Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.2019, Qupperneq 92
92 FÓKUS 22. nóvember 2019
n Kvikmyndin Bergmál hangir ekki alveg saman n Glæsileg hugmynd en erfið fæðing
K
vikmyndin Bergmál
markar einstaka tilraun
á íslenskum fleti og sam-
anstendur af tæplega sex-
tíu senum, eða tæplega sextíu
tökum réttara sagt.
Atriðin eru alveg sjálfstæð
og ótengd og enginn hefðbund-
inn „bíóþráður,“ ef svo mætti að
orði komast. Öllu heldur skal líta
á þetta eins og sketsamynd eða
listræna samsuðu af Vine-mynd-
brotum, nema hér er þemað hvað
Ísland getur verið melankólískt
eða grátbroslegt í kringum jóla-
tímann. Og hvað náttúra og fólk
getur verið annaðhvort unaðs-
lega fallegt eða hin mestu fífl.
Með sinni þriðju kvikmynd í
fullri lengd málar Rúnar Rúnars-
son upp forvitnilegt og einlægt
portrett af íslensku þjóðfélagi
með stuttum innlitum, sumum
bersýnilega leiknum en öðrum
eins og teknum úr heimildaefni.
Myndavélin er ávallt kyrrstæð,
læst og aldrei er klippt í miðj-
um senum. Þarna sækir Rúnar
grimmt í þá list að gera áhorfand-
ann að flugu á vegg og þykir ekki
ólíklegt að Rúnar hafi verið und-
ir miklum áhrifum frá sænska
stílistanum Roy Andersson.
Törn og tíðarandi
Líkt og maður nokkur segir í
myndinni sjálfri: „Það kostar ekk-
ert að láta sig dreyma“. Þessi hugs-
un yfirgnæfir allan þann tilrauna-
kennda gjörning sem myndin er.
Vandinn við heildarverkið er sá
að þráðurinn er alltof þunnur og
heildarhugmyndin fullbreið til að
ná einhverri dýpt úr umfjöllunar-
efninu og þemum þess. Titillinn
Bergmál hefur engan tilkomu-
mikinn tilgang nema kannski
að sýna hversu hátt glymur í
tunnunni, þótt hún og allir sem
komu að gerð hennar eigi skilið
væna jólagjöf í formi klapps.
Hugmyndin er í grunninn
gargandi snilld, en hvað er gert
við hana er önnur umræða.
Heildarbragur lokaniðurstöð-
unnar er vissulega athyglisverð-
ur en ábótavant og hefur lítið að
segja almennt. Þetta kemur allt
minna út eins og upplifun eða að
hver stök eining sé nauðsynleg-
ur fylgihlutur stærri myndarinn-
ar og meira eins og samansafn
uppfyllingarefnis, með stórfín-
um gullmolum inni á milli. Senan
með barnsfæðingunni (í beinni
útsendingu, takk fyrir) hittir til að
mynda alveg í mark ásamt atriði
þar sem við gægjumst inn á vakt
Neyðarlínunnar.
Stundum eru þó bútarnir ein-
faldlega ekkert mikilfenglegri en
snöggt innlit í fitnesskeppni eða
gæludýr að bregðast við flug-
eldum. Þetta er fínt myndefni út
af fyrir sig, en það er hvorki lífs-
nauðsynlegt fyrir DNA myndar-
innar né fróðleg og gefandi inn-
sýn í íslenskan raunveruleika á
hátíðartíma. Hvar er jólastressið?
Búðaráfið, matarboðin og tilheyr-
andi skepnuskapur sem fylgir
törninni og tíðarandanum?
Íslensk kvikmyndagerð í lúppu
Rúnar reiðir sig fullmikið á að
áhorfandinn hangi á tenging-
um senanna við eigið líf og bæti
þar af leiðandi allri merkingu við
þegar lítill grunnur er þegar til
staðar. „Já, djöfull tengi ég þarna,“
eða „Við þekkjum öll einn svona“
virðist vera nærri þeirri nálgun
sem sóst er eftir frekar en að gera
túlkun og uppfyllingu áhorfand-
ans að bónus. Sjaldan, en þó ör-
sjaldan, koma fyrir kaflar sem
lykta af harðri samfélagsádeilu,
sem meira hefði mátt vera af –
eða kannski tilfinningum sem
ristu dýpra og sögðu meira með
minna.
Rúnar er alltof mikið á
melankólíska grámyglusvæðinu
til að fanga betri nærmynd af feg-
urð og ljótleika lífsins. Í staðinn
er bara léttdramatískur hvers-
dagsleikinn uppmálaður. Hann
er það afar faglega að sjálfsögðu
og sum innlitin eru virkilega gríp-
andi og gætu staðið sjálfsætt sem
flottar míkrómyndir. En þú fengir
í rauninni jafnmikið út úr því eða
að flakka á milli sjónvarpsstöðva
í 70 mínútur, sérstaklega ef eina
efnið sem er í boði er íslenskar
kvikmyndir og þættir.
Eins flott og tilraunin er þá
sýnir hún einfaldlega hvernig
grámygla íslensks bíós er fast í
lúppu, og á færibandi. Stundum
laumast inn glettinn húmor og
tilþrifarík áhersla á mannlega
þáttinn. Oftar blasir þó við risa-
stór skammtur af engu með sykri.
Þó kemur fyrir að í góðu lagi sé að
dást að glassúr.
En að öllu þessu sögðu, þá
þyrfti Ísland virkilega að prófa að
gefa út sketsamynd í bíó. n
Í stuttu máli:
Hinn bærilegasti sam-
tíningur sundurslitinna
atriða, sem eru flest
vel gerð og leikin, en
sterkari heildarsvipur
á þemum og meiri
kraftur hefði gert
afraksturinn að sér-
íslenskri jólaperlu.
Sjáðu þessa ef
þú kannt að meta:
Forvitnilegt
fjarstýringarflakk,
veigalítill gjörningur
Tómas Valgeirsson
tomas@dv.is
Babies
V
ill
ilj
ós
Rokk í Reykjavík
N
ew
Y
or
k,
I
Lo
ve
Y
ou
Fíaskó