Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.2019, Page 88

Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.2019, Page 88
88 22. nóvember 2019 N ýjasta töfratækið á tóm- stundamarkaðnum heitir Karaoke og á gera hverjum sem er kleift að láta rödd sína hljóma engu miður en rödd hvaða stórsöngvara sem vera skal.“ Svona hófst lýsing á þeim stórvið- burði í lok október árið 1990 að japanska sönglistin „karaoke“ var komin til landsins, nánar til tekið á öldurhúsið Ölver, þar sem karókí lifir enn góðu lífi. Óvænt heimsundur Karókí átti aldrei að verða al- heimsundur því það var í fyrstu hugsað sem tæki fyrir japanska jakkafatakarla sem hittust eftir vinnu og slökuðu á með drykkj- um og söng. „Karaoke“ þýðir á íslensku tóm hljómsveit og var söng jakkafatakarlanna á vinsæl- um popplögum ætlað að gera þeim kleift að slaka á eftir langan vinnudag. Það skapaðist meira að segja hefð fyrir því þegar fyrir- tæki fóru á karókístaði að undir- menn tækju hver sitt lagið til að ganga í augun á yfirmanninum. Þá skipti litlu hvort mennirnir gátu sungið eður ei því það var talin mikil manndómsvígsla að geta staðið með sjálfum sér og sínu lagleysi uppi á sviði og hag- að sér eins og heimsins stærsta poppstjarna. Karókí mismunaði því fólki ekki eftir söngrödd og gerði fólki mögulegt að sigra heiminn án þess að halda einum einasta tóni. Þetta aðgengi í bland við góða skemmtun og stuð varð til þess að karókí varð vinsælt um heim allan. Sem og þann draum að menn og konur gætu verið uppgötvuð sem stórstjörnur eftir söng í karókí. Allt upppantað Það er vægt til orða tekið að segja að í framhaldinu hafi mikið karókíæði gripið landsmenn. Ekki leið á löngu þar til karókí varð vin- sælasta þjóðar íþrótt Íslendinga og Ölver fylltist um hverja helgi af söngelskum landsmönnum. Auðvitað fundum við landsmenn meira að segja íslenskt orð yfir þessa töfragræju sem var einfald- lega „Meðhjálparinn“. Því miður náði það ekki jafnmikilli fótfestu og karókígræjan sjálf. „Íslendingar hafa svo gaman af að taka lagið, að einum til tveim- ur tímum fyrir lokun eru öll lög- in upppöntuð hjá okkur. Í Evrópu þurfa skemmtanastjórar að draga fólk upp á svið,“ sagði Magnús Halldórsson, framkvæmdastjóri Ölvers, í viðtali við DV í nóvem- ber árið 1991. Hann sagði að vinsælustu lögin væru diskólög og smellir Franks Sinatra og að nýir söngvarar rækju inn nefið í hverri einustu viku. Þegar þarna var komið sögu var karókí einnig orðin gríðarlega vinsæl afþreying í steggja- og gæsapartíum. Voru starfsmenn Ölvers oft beðnir um að taka karókíflutning verð- andi brúðar eða brúðguma upp á „segulbandsspólu sem síðan er leikið af í brúðkaupsveislunni nærstöddum til skemmtunar.“ Elvis lifir Á þessum tíma, þegar karókí var aðeins ársgamalt á Íslandi, hafði það þá þegar náð sterkri fótfestu hér á landi. Karókíæðið breiddist hratt út fyrir höfuðborgarsvæðið og út á landsbyggðina, þar sem voru haldnar karókíkeppnir um hvippinn og hvappinn. Fyrsta Ís- landsmeistaramótið í karókí var síðan haldið í Sjallanum árið 1991. Fyrir það var karókívélin vígð með pomp og prakt þar sem ýmsum fyrirtækjum á Akur- eyri var boðið í Sjallann til að spreyta sig. Þá var einnig blásið til fjölmiðlakeppni í karókí. Rit- stjóri Dags, Bragi V. Bergmann, bar sigur úr býtum með miklum yfirburðum og lýsti blaðið hans, Dagur, sigrinum sem slíkum: „Hann bræddi salinn með Elvisslagaranum It’s now or never. Hörðustu aðdáendur hrópuðu „Elvis lifir“ enda náði Bragi bæði viðeigandi trega og krafti í túlkun sinni og sviðs- framkoman var lífleg. Hann tók síðan I can’t help falling in love with you sem uppklappslag og Elvis-aðdáendur sungu með. Fyrir þessa frammistöðu fékk hann farandbikar og góðgæti frá Kolbeini Gíslasyni, fulltrúa Sjall- ans.“ Fyrsti Íslandsmeistarinn En aftur að fyrsta Íslandsmeist- aramótinu í karókí. Það var engin önnur en Inga Sæland sem fór þar með sigur af hólmi, en eins og flestir vita situr hún nú á Al- þingi fyrir Flokk fólksins. Skákaði Inga sextíu öðrum keppendum á mótinu. „Maðurinn minn fyrrverandi Gamla auglýsingin 21. desember 1979Tímavélin Reykjavik Raincoats LAUGAVEGUR 62, 101 RVK www.reykjavikraincoats.com info@reykjavikraincoats.com Sími: 5711177 „Ég fór bara, söng og varð fyrsti Íslandsmeistarinn í karókí“ n Íslendingar uppgötvuðu karókí í byrjun tíunda áratugarins og þá var ekki aftur snúið n Inga Sæland fyrsti Íslandsmeistarinn Lilja Katrín Gunnarsdóttir lilja@dv.is Æði, æði, æði Karókí varð fljótt mjög vinsælt sport. Óvæntur sigurvegari Inga Sæland, fyrsti Íslandsmeistari í karaoke.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.