Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.2019, Blaðsíða 101
FÓKUS 10122. nóvember 2019
Anna prinsessa er dóttir El-
ísabetar Bretadrottningar og
Philips prins. Hún gekk að
eiga Mark Philips árið 1973
en þau skildu árið 1992. Þegar
þau voru enn gift hélt Mark
framhjá með nýsjálenska
kennaranum Heather Tonkin.
Hún varð ólétt og sagan sagði
að Mark hefði beðið hana um
að fara í fóstureyðingu, sem
hún gerði ekki.
Fáir muna kannski eftir því að Karl Bretaprins deitaði eldri systur
Díönu, lafði Söruh McCorquodale, áður en hann og Díana felldu
hugi saman. Samband Karls og Söruh ku hafa endað því hún vildi
ekki giftast honum.
Það varð uppi fótur og fit í Buckingham-höll þegar The Sun skrifaði
upp úr símtali á milli Díönu prinsessu og meints elskhuga hennar,
James Gilbey, árið 1992. Þá var Díana enn þá gift Karli en James
kallaði Díönu gælunafninu „squidgy“ 53 sinnum í samtalinu og
sagðist elska hana. Málið fékk viðurnefnið „Squidygate“ út af gælu-
nafninu. Stuttu síðar skrifaði ástralskt tímarit upp úr samtali Karls
Bretaprins og núverandi eiginkonu hans, Camillu Parker Bowles.
Það símtal var ansi gróft og var kallað „Camillagate“. Í símtalinu
klæmdust þau hvort við annað og sagðist Karl meðal annars vilja
breyta sér í túrtappa svo hann gæti búið í nærbuxum Camillu.
Það voru ýmis hneyksli sem komu upp í sambandi Karls og Díönu
heitinnar. Eitt af þeim var þegar því var haldið fram að Karl væri
ekki faðir Harrys Bretaprins. Díana játaði í viðtali að hafa haldið
framhjá Karli, til dæmis með hermanninum James Hewitt, en þeir
Harry eru sláandi líkir.
Andrew prins hefur vakið
usla áður innan konungsfjöl-
skyldunnar, til dæmis þegar
hann kynnti Elísabetu drottn-
ingu fyrir kærustu sinni,
Kathleen „Koo“ Stark árið
1982. Drottningin vissi ekki að
Kathleen var klámstjarna en
bresku slúðurblöðin skemmtu
sér við að birta myndir af nýju
kærustunni fáklæddri.
Það fór um Breta þegar kom í ljós að
George V og Mary drottning höfðu
eignast sjötta barnið, John prins. Hann
fæddist árið 1905 en dó aðeins
þrettán ára gamall árið 1919.
Hann var með flogaveiki og
var haldið í einangrun og til-
vist hans leynt fyrir heimin-
um þar til eftir dauða hans.
Konungsfjölskyldan leit á
flogaveikisköstin sem veik-
leikamerki og því fékk al-
menningur ekkert að vita.
Aftur að Andrew prins, eða
fyrrverandi eiginkonu hans,
Söruh Ferguson. Hún var grip-
in af News of the World árið
2010 og sökuð um að falast
eftir mútugreiðslum frá blaða-
manni til að koma á sambandi
á milli blaðamannsins og
Andrews prins.
Svo eru það bræðurnir Harry og Vilhjálmur. Harry hefur verið
duglegur að hneyksla í gegnum tíðina. Hann fækkaði til dæmis
fötum í teiti í Las Vegar árið 2012 og myndunum var lekið til The
Sun. Þegar hann var sautján ára var hann sendur í eins dags með-
ferð eftir að hafa játað fyrir föður sínum að hafa prófað marijúana
nokkrum sinnum, sem og áfengi. Svo þurfti Harry einnig að þola
miklar ákúrur þegar hann mætti sem nasisti í búningapartí og
myndum af því var lekið í fjölmiðla. Hann baðst afsökunar á því
og sagði valið á búningnum óheppilegt. Þá var Vilhjálmur einu
sinni staðinn að því að dansa ögrandi dans við áströlsku fyrirsæt-
una Sophie Taylor, eftir að hann byrjaði með Kate Middleton. Kate
Middleton fór síðan í mál við tímaritið Closer eftir að það birti
myndir af henni berri að ofan í sólbaði árið 2012. Kate vann málið
og þurfti Closer að borga 118 þúsund dollara í skaðabætur.
Eftir að Harry festi ráð sitt
og byrjaði með leikkonunni
Meghan Markle skók annað
hneyksli prinsinn, nú vegna
tengdaföður hans. Meghan
þurfti að ganga sjálf upp að
altarinu þegar hún gekk að
eiga Harry því faðir hennar,
Thomas Markle, mætti ekki.
Þau feðginin eru ekki í góðu
sambandi eftir að Thomas
rasaði út í fjölmörgum blaða-
viðtölum um dóttur sína í að-
draganda brúðkaupsins.
LAUMUBARNIÐ
FAÐIR
BRÚÐARINNAR
TÝNDI SONURINN
DEITAÐI SYSTUR DÍÖNU
VILDI BÚA Í NÆRBUXUM CAMILLU
HARRY OG FAÐIRINN
KONUNGLEG KLÁMSTJARNA
MÚTUÞÆGNI
NEKT OG NASISTAR