér við mataræðið þegar ég er
að ferðast, en ég er nú bara farinn að
taka mér pásur þegar ég er í fríi erlend
is. En fyrir þá sem hafa áhuga þá mæli
ég með að kíkt sé inn á dietdoctor.com
en þar má finna allar upplýsingar um
ketó og svo auðvitað ketógrúppuna á
Íslandi. Þar eru allir að hjálpast að, gefa
ráð, deila sögunum sínum og frábærum
uppskriftum.“ n
Elísabet Reynisdóttir næringarfræðing
ur segist síður en svo vera fanatískur
mótmælandi ketómataræðis þótt
henni þyki umræðan oft og tíðum ýkt.
„Mér finnst það gott að einstaklingar
stígi skrefin og geri eitthvað sem þeir
telja jákvætt fyrir aukið heilbrigði. Það
sem ég óttast með ketó er múgæsing
ur og að fylgja einhverjum ráðum sem
jafnvel eru ekki góð fyrir suma eða bara
henta ekki. Við erum mismunandi og
því er það þannig að eitt ríkisráð er klár
lega ekki lausnin. Það hentar ekki öll
um að fara eftir ráðleggingum Land
læknis en það er samt alhliða ráð sem
er gefið og tekur á flestum fæðuflokk
um sem eru til staðar, síðan þurfum við
að finna hvaða hlutföll fæðunnar henta
okkur. Það hentar ekki sumum að borða
of mikið af korntegundum eða ávöxt
um og þá er gott að finna jafnvægi þar.
Það er ekki til ein leið sem er „one size
fits all“ því miður og ég veit samt að við
viljum aukna orku og bætt líkamlegt
ástand, svona flest okkar, en við þurfum
að finna okkar jafnvægi til að ná því.“
Þurfa einhverjir að forðast ketó?
„Ég mundi ráðleggja öllum konum á
barneignaraldri að gæta að fæðuvalinu.
Með einhæfari fæðu getur aukist hætt
an á næringarskorti eins og fólinsýru
(B9) sem er til dæmis í ávöxtum, græn
meti, brauði og korntegundum og belg
ávöxtum. Ef kona á barneignaraldri er
ekki með nægjanlegt magn af fólinsýru í
byrjun meðgöngu og fær ekki fæðu sem
inniheldur fólinsýru eru auknar líkur á
fósturskaða s.s. klofnum hrygg. Fólin
sýran þarf að vera til staðar í byrjun
meðgöngu og konur þurfa aukna fólin
sýru á meðgöngu.
Sjálf vinn ég með að setja einstak
linga á alls konar mataræði sem hentar
hverju sinni og fer eftir því með hvað við
erum að vinna. Það að fara út í matar
æði sem er farið að hljóma eins og trúar
brögð gerir mig hálfhrædda. Það eru
bara ákveðinn hluti sem heldur þetta
út og hinir detta út og fara „oft“ í verra
form og ástand en áður en ketókúrinn
var prófaður. Persónulega mæli ég með
því að taka mataræðið föstum tökum og
hugsa um hvað við setjum ofan í okkur.
Ég held að við séum að borða, oft og
tíðum, vitlaust og of mikið af kolvetn
um en það er ekki þar með sagt að við
þurfum að sleppa þeim alveg. Ég vinn
mikið með einstaklinga með blóðsykur
sviðkvæmni sem er forstigseinkenni á
sykursýki af tegund 2 og þá er oft gott
að grípa inn í og keyra kolvetnin nið
ur í smá tíma og finna svo hvaða magn
hentar og á hvaða tíma dags. Að sneiða
alveg fram hjá þeim held ég að sé ekki
rétt.
Staðreyndin er nefnilega sú að ketó
er í tísku þangað til það kemur afleysing
sem verður ný tískubylgja. Verum skyn
söm og finnum hvað hentar hverjum og
einum. Það er samt hjákátlegt að fylgj
ast með ketóæðinu því það eru svona
sjálfskipaðir lestarstjórar sem stjórna
samfélagsmiðlum og veita upplýs
ingar og ráð sem oft er bara alls ekki
fyndið. Fólk er tilbúið að láta segja sér
og látið prófa alls konar aðferðir, þrátt
fyrir að líkamleg einkenni séu að öskra
á einstaklinginn að þetta form af fæðu
vali henti ekki líkama hans. Hrein fæða
er góð og auknar líkur á að með bættri
fæðu minnki bólgur og að fólki líði bet
ur. Það að ketó sé svarið við öllu er ekki
rétt, en ég hvet alla til að borða hreint
og fá sér góða ávexti og auka grænmeti
í millimál. Ef það hentar ekki, að finna
þá leið og taka ábyrgð á sjálfum sér og
ef sú ábyrgð inniheldur að vera á ketó
mataræði þá finnið þið það best sjálf og
treystið eigin dómgreind. Ekki láta mata
ykkur á áróðri og öfgum það er bara
engum hollt.“ n
n 1½ bolli rif inn mozzar ella-ostur
n ¾ bolli möndluhveiti
n 2 msk. rjóma ost ur
n 1 tsk. edik
n 1 egg
n ½ tsk. salt
Hitið ofn inn í 200 gráður. Hitið mozzar
ella og rjóma ost inn í potti eða ör
bylgju ofni.Hrærið sam an uns þeir hafa
bland ast sam an. Bætið þá við hin
um hrá efn unum og blandið vel sam
an. Settu vel af ólífu olíu á hend urn
ar og flettu deigið út á smjörpapp ír. Úr
þessu ætti að verða pítsa sem er um 20
sentimetrar í þver mál. Einnig er hægt
að nota köku kefli til að fletja deigið út
en þá er betra að setja líka smjörpapp
ír ofan á deigið meðan það er flatt út.
Stingið í botn inn með gaffli og bakið í
ofn in um í 10–12 mín út ur. Þegar botn
inn er til bú inn skal taka hann út, setja
álegg og sósu ofan á hann og baka síð
an aft ur í 10–12 mín út ur eða þar til ost
ur inn er bráðnaður.
n 1 bolli af kínóa
n 1 ½ bolli vatn
n ½ tsk. sjávarsalt
n kínóa soðið upp úr blöndunni og
látið kólna
n avókadó skorið í litla bita
n 1 msk. sítrónusafi
n ferskur lax látinn liggja í sítrónusafa
í minnst fjórar mínútur eða lengur
ásamt avókadó.
n 1 bolli cherry-tómatar, skornir í
tvennt
n ½ rauðlaukur
n ½ tsk. rauður þurrkaður chili
n 1 msk. þurrkað kóríander
DRESSING
n safi úr einni sítrónu
n 1 hvítlauksgeiri
n ½ tsk. malað cumin
n ¼ tsk. sjávarsalt
n 1/3 bolli extra virgin olífuolía
Eftir að kínóa hefur verið soðið og
kælt er það steikt upp úr olíu á pönnu
ásamt kryddi og lauk. Tómat og laxa
blöndunni svo bætt saman við ásamt
dressingunni.
Sjaldan svangur og sykurþörfin horfin
Áróður og öfgar gera engum gott
KLIKKAÐUR
KETÓ-PÍTSUBOTN
KÍNÓASALAT MEÐ
SÍTRÓNUDRESSINGU