Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.2019, Blaðsíða 98
98 MATUR 22. nóvember 2019
Dustið ávexti og ber með smá hveiti
áður en þið bætið þeim út í kökudeig
svo ávextirnir sökkvi ekki niður á botn.
Það sama á við um súkkulaðibita.
Leyfið kökum að kólna í formunum í um það
bil korter. Ef þið takið kökurnar úr formunum
strax geta þær liðast í sundur og orðið að ein-
hverju stórslysi.
Ef þú ert óviss um hvort lyftiduftið sé í
lagi er þjóðráð að setja eina teskeið af
lyftidufti í vatnsglas. Ef blandan freyðir
ekki er lyftiduftið ónýtt og á best heima
í ruslatunnunni.
Það getur tekið dágóða stund að sigta þurrefn-
in en það borgar sig. Þá losnar maður við alla
kekki og kökurnar verða léttari í sér. Hljómar
það ekki vel?
Ef þú nennir ekki að baka frá grunni og vilt frekar grípa
kökumix þá dæmi ég þig ekki! En ég vil bara segja þér að
þú getur gert kökuna þúsund sinnum betri með því að nota
smjör í staðinn fyrir olíu og mjólk í staðinn fyrir vatn. Þú
getur jafnvel prófað að bæta við einu eggi umfram það sem
stendur á leiðbeiningunum. Alveg satt!
Vissir þú að þú getur notað Jello hlaup duft
til að lita krem og glassúr? Það er ágætis
tilbreyting frá matarlitnum og gefur ansi
hressandi bragð í þokkabót.
Það er svo lítið mál að það er hlægilegt!
Taktu þér smjörpappír í hönd og klipptu
út ferhyrninga sem eru 13 cm. x 13 cm.
– eða í hvaða stærð sem er. Notaðu glas
til að móta ferhyrningana og þá er það
komið!
Ef þú vilt skrifa á köku, til dæmis með
súkkulaði eða kremi, en ert pínulítið efins
um að það takist, þá er um að gera að taka
sér smjörpappírsörk í hönd. Klipptu út bút
sem er jafnstór og eins í laginu og kakan
og skelltu honum á plötu eða disk sem er
flatur. Skreyttu smjörpappírinn og þurrk-
aðu hreinlega mistökin af honum ef þú gerir
einhver. Þegar þú ert fullkomlega ánægð/ur
með skreytinguna skellirðu smjörpappírn-
um í frysti í að minnsta kosti hálftíma. Síðan
tekurðu skreytinguna varlega af pappírnum
og setur á kökuna. Einfalt!
Ef þú vilt ganga í augun á gestunum þínum ættirðu að hita
hnífinn sem þú skerð kökur með, til dæmis með því að láta
heitt vatn renna á hann í smá stund. Sneiðarnar verða fal-
legri og það verður auðveldara að skera kökuna.
Þetta er svo einfalt en svo ofboðslega mikilvægt atriði.
Eitthvað sem ég hef lært af biturri reynslu, skal ég segja
ykkur. Þegar maður er nefnilega að leika sér í eldhús-
inu þá verður maður oft svo spenntur (þegar ég segi
maður þá er ég að tala um sjálfa mig) að maður man
ekkert hvað maður gerði og getur því ekki fyrir sitt litla
líf endurtekið það. Þannig að kauptu þér litla minnis-
bók, punktaðu niður hvað þú gerðir, hvað var gott, hvað
virkaði ekki og svo framvegis. Þú átt eftir að þakka fyrir
þessa olíubornu minnispunkta seinna meir.
Segðu öllum sem þér þykir vænt
um frá geggjaðri uppskrift sem þú
varst að prófa. Sendu þeim upp-
skriftina og leyfðu þeim að njóta
hennar líka. Það er nefnilega of-
boðslega gaman að miðla baksturs-
þekkingu sinni til annarra!
Ávextir í kökum Þolinmæði, muniði Lyftiduftstrixið
Gamla, góða sigtið
Poppaðu kökumixið uppJello til bjargar
Búðu til þín
eigin múffuform
Kauptu þér minnisbók
Fullkomin kökusneið í hvert sinn
Miðlaðu
þekkingunni
Auðveldari
skreytingaraðferð
Lilja Katrín Gunnarsdóttir
lilja@dv.is