Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.2019, Side 102
102 22. nóvember 2019STJÖRNUSPÁ
S
amherjamálið hefur verið
á allra vörum undanfarið
og hafa einhverjir efast um
hæfi Kristjáns Þórs Júlíus-
sonar í embætti sjávarútvegs- og
landbúnaðarráðherra vegna ríkr-
ar tengingar við fyrirtækið Sam-
herja og forstjóra þess, Þorstein
Má Baldvinsson. DV ákvað að
leggja tarotspil fyrir Kristján Þór,
en lesendur DV geta dregið sín
eigin tarotspil á vef DV.
Ekki lofa upp í ermina
Fyrsta spilið sem kemur upp hjá
ráðherranum er 10 stafir. Það
spil túlkar ástandið eins og það
er núna. Það er mikill erill í lífi
ráðherrans og standa á honum
öll spjót, spjót sem hann hefur
að einhverju leyti brýnt oddinn
á sjálfur. Honum er ekki sætt í
sínu embætti í núverandi mynd,
það er ekki flóknara en svo. Sam-
starfsmenn hans benda honum
á þetta og verður hann tilneydd-
ur til að fela þeim sum af verk-
efnunum sem hann getur ekki
haft á sínu borði. Svo er gott fyr-
ir Kristján Þór að hafa í huga í
framtíðinni að lofa ekki upp í
ermina á sér og taka að sér verk-
efni sem hann veit að geta komið
honum í klandur.
Fetar nýja braut
Næsta spil er Heimurinn. Það
táknar þann tíma sem kemur
þegar að Samherjamálinu er lok-
ið. Kristján Þór skilur sáttur við
sitt embætti og nær að ljúka sinni
embættistíð með sóma. Við það
að horfast í augu við sannleikann
og sjálfan sig finnur hann fyrir
áður óþekktu jafnvægi innra með
sér. Þetta jafnvægi eykur gleði og
ánægju í hans lífi. Vegna mikillar
reynslu og hagstæðs flokks verð-
ur Kristján Þór ekki lengi að finna
sér nýjan vettvang og hrynja tæki-
færin nánast yfir hann. Nýr kafli
hefst þar sem ráðherrann lærir
mikilvæga lexíu af reynslu í
sjávarútvegs- og landbúnað-
arráðuneytinu.
Flutningar
Síðasta spilið er Breytingar. Það er
áframhald að fyrra spili og tákn-
ar þann umbrotatíma sem verð-
ur þegar Samherjamálinu lýkur.
Það er ekki aðeins að Kristján Þór
leiti á nýjan starfsvettvang heldur
verða miklar og stórar breytingar í
hans einkalífi. Kæmi spákonu DV
ekki á óvart ef hann flytti á annan
stað, jafnvel úr landi, þegar ráðu-
neytisdagarnir eru taldir. Þessar
breytingar munu gera honum
gott og reyna á aðlögunarhæfni
hans, sem er afar mikil. Kristján
Þór gerir upp fortíðina og fagnar
framtíðinni.
stjörnurnar
Spáð í
Naut - 20. apríl–20. maí
Fiskur - 19. febrúar–20. mars
Vatnsberi -
20. janúar–18. febrúar
Steingeit -
22. desember–19. janúar
Bogmaður -
22. nóvember–21. desember
Sporðdreki -
23. október–21. nóvember
Vog - 23. sept.–22. október
Meyja - 23. ágúst–22 .sept.
Ljón - 23. júlí–22. ágúst
Krabbi - 22. júní–22. júlí
Tvíburi - 21. maí–21. júní
Stjörnuspá vikunnar
Gildir 24.–30. nóvember
Þú ert kannski ekki viðbúin/n því en
ástalífið tekur þvílíkum kipp í vikunni!
Lofaðir hrútar eiga von á að makinn komi
þeim þvílíkt á óvart á meðan einhleypum
hrútum er boðið á stefnumót í gríð og erg.
Í stuttu máli eru allir bara vitlausir í þig og
þú mátt alveg halla þér aðeins aftur og
bara njóta þess.
Lofuð naut hafa upplifað sig frekar
stöðnuð í núverandi sambandi og hafa
jafnvel velt fyrir sér hvort þau ættu að
gefa ástina upp á bátinn. Í vikunni snýst
þér hugur því þú ákveður að gera allt sem
í þínu valdi stendur til að tendra neistann
á nýjan leik. Og viti menn – það verður
talsvert auðveldara en þú hélst!
Loksins er allt á uppleið hjá tvíburanum.
Eftir marga mánuði af alls kyns hugar-
angri og áhyggjum snýrðu við blaðinu og
tekur rækilega til. Hugsanlega tekur þú
loksins stóra skrefið og hættir í vinnunni
sem hefur ekki veitt þér neina gleði og
finnur annan starfsvettvang sem þú
blómstrar á. Gangi þér vel!
Krabbinn iðar ávallt af lífi og er alltaf
til í að taka þátt í gleði af ýmsu tagi –
nema akkúrat núna. Það er einhver smá
deyfð yfir þér og hugsanlega tengist það
myrkrinu og jólunum sem nálgast. Þú ert
nefnilega mikið jólabarn en oft kveikir
jólaundirbúningur á leiðum tilfinningum
hjá þér. Þá er gott að halla sér að sínum
nánustu og tala út um það.
Þú ert náttúrlega ekki eðlilega þrjóskur
einstaklingur og gefst aldrei upp. Nú
er hins vegar kannski kominn tími á að
þú hreinlega gefist upp á annaðhvort
verkefni, vinnu eða maka. Þú ert komin/n
á endastöð og þér finnst þú svikin/n. Þú
getur ekki lagað alla og stundum þarftu
bara að hugsa um þig.
Einhleypar meyjur öðlast nýtt líf í vikunni
og daðra eins og enginn sé morgun-
dagurinn eftir frekar mikla deyfð í
stefnumótalífinu. Lofaðar meyjur eru líka
óvenju villtar og hafa frumkvæði að alls
kyns skemmtilegheitum undir sænginni,
ofan á henni, inni í baðherbergi eða úti á
svölum. Gaman að því!
Nú stendur þú á krossgötum og þarft að
setjast niður og hreinlega skrifa niður
hvað sé þér mikilvægast. Búa til eins kon-
ar forgangsröð og vinna eftir henni statt
og stöðugt. Þú ert á höttunum eftir nýju
verkefni og nærð að koma því ofarlega
í forgangsröðina. Það þýðir bara eitt –
skemmtilegir tímar framundan!
Það er mikið um að vera í vinnunni hjá
þér og fram til jóla og yfir áramótin. Nú
færðu loksins tækifæri til að láta ljós þitt
skína og það gerir þú svo sannarlega. Þú
tekur ábyrgð og fer vel með hana, kemur
vel saman við fólk og drífur hluti áfram.
Það ætti ekki að koma þér á óvart að
stöðuhækkun er handan jólatrésins.
Þú þarft að finna hvenær á að slaka á og
hvenær á að gefa í. Síðustu vikur hefur
þú bara verið stanslaust í fimmta gír. Það
er hins vegar mjög mikilvægt fyrir þig að
hvílast til að geta verið endurnærð/ur
þegar að á reynir – bæði í persónulegum
samböndum sem og vinnunni.
Nú þarftu að hafa varann á kæra
steingeit. Það er einhver að reyna að fella
þig, jafnvel niðurlægja þig í persónulega
lífinu. Alls ekki treysta þeim sem koma
óvænt inn í líf þitt eftir langa fjarveru og
biðja þig um eitthvað sérstakt. Passaðu
þig rosalega vel á fólki sem lofar öllu
fögru en stendur ekki við það.
Þú hefur staðið þig rosalega vel að
undanförnu í að hugsa um þig sjálfa/n.
Það er að bera ávöxt núna því þú gjör-
samlega geislar af sjálfstrausti og gleði.
Þú ert kynnt/ur fyrir nýrri manneskju sem
þú kolfellur fyrir og manneskjan laðast
að þér. Þú skalt passa þig á þessum
einstaklingi – hann er ekki allur þar sem
hann er séður.
Ef þér líður eins og þú hafir enga stjórn í
núverandi sambandi þá er það líklegast
rétt hjá þér. Þú hefur lúffað of mikið,
látið ýmislegt yfir þig ganga og ekki
staðið í lappirnar og á þínu. Nú er komið
að skuldadögum og þetta er eitthvað
sem þú getur ekki breytt til baka. Þá er
mikilvægt að skilja í sátt og takast á við
nýjar áskoranir.
Hrútur - 21. mars–19. apríl
Afmælisbörn vikunnar
n 24. nóvember Gunnar Helgason, leikari og leikstjóri, 54 ára
n 25. nóvember Sólrún Lilja Ragnarsdóttir blaðakona, 37 ára
n 26. nóvember Einar Eyjólfsson prestur, 61 ársx
n 27. nóvember Klara Ósk Elíasdóttir söngkona, 34 ára
n 28. nóvember Þórir Ólafsson handknattleikskappi, 40 ára
n 29. nóvember Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri Hafnarfjarðar, 54 ára
n 30. nóvember Áslaug Arnar Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra, 29 ára
Lesið í tarot Kristjáns Þórs
Þórey og Magnús ástfangin
– Svona eiga þau saman
Þórey
Fædd 18. ágúst
1972
Ljón
n skapandi
n ástríðufull
n gjafmild
n hlý
n þrjósk
n hrokafull
Magnús Orri
Fæddur: 23. apríl
1972
Naut
n áreiðanlegur
n þolinmóður
n hagsýnn
n ábyrgur
n þrjóskur
n eigingjarn
Þ
órey Vilhjálmsdóttir, ráð-
gjafi hjá Capacent, og
Magnús Orri Schram, fyrr-
verandi alþingismaður, eru
nýtt par, en þau hafa bæði verið
mjög áberandi í þjóðlífinu undan-
farin ár. Ástin er ný af nálinni en
DV lék forvitni á að vita hvern-
ig skötuhjúin eiga saman þegar
kemur að stjörnumerkjunum.
Magnús Orri er naut en Þórey
er ljón. Tveir afskaplega þrjóskir
einstaklingar koma hér saman í
ástarsambandi, sem getur orðið
ansi hreint farsælt. Af hverju? Jú,
því þessir tveir sterku einstak-
lingar vita upp á hár hvernig á að
fóðra egó hins aðilans.
Í raun eru þarfir nauts og ljóns
mjög svipaðar; bæði merki vilja
vera elskuð og að það sé hugsað
um þau. Ljónið elskar hrós og
að vera dáð og dýrkað og nautið
þarf einnig mikið af athygli. Sem
elskhugar eru þau trygglynd og
svíkja ekki fólkið sem stendur
þeim næst.
Bæði merki elska þægindi og
lúxus og eru einnig afar kapp-
söm. Þau elska að vera í stjórn-
unarstöðum og þessi þörf fyrir
að stjórna og hafa rétt fyrir sér
hjá þeim báðum getur orðið til
þess að babb komi í bátinn í sam-
bandinu. Þau þurfa því að leggja
sig fram við að skilja þarfir hvort
annars og kunna að miðla mál-
um. Rifrildi um hver á að stjórna
geta skemmt allt og því þurfa
þau að tala vel saman og átta sig
á hlutverkum sínum innan sam-
bandsins frá fyrsta degi.
Ekki sætt í embætti